Öll spurningin hljóðaði svona:
Hver eru kynjahlutföll orða í íslensku? Þ.e.a.s. hversu hátt hlutfall orða er í karlkyni, kvenkyni og hvorugkyni? Hvernig er þessu háttað í öðrum tungumálum sem hafa málfræðilegt kyn, t.d. þýsku, norrænu málunum (sænsku, dönsku, norsku) eða latnesku málunum (latínu, frönsku, spæn...
Skýringin á þessu er ekki ljós en gæti verið þessi:
Orðasambandið hefur ef til vill mótast eftir dönsku: klokken er et en þar kemur hvorugkynsmyndin aðeins fram í tölunni et, en kyn sést ekki í to, tre og svo framvegis. Úrfelling gæti legið að baki í íslensku, til dæmis að orðið högg sé fellt brott. Klukkan sl...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Ég er nemandi og ég bý í Bandaríkjum. Ég hef mikinn áhuga á íslensku og ég vil tala málið án villna. Spurningin mín er um eignarfallið eftir tölum. Hvenær notum við eignarfall eftir tölum? Segjum við tvö þúsund manna eða tvö þúsund menn? Orðin sem ég hef sérstaklega áhuga á ...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Ég og Nína barnabarnið mitt erum að velta fyrir okkur sõgninni að hátta. Hátta sig eða fara í háttinn. Hvaðan kemur þetta og hvernig verður orðið hátta til?
Karlkynsnafnorðið háttur merkir ‘venja, útlit, aðferð ...’ og af því er leidd sögnin hátta ‘haga til’, til dæmis því er s...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Það stendur í BÍN að blóðmör sé karlkynsorð. Ég er ættaður frá Vestfjörðum og hef alltaf notað þetta sem kvenkynsorð. Er bæði notað, eða er bara eitt sem er rétt.
Ég vann í tæpa fimm áratugi á Orðabók Háskólans, síðar orðfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi. Sú...
Ýmis orð í íslensku máli eru notuð í fleiri en einu kyni og er notkunin oft svæðisbundin. Bæði karlkyns og hvorugkyns eru til dæmis orðin fress, hor, hrís, kögur, plús, sykur. Kvenkyns og hvorugkyns eru til dæmis bjúga, hnoða, hveiti, jógúrt, saft, smíði, tál, þúsund. Í þremur kynjum eru skurn og vikur. Kvenkyns o...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Hvers vegna eru lóðir (land undir hús) nefndar eftir, að því er virðist, verkfæri til að mæla þyngd. Hver er uppruni orðsins lóð sem land undir hús? Til gamans má nefna að spyrjandi vinnur við að afmarka jarðir, lönd og lóðir Íslands.
Nafnorðið lóð er til í tveimur kynjum, ...
Vekjaraklukkur eru þarfaþing og ljóst að margir gætu ekki lifað án þeirra, eða allavega ekki með góðu móti vaknað á réttum tíma án þeirra.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðunni About.com fundu Forngrikkir upp nokkurs konar vekjaraklukku í kringum árið 250 f.Kr. Til þess nýttu þeir sér þekkingu sína á sjávarföllum....
Það vill oft vefjast fyrir ýmsum hvernig fara skuli með málfræðilegt kyn og raunkyn. Með málfræðilegu kyni er átt við það kyn sem ákveðin orð hafa í málvitund fólks en með raunkyni, sem einnig er nefnt líffræðilegt kyn, er aftur á móti átt við kyn þess sem vísað er til.
Orðið naut er hvorugkyns í málvitundinni...
Gönur er kvenkynsorð sem einungis er notað í fleirtölu. Merkingin er ‘ógöngur, flan, villigötur’. Orðið er leitt af sögninni gana sem þýðir ‘ana, flana’ og er skylt nafnorðinu gan sem merkir ‘flan’.
Gönur er einkum notað í föstum orðasamböndum eins og ‘hlaupa í gönur’; til dæmis er sagt um hesta að þeir fælist...
Í íslensku hafa nafnorð nær alltaf fast kyn og sjaldnast er hægt að sjá af stofninum einum hvert kyn orðsins er. Aðeins fá dæmi eru þess að sama orðið sé til í fleiri en einu kyni. Það á þó til dæmis við um orð eins og hveiti og jógúrt, sem til eru bæði í hvorugkyni og kvenkyni, og regnskúr sem bæði er notað í kar...
Orðið skúr er eitt þeirra orða sem notað er í tveimur kynjum, annars vegar kvenkyni og hins vegar karlkyni. Beyging orðanna er þessi:
Karlkyn
Eintala
Fleirtala
Kvenkyn
Eintala
Fleirtala
Nefnifall
skúr
skúrar
Nefnifall
...
Kynin þrjú í íslenskri málfræði kallast karlkyn, kvenkyn og hvorugkyn. Þessi heiti gætu vakið þá hugmynd að karlkyn væri eingöngu notað um karla og aðrar karlkyns verur, kvenkyn um konur og aðrar kvenkyns verur og hvorugkyn um annað, það er dauða hluti og hugtök. Það á þó ekki við um íslensku nú á tímum og hefur e...
Kvenmannsnafnið Heiður þekkist frá fornu fari. Það kemur fram sem heiti á völvum, meðal annars í Völuspá:
Heiði hana hétu,
hvars til húsa kom, (hvars = hvar sem)
völu velspáa ...
Eiginnafnið beygðist og beygist enn samkvæmt sterkri beygingu nafnorða:
Nf. Heiður
Þf. Heiði
Þgf. Heiði
Ef. Heiðar
Merking nafn...
Í heild hljóðaði spurningin svona:
Takk fyrir margvíslegan fróðleik á þessum vef. Ég er með fyrirspurn um íslenskt mál sem mig langar að fá svar við. Þetta varðar hluta af starfi mínu. Hvort er réttara að segja:
A. „Þau slitu samvistum árið...“
B. „Þau slitu samvistir árið...“
Með fyrirfram þak...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!