Eldgosum fylgir oft öskufall sem getur reynst skepnum hættulegt, eins og lesa má í svari við spurningunni Hvaða áhrif hafa eldgos á dýr? Sérstaklega þarf að huga að flúori sem getur bæði valdir bráðri og langvinnri eitrun. Um einkenni bráðrar flúoreitrunar er hægt að lesa um í svari við spurningunni Hver eru helst...
Flestar tegundir skíðishvala stunda árstíðabundið far. Á sumrin halda þeir gjarnan til á kaldari hafsvæðum þar sem meiri fæðu er að finna en á hlýrri hafsvæðum. Kynþroska skíðishvalir ferðast svo til hlýrri en næringarsnauðari hafsvæða á veturna til að makast sem og kálfafullar kýr til að bera. Ekki er vitað til f...
Upphaflega spurningin var svona:
Ég er oft á sumrin stödd á sveitabæ þar sem flugur safnast stöðugt í eldhúsið. Þótt þær séu drepnar, koma alltaf mjög fljótt aðrar í staðinn, en aðeins að vissu marki, yfirleitt aldrei fleiri en 5-6 í þetta eldhús (nema í sérstökum flugnasumrum). Flugurnar sýnast virða eitthvert...
Geitur eru með svokallaðan fjögurra hólfa maga líkt og kýr og önnur jórturdýr. Hólfin nefnast vömb, keppur, laki og vinstur (kvk.) og er vömbin langstærst að rúmmáli, um 80% af heildarrúmmáli magans.
Vömbin verkar sem eins konar gerjunartankur. Fæðan fer nánast ótuggin þangað niður og gerjast í svolítinn tíma ...
Orðið fjós er mjög gamalt í málinu. Það var upphaflega samsett orð, *fē-(h)ūs sem dróst saman og varð fjós við það að ē, sem fór næst á undan uppmælta sérhljóðinu ū varð að hálfsérhljóðinu -i- sem síðar varð að -j-.
Upphaflega var orðið fjós samsett orð, fé(h)ús.
Fjósið var notað fyrir stórg...
Það vill oft vefjast fyrir ýmsum hvernig fara skuli með málfræðilegt kyn og raunkyn. Með málfræðilegu kyni er átt við það kyn sem ákveðin orð hafa í málvitund fólks en með raunkyni, sem einnig er nefnt líffræðilegt kyn, er aftur á móti átt við kyn þess sem vísað er til.
Orðið naut er hvorugkyns í málvitundinni...
Orðin japl og jaml hafa nokkurn veginn sömu merkingu. Þau eru notuð um nöldur, tuð eða eitthvað í þá veru. Fuður merkir hins vegar ‘ráðleysisfum’. Ástæða þess að þau eru oft nefnd saman er að í þekktu kvæði um umrenninginn Jón hrak eftir Stephan G. Stephansson er þetta erindi:Þá kvað einn: ,,Vér úrráð höfum:
Út ...
Svonefnt Sæunnarsund var mikið þrekvirki sem unnið var af kú nokkurri sem synti yfir Önundarfjörð á flótta undan örlögum sínum. Forsaga uppákomunnar er sú að árið 1987 þurfti bóndi á bænum Neðri-Breiðadal í Önundarfirði að fækka gripum sínum vegna nýrra laga um gripakvóta. Hann þurfti því að slátra einni af kúnum ...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Ég er að leita að upplýsingum um mengun frá vindgangi kúa en ég finn ekki neinar upplýsingar á íslensku. Gætuð þið sagt mér eitthvað um þessi málefni?
Þegar jórturdýr melta myndast töluvert af metani (CH4). Dýrin losa sig við metanið með vindgangi en þó aðallega með því að ...
Hér er einnig að finna svar við spurningu Jóns Ágústs Sigurðssonar, Hver er meðganga Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins í manni?
Hér mun átt við nýtt afbrigði af Creutzfeldt-Jakob sjúkdómi (CJS), variant Creutzfeldt-Jakob Disease, sem lýst var fyrst árið 1996. Svarið er nei. Ekki hafa verið færðar fullar sönnur á ten...
Jórtrun er eitt best þekkta dæmi um samlífi spendýra (Mammalia) og örvera. Dýr sem jórtra hafa fjórskiptan maga og kallast magahólfin vömb, keppur, laki og vinstur.
Þegar jórturdýr bíta gras berst það lítt tuggið niður í vömbina. Þar er fæðan möluð og blandast munnvatni. Jórturdýr framleiða gríðarlegt magn af ...
Orðið mella hefur fleiri en eina merkingu og er uppruninn mismunandi. Það getur merkt ‘loka, slagbrandur; lykkja’ og er þá tökuorð úr dönsku malle eða nýnorsku melle ‘hringja, sylgja’ sem aftur hafa tekið orðið að láni úr fornfrönsku maille ‘möskvi, reimargat’.
Önnur merking orðsins er ‘dýr með afkvæmi sitt;...
Svar þetta er skrifað með unga lesendur í hugaGaldrabrennurnar í gamla daga helguðust af því að fólk hugsaði of mikið um djöfulinn og það óttaðist að hann væri að ná tökum á mannfólkinu. Þetta sagði að minnsta kosti Brynjólfur Sveinsson, biskup í Skálholti, í bréfi sem hann skrifaði einum af prestum landsins árið ...
Orðið bóla getur átt við ýmislegt, til dæmis við svokallaðar unglingabólur sem myndast þegar fitukirtlar í húðinni stækka. Um þannig bólur er hægt að lesa meira um í svari við spurningunni Af hverju fær fólk bólur?
Svo getur bóla líka átt við tískusveiflur eða slíkt, til dæmis þegar við segjum 'þetta er bara bó...
Aðalástæðan fyrir þvi að við notum kúamjólk frekar til manneldis en mjólk annarra spendýra eða jórturdýra, er líklega sú að nyt kúa er mun meiri en annarra dýrategunda. Það er einfaldlega hagkvæmara að mjólka kýr en hryssur, því kýrnar mjólka meira.
Annars er mjólk annarra jórturdýra einnig notuð í einhverjum ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!