Upphafleg spurning var:Er búið að finna upp "eilífðarvél", það er vél sem er sjálfri sér nóg og gengur án ytri orkugjafa? Einhverntíma heyrði ég að svissnesk úrafyrirtæki, Jaeger-LeCoultre, hefði hannað klukku, Atmos, sem væri næst því að vera eilífðarvél því hún gengur fyrir breytingum í veðri, það er loftþrýstin...
Þýski eðlisfræðingurinn Max Karl Ernst Ludwig Planck (f. 1858 í Kiel, d. 1947 í Göttingen) er af flestum talinn faðir skammtafræðinnar. Árið 1900 setti hann fram tilgátu til að skýra hvernig dreifing rafsegulgeislunar frá heitum hlut á mismunandi bylgjulengdir er háð hitastigi hlutarins. Tilgátan fól í sér að orku...
Púki Maxwells er lítill djöfull sem var hugsaður til að ganga gegn grundvallarlögmálum eðlisfræðinnar. Frá því um 1950 hefur verið ljóst að eðli hans brýtur í raun ekki í bága við gild eðlisfræðilögmál.
Á 19. öld rannsökuðu eðlisfræðingar eðli hita, varma og véla. Út úr því spratt fræðigrein sem nefnist varmafræð...
Veðurfræðin er sú vísindagrein sem fjallar um ástand og eðli lofthjúpsins. Þessi grein rekur uppruna sinn til loka 19. aldar, þegar varmafræði og straumfræði voru orðnar nægilega þroskuð fræði til að menn teldu sig geta beitt þeim á lofthjúpinn. Lengi vel voru bættar veðurspár þungamiðja þróunar á þessu vísindasvi...
Eiturefni eru afar fjölbreytileg að gerð og uppruna. Paracelsus (1493-1541), sem hefur verið nefndur faðir nútíma lyfja- og eiturefnafræði, setti fram þá kenningu að öll efni væru í raun eitruð og það væri einungis spurning um skammta hvort þau yllu eitrunum eða ekki. Þó að langt sé um liðið síðan þessi kenning va...
Spyrjandi bætir við:... þá á ég við að við nýtum 5°C eins og 100°X á háhitasvæðum.Hér verður fyrst einföld og stutt útgáfa af svari, en neðar er ítarlegra svar.
Berum fyrst saman varmavél og vatnsorkuvirkjun. Í vatnsorkuvirkjun streymir vatn frá hærri þrýstingi til lægri þrýstings, rennur í gegn um hverfil og f...
Þessa spurningu má skilja á tvo vegu. Annars vegar gæti verið að spyrjandinn vilji vita hvort þau náttúrulögmál sem við þekkjum gildi alls staðar í heimunum eða séu bundin við tiltekin svæði, svo sem jörðina eða sólkerfið okkar. Hins vegar gæti verið að spyrjandinn sé að velta því fyrir sér hvort til séu staðir þa...
Orðin „kenning“ og „lögmál“ eru notuð með ýmsum hætti í daglegu máli. Ef við takmörkum okkur hins vegar við það hvernig hugtökin eru notuð innan vísinda má greina mikilvægan mun á kenningum og lögmálum. Fyrir það fyrsta er kenning almennara hugtak en lögmál í þeim skilningi að þótt ekki séu allar kenningar lögmál ...
Í stærðfræði og tengdum greinum getur hugtakið óreiða (e. entropy) vísað til nokkurra mismunandi hluta. Í upplýsingafræði er til dæmis talað um upplýsingaóreiðu sem er mat á lágmarksfjölda já/nei svara sem kóða ákveðnar upplýsingar. Miklar hagnýtingar felast í þessu þar sem upplýsingaóreiðan segir til um lágmarksf...
Baldvin Sigurjónsson (f. 1985) spurði líka: Hver er Newton og hvað gerði hann?
Með 'lögmálum Newtons' er venjulega átt við þrjú lögmál sem eru ævinlega kennd við hann og jafnvel ekki neitt annað. Þau eru þessi:Fyrsta lögmál Newtons, stundum einnig nefnt tregðulögmálið.
Annað lögmál Newtons (um kraft og hrö...
Nei, það er ekki hægt að brjóta náttúrulögmál. Það er einfaldlega í eðli slíkra lögmála að þau verða ekki brotin. Til að átta okkur á þessu þurfum við að byrja á því að skilja hvað náttúrulögmál eru.
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hver er munurinn á kenningu og lögmáli? eru lögmál kenningar sem lýs...
Vísindaheimspeki er viðfangsefni janúarmánaðar á Vísindavefnum. Þá reynum við að svara þeim fjölmörgu spurningum um eðli vísinda sem spyrjendur hafa sent vefnum.
Í fyrstu viku janúarmánaðar var aðallega fjallað um lögmál:
Hver er munurinn á kenningu og lögmáli?
Hvað er lögmál um framboð og eftirspurn í ha...
Daggarmark er sá hiti sem lækka þarf loft niður í við óbreyttan þrýsting og óbreytt rakainnihald til að rakinn í loftinu þéttist.
Ýmsar leiðir eru til að mæla raka í lofti og felst ein þeirra í að mæla hita á blautri dulu sem vafin er um kvikasilfurskúlu hefðbundins hitamælis. Sé loftið ekki mettað gufar vatn u...
Lögmál Newtons eru kennd við enska eðlis- og stærðfræðinginn Sir Isaac Newton (1642-1727). Þessi lögmál eru þrjú og öll aflfræði Newtons eða hefðbundin aflfræði er reist á þeim ásamt þyngdarlögmálinu. Fjallað er um hin lögmálin í öðrum svörum hér á Vísindavefnum.
Þriðja lögmál Newtons er stundum kallað lögmálið...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!