Perluhæna (Numida meleagris) er afrískur hænsnfugl. Upprunaleg heimkynni hennar eru víða á svæðum sunnan Sahara og á Madagaskar en fuglinn hefur einnig verið fluttur inn til sportveiða í Vestur-Indíum og Frakklandi.
Kjörlendi perluhænunnar eru heit og þurr svæði þar sem ekki er mikið um gróður svo sem á staktr...
Þormóðssker er á Faxaflóa út af Mýrum. Nafn þess er nefnt í Landnámabók og þar er skerið kennt við Þormóð þræl Ketils gufu og samkvæmt því frá landnámstíð (Íslenzk fornrit I, bls. 168-169).
Þormóðssker er syðsta og vestasta sker í skerjaklasa. Það er um 200 m á lengd, tæpir 100 m á breidd og 11 m á hæð yfir sj...
Á Jamaíku bjuggu 2.682.100 manns í lok árs 2007 samkvæmt upplýsingum frá hagstofu landsins.
Jamaíka er eyja sunnan af Kúbu. Höfuðborgin heitir Kingston. Eyjan er þriðja stærsta eyja Karíbahafs, 240 km að lengd, 80 kílómetra breið og 10.991 km² að flatarmáli. Hún er hálend eldfjallaeyja og þar er hitabeltisloft...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið „gródirskur“ eins og Þórbergur Þórðarson ritar oft í sínum bókum og bréfum?
Ég hygg að átt sé við lýsingarorðið gróteskur ‘fáránlegur, afskræmilegur, hlægilegur’. Það er tökuorð í íslensku, líklega úr dönsku grotesk eða þýsku grotesk. Í ensku og frö...
Fyrir eldgosið í Heimaey árið 1973 var eyjan um 11,20 km2. Strax eftir gos mældist eyjan um 13.44 km2 en síðan hefur hún minnkað eitthvað vegna rofs.
Heimaey.
Mesta lengd Heimaeyjar er frá NNA til SSV, það er frá Ystakletti til Stórhöfða. Fyrir gos var vegalengdin á milli þessara staða um 6,98 km og breyttist h...
Risaskjaldbakan (Geochelone elephantopus) er skjaldbökutegund af ætt landskjaldbaka. Karldýr af þessari tegund geta orðið rúmir 1,2 m á lengd og vegið allt að 227 kg.
Risaskjaldbakan lifir aðeins á Galapagoseyjum og er nú í útrýmingarhættu vegna ofveiði og vegna þess að búsvæði hennar hefur víða verið eyðilagt ...
Það dýr sem talið er að innbyrði mesta fæðu er steypireyðurin (Balaenoptera musculus).
Steypireyðurin er stærsta dýr jarðarinnar og geta þessir hvalir orðið rúmir 30 metrar á lengd og vegið allt að 180 tonn. Hún étur dýrasvif sem eru örlitlar krabbaflær sem fljóta um í efstu lögum sjávarins.
Talið er að f...
Meðgöngutími katta (Felis catus) er frá 63 dögum til 67 daga en dæmi eru um að læður hafi ekki gotið fyrr en eftir 70 daga. Slíkt er þó afar sjaldgæft.
Fyrstu merki um að læður séu orðnar kettlingafullar sjást þremur vikum eftir mökun. Þá verða spenarnir bleikir og hárin eyðast á litlu svæði umhverfis spenann...
Skógarþrösturinn, sem heitir Turdus iliacus á latínu, verpir í Norður-Evrópu og Síberíu, og er einnig nokkuð algengur á Íslandi. Hér á landi er hann að mestu leyti farfugl og fer til vetrarheimkynna í Vestur-Evrópu. Hann er um 21 cm á lengd.
Áreiðanlegar heimildir segja til um að hámarksaldur starra sé 20 ár o...
Búrhvalir (Physeter macrocephalus) vega á bilinu 20-50 tonn og eru 8-20 metrar á lengd. Svona stórar skepnur þurfa að hafa geysistórt og kröftugt hjarta til að dæla blóðinu um líkama dýrsins. Meðalþyngd búrhvalshjarta er um 125 kg eða svipað og lyftingamaður sem keppir í yfirþungavigt.
Þetta er þó ekki mikið ...
Stærsta froskategund í heimi er golíatfroskurinn (Conraua goliath) sem finnst villtur í vesturhluta Afríku, aðallega í Kamerún. Heildarlíkamslengd froska af þessari tegund er um 30 cm og geta stærstu einstaklingarnir vegið allt að 3,5 kg eða svipað og meðalstór heimilisköttur!
Golíatfroskur í allri sinni dýrð.
...
Glókollur (Regulus regulus) er minnstur evrópskra varpfugla, aðeins um 9 cm á lengd, með 13-15,5 cm vænghaf og vegur ekki nema 7-9 grömm.
Glókollur í Fossvoginum í Reykjavík.
Glókollurinn er mjög útbreiddur varpfugl í barrskógum og blönduðu skóglendi Evrasíu og virðist hann fylgja nokkurn veginn útbreiðslu þessa...
Spurningin í fullri lengd hljómar svona:
Er hægt að keppa í fegurð og eru fegurðarsamkeppnir og módelfitness íþróttagreinar? - Myndband
Þessari spurningu væri hægt að svara á einfaldan hátt: Hvorki fegurðarsamkeppni né módelfitness eru í raun keppnisíþróttir á Íslandi. Þær eru ekki skilgreindar af Íþrótta- ...
Alls eru þekktar rúmlega 3500 tegundir kakkalakka í heiminum. Kakkalakkar eru meðal frumstæðustu dýra og fundist hafa allt að 350 milljón ára gamlir steingerðir kakkalakkar. Karldýrin eru fleyg og hafa venjulega tvö pör af vængjum en kvendýrin eru oftast vænglaus eða hafa einhvers konar leifar af vængjum og er...
Já, gíraffar gefa frá sér hljóð. Þau eru hinsvegar lág, mynduð í kokinu, og heyrast varla og því hefur löngum verið haft fyrir satt að gíraffar væru hljóðlausir. Kálfarnar jarma líkt og lömb.
Gíraffar eru hæstu dýr jarðarinnar. Karldýrin geta orðið rúmlega 4 metra há (20 fet). Hæðina má þakka löngum fótum gíraf...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!