Spurningin sem svo var orðuð árið 2002 og höfundur svaraði þá á Vísindavefnum felur í sér tvær rangar fullyrðingar. Enn fremur hafa í millitíðinni komið fram nýjar upplýsingar um uppruna rykmítla í húsakynnum hérlendis þannig að rétt þykir að uppfæra svarið.
Í fyrsta lagi hefur orðið breyting á hugtakanotkun en...
Flestir telja að dýr hreyfi og ráði sér sjálf. En í lífheiminum er þekkt að lífverur nái valdi á dýri og geti stjórnað hegðan þess. Það er hins vegar afar sjaldgæft og dæmin um slíkt eru undantekningar.
Hárormar (e. hairworms) eru hryggleysingjar sem sýkja tiltekin skordýr, þar á meðal engisprettur. Hárormar þr...
Í dag eru engir bandormar landlægir í fólki á Íslandi, hvorki fullorðnir ormar né lirfustig þeirra sem kallast sullir. Fái menn í sig bandorm drepst hann fyrr eða síðar eins og allar aðrar lífverur og þá gengur hann niður með hægðum.
Það fer eftir stærð bandormanna hvort menn verða þessa varir en þegar margra ...
Plöntu- og dýrasvif eru smáar lífverur sem svífa um ofarlega í vatnsmassanum. Það sem greinir þær að er að plöntusvif flokkast til plantna sem stunda ljóstillífun en dýrasvif telst til dýra sem þurfa orku frá öðrum dýrum eða plöntum. Plöntusvif er frumframleiðandi líkt og landplöntur en dýrasvif eru ófrumbjarga lí...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Er nóg að taka hreiðrið í burtu og hreinsa svæðið til að losna við stara?
Hér er einnig svarað spurningunum:Hvenær myndast staralúsin?Eru starar friðaðir?Hvernig er best að losna við stara sem flytur í þakskeggið mitt?
Stari (Sturnus vulgaris) er þéttvaxinn dökkur spörfugl....
Sæhestar eru allar tegundir sjávarfiska af sérstæðri ætt sem nefnist á latínu Syngnathidae og undirættinni Hypocampinae eða sæhestaætt. Innan þessarar ættar er einnig hópur fiska sem nefnast á ensku pipefish eða pípufiskar, þeir eru mjóslegnir og langir og minna á sæhesta í útliti en eru flokkaðir í aðra undirætt ...
Stutta svarið er að mýflugur eru mikilvæg fæðutegund fyrir aðrar tegundir dýra. Ef mýflugur á Íslandi hyrfu mundi líka hverfa allur fiskur úr ám og vötnum.
Þótt ótrúlegt megi virðast gegna allar lífverur einhverju hlutverki hér á jörðinni. Þetta hlutverk er oft ekki augljóst fyrir okkur mennina, en í lí...
Lengsta núlifandi skordýr sem mælst hefur er af ætt förustafa, og er þá miðað við heildarlengd. Lengsti búkurinn er hins vegar á Herkúlesbjöllu af ættkvísl nashyrningsbjalla. Þyngsta bjallan er golíatsbjallan af sömu ættkvísl. Stærsta skordýr sem lifað hefur á jörðinni er tröllaslenja af ættbálki drekaflugna.
Þ...
Heitið mölur er stundum notað sem samheiti yfir fiðrildi sem lifa í húsum en þó er oftast átt við fatamöl eða stundum ullarmöl, tvær tegundir mölfiðrildaættar (Tineidae) hér á landi.
Fatamölur getur valdið miklum skaða á fatnaði og öðru í híbýlum manna sem gert er úr ull eða skinnum. Slíkt er þó ekki nærri ein...
Höfundi er ekki kunnugt um að skordýr ráðist á ánamaðka til þess eins að drepa þá en vissulega eru til skordýr sem éta ánamaðka.
Jarðvegsormar þeir sem við nefnum ánamaðka í daglegu tali, tilheyra allir ættinni Lumbricidae eða ánamaðkaætt og eru af flokki fáburstunga (Oligochaeta). Heimkynni ánamaðkaættar eru f...
Fæðuval refa er mjög breytilegt bæði eftir tegundum og búsvæðum. Dr. Páll Hersteinsson prófessor við Háskóla Íslands hefur gert viðamiklar rannsóknir á íslenska refnum eða melrakkanum (Alopex lagopus) og þá meðal annars skoðað fæðuvistfræði hans. Niðurstöður rannsókna sem gerðar voru á sýnum sem safnað var á áru...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Fann bjöllur með gylltan skjöld á víðiplöntu. Geturðu sagt mér hvaða bjalla þetta er og hvort hún er skæð fyrir gróðurinn?
Hér er væntanlega verið að tala um asparglyttu (Phratora vitellinae) sem er nýlegur landnemi hér á landi. Asparglytta er orðin afar algeng í trjágróðri ...
Hér er einnig svarað spurningunni: Hvað er veggjatítla, hvernig lítur hún út, hvernig hagar hún sé, hvernig er hægt að útrýma henni og hverjir eru helstu sérfræðingar okkur um hana?
Veggjatítla (Anobium punctatum) sem stundum er kölluð á ensku furniture beetle eða house borer, er skordýr af ætt bjalla (Coleopter...
Fílaveiki er landlæg víða í heiminum. Meira en milljarði manna í yfir áttatíu löndum stafar hætta af smiti. Árið 2000 höfðu 120 milljónir fengið sjúkdóminn og af þeim voru meira en 40 milljónir sem hlutu varanlega hömlun eða lýti af hans völdum. Um þriðjungur tilfella er á Indlandi og þriðjungur í Afríku, en önnu...
Spurninguna má skilja á tvo vegu, annars vegar að minna sé um hringorma í ýsu en þorski og hins vegar að þeir hringormar sem finnast í ýsu séu minni en í þorski. Eftirfarandi svar tekur til beggja spurninganna.
Svarið við síðari spurningunni er það að hringormar af sömu tegund eru ekki minni í ýsu en í þorski. ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!