Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Nú er vitað að heitt loft stígur upp og kalt loft leitar niður á við, hvernig stendur þá á því að það er kaldara uppi á fjöllum en niðri á láglendi?
Loftþrýstingur fellur með hæð. Við að lyftast þenst loft út þegar þrýstingur fellur. Varmi þess dreifist þar með á meira r...
Holdafar fólks ákvarðast af lifnaðarháttum og erfðum. Illa hefur gengið að finna þá erfðastofna sem ákvarða holdafar og þar með offitu en það kann að vera að breytast. Nýlega hefur tekist að finna erfðagalla sem veldur offitu í músum. Rannsóknir á þessum dýrum hafa aukið skilning manna á því hvernig holdafari er s...
Virðiskeðja er eitt af þeim fræðilegu lykilhugtökum sem mikið eru notuð í tengslum við stefnumótun og stefnumiðaða stjórnun fyrirtækja. Það má einnig nota hugtakið við greiningu á annars konar skipulagsheildum en fyrirtækjum, til að mynda nýtist það við stefnumótun opinberra stofnana og félagasamtaka.
Virðiskeð...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Góðan daginn. Mig langaði að forvitnast um halastjörnuna C/2022 E3 (ZTF) sem er nú sjáanleg og verður næst jörðu 1.feb. Í hvaða átt á að horfa til að sjá hana og hver er gráðutalan frá sjóndeildarhring svo ég viti hversu hátt/lágt hún verður á lofti? Og er einhver tími...
Rússland er langstærsta land heims, um 17.098.000 km2 eða nær tvöfalt stærra en Kanada sem kemur þar á eftir. Landið er þó aðeins í áttunda sæti yfir fjölmennustu ríki heims með rúmlega 143 milljónir íbúa. Stærsti hluti Rússlands tilheyrir Norður-Asíu en svæðið vestan Úralfjalla tilheyrir Evrópu eins og lesa má um...
Ársreikningur er árlegt reikningsuppgjör fyrirtækis eða stofnunar. Um ársreikninga hér á landi gilda lög nr. 3/2006 og þar er hugtakið glögg mynd útskýrt á eftirfarandi hátt:
Glögg mynd felst í áreiðanlegri framsetningu á áhrifum viðskipta, öðrum atburðum og skilyrðum í samræmi við skilgreiningar og reglur um ...
Þegar gos hófst á hafsbotni sunnan við Vestmannaeyjar í nóvember 1963 gafst einstakt tækifæri til að fylgjast með hvernig ný eyja verður til. Um var að ræða neðansjávargos á 130 metra dýpi og fylgdust jarðfræðingar vel með framgangi gossins strax í upphafi. Gossaga Surtseyjar er því vel þekkt og ítarlega skráð.
...
Upprunalega spurningin var:
Eru til makkalaus karlljón í Afríku eins og mannæturnar í Tsavo?
Karlljón eru einu kattardýrin sem skarta makka enda er glæsilegur makki án efa eitt af því fyrsta sem kemur upp í hugann í tengslum við útlit ljóna. Makkinn nær yfir afturhluta höfuðsins, hálsinn, axlir og brjóst. H...
1. Inngangsorð
Ef maður ætlar að fara tiltekna vegalengd í rigningu og logni þá lendir minna vatn á manninum eftir því sem hann hleypur hraðar.
Mannslíkamar eru flóknir hlutir og innbyrðis ólíkir, ganga eða hlaup er flókin hreyfing og rigning getur líka verið margs konar, ekki síst hér á Íslandi. Aðferð eðli...
Hefðbundnar tölvur
Vinnsluminni venjulegrar tölvu er mælt í bætum. Algengt er til dæmis að heimilistölva nú á dögum hafi 64 megabæti í vinnsluminni [Í dag(23. júlí 2010) er um 2 gígabæt algengt]. Hvert bæti er sett saman úr 8 bitum. Hver biti getur tekið gildið 0 eða 1. Áætla má að í 64 MB sé hægt að geyma 16 m...
Greindarpróf sýna meðal annars talsverða fylgni, sem kallað er, við almennan námsárangur manna eða gengi í almennum skólum. Þau nýtast því til dæmis vel við greiningu og meðferð námserfiðleika. Hins vegar hefur ekki tekist að gera próf sem segi fyrir um árangur á tilteknum, afmörkuðum sviðum eins og tónlist eða íþ...
Alsameinaðar sviðskenningar (e. grand unified theories, GUT) ganga út á að sameina þrjár af fjórum víxlverkunum í náttúrunni í eina kenningu. Þær eru veika og sterka víxlverkunin auk rafsegulvíxlverkunarinnar.
Snemma á nítjándu öld var talið að rafmagn og segulmagn væru ótengd fyrirbæri; annað hefði eit...
Þótt hugtakið „heimsbókmenntir" sé teygjanlegt og umdeilt, þá er svarið við þessari spurningu ótvírætt „já".
Það var einkum þýska skáldið Goethe sem kom þessu hugtaki í umferð á Vesturlöndum. Hann segir til dæmis á einum stað að skáldskapurinn sé sameign mannkynsins, öllum sé hollt að svipast um meðal fjarlæg...
Þetta er góð spurning og varðar grundvallaratriði í stjarnvísindum því að fjarlægð stjarna og vetrarbrauta skiptir að sjálfsögðu sköpum þegar menn meta mikilvæga eiginleika þeirra, svo sem raunverulega birtu. Í stuttu máli má segja að menn beiti mjög mismunandi aðferðum við þetta eftir því hver fjarlægðin er. Það ...
[Föstudagssvar, sjá niðurlagið].
Upphafleg spurning var því sem næst sem hér segir:Hvernig má skilgreina kynorku? Hver er uppruni hennar og notkunarmöguleikar, hagkvæmni og umhverfisáhrif?Kynorka er sú orka sem fylgir kyninu eins og hreyfiorka er orka sem fylgir hreyfingu, vatnsorka er orka vatnsins og efnaorka...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!