Brjóstahaldarar eru notaðir til að halda brjóstum stöðugum og lyfta þeim eða móta á annan hátt. Einnig segja sumir að brjóstahaldarar geti komið í veg fyrir að brjóstin sígi með aldrinum, en þetta er þó ekki vel staðfest.
Stórbrjósta konum finnst oft nauðsynlegt að vera í brjóstahaldara þar sem hann veitir stu...
Við höfum gert grein fyrir ýmsum grundvallaratriðum loftbelgja í svari okkar við spurningunni Hvaða gas var notað í loftskip? Hyggilegt kann að vera að lesa það svar áður en lengra er haldið hér.
Loftbelgir eru belgir með léttu gasi, nógu léttu til að belgurinn í heild, með umbúðum, farmi og farþegum, geti lyfs...
Reikistjörnurnar í sólkerfinu okkar eru átta talsins. Til að reikna út ummál plánetu sem væri sett saman úr þessum átta reikistjörnum þurfum við að vita þvermál eða geisla (radíus) nýju plánetunnar. Þvermál nýju plánetunnar er hægt að reikna út frá rúmmáli hennar, sem fæst með því að leggja saman rúmmál reikistjar...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:Hvernig lýsir slit í liðamótum sér, hvað veldur og er eitthvað hægt að gera í því? Getur það lagast? (Ólafur Björnsson)Hvað er slitgigt og hefur hún hraða útbreiðslu í liðum? Hverjar eru líkur á bata? (Soffía Kristín Hjartardóttir)
Slitgigt er algengasti sjúkdómurinn í liðum. ...
Hér er nauðsynlegt að gera sér fyrst skýra grein fyrir hvað átt er við með því að lyftan þyngist. Þyngd hlutar er sama og þyngdarkrafturinn sem verkar á hlutinn og er í beinu hlutfalli við massa hlutarins. Þyngd lyftuklefans breytist því ekki við nein uppátæki manna inni í lyftunni, og þyngd þeirra breytist ekki h...
Eldgos eru flokkuð á ýmsa vegu. Einna algengast er að nota aðferð George P.L. Walker, en hann flokkaði eldgos í hawaiisk (basísk hraungos), stombólsk (sprengivirk hraungos), vúlkönsk (stopul sprengivirkni með eða án hraungúls) og plínísk (sem hafa verið nefnd þeytigos á íslensku). Einnig eru tveir flokkar þar sem ...
Já, í stuttu máli sagt, er hægt að auka testósterónframleiðslu líkamans með mataræði og æfingum.
Testósterón er helsta karlkynhormónið og er myndað í millifrumum eistnanna. Það stuðlar að myndun sáðfrumna og karlkyneinkenna, kynhvöt og aukningu vöðva- og beinmassa. Það getur einnig haft góð áhrif á ýmsa andlega...
Þrýstingur (e. pressure) er skilgreindur sem kraftur á flatareiningu, það er newton á fermetra, og er hann táknaður með bókstafnum p. Auðvelt er að reikna þrýsting á ákveðnu dýpi h í vökva eða gasi með tiltekinn eðlismassa ρ (ρ er gríski bókstafurinn "hró" eða "ró" og SI-einingin fyrir eðlismassa er kg/m...
Sú kenning er hvað vinsælust meðal fræðimanna að skepna nokkur sem þeir nefna mesonychid, hafi leitað í vatn fyrir um 55 milljónum ára og af þessari skepnu séu allir hvalir komnir. Mesonychid er undarlegt dýr, líkist helst lágfættum úlfi með hófa. Af tönnum þess að dæma át það aðallega kjöt. Ástæðuna fyrir því að ...
Hryggsúlan er sett saman úr 26 smábeinum sem kallast hryggjarliðir og brjóskþófum sem tengja beinin saman. Þessir þættir raðast upp í súlu sem umlykur mænuna og styður við efri hluta líkamans. Hryggnum er gjarnan skipt í eftirtalda hluta: hálshluta, sem samanstendur af 7 hálsliðum
brjósthluta, sem myndaður er a...
Typpi (getnaðarlimur, reður) er hólklaga líffæri sem gegnir því hlutverki að koma sáðfrumum inn í leggöng þannig að frjóvgun geti átt sér stað og nýr einstaklingur orðið til. Það er einnig leið þvags út úr líkama karla.
Typpi skiptist í rót, bol og kóng og er gert úr þremur risvefjum (e. erectile tissue). Tve...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Nú spurði dóttir mín mig hvernig ættarnöfn urðu til og af hverju?
Elsta ættarnafnið, sem vitað er til að hafi verið notað hérlendis, er Vídalín. Það tók Arngrímur Jónsson lærði (1568–1648) upp á 17. öld og notaði það við stöku tækifæri. Barnabörn hans völdu það síðan sem...
Ólafur Rastrick er dósent í þjóðfræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur lagt stund á rannsóknir á menningarsögu og þjóðfræði nítjándu og tuttugustu aldar. Meðal viðfangsefna hans má nefna rannsóknir á menningarpólitík, menningararfi, líkamsmenningu og ómenningu.
Í bókinni Háborgin: M...
Guðmundur Jónsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann lauk BA-námi í sagnfræði og þjóðfélagsfræði við Háskóla Íslands 1979 og cand. mag. prófi í sagnfræði við sama skóla 1983. Á árunum 1978-1987 kenndi Guðmundur í menntaskólum en hóf síðan doktorsnám í hagsögu við London School of Economics and Poli...
Gosmökkur er blanda gjósku, vatnsgufu, annarra kvikugasa og lofts. Í sinni einföldustu mynd er hann þrískiptur. Neðsta hluta hans mætti kalla gasspyrnuhluta, miðhlutann uppdrifshluta og efsta hlutann kúf. Þessi skipting skýrist af því hvaða kraftar knýja einstaka hluta makkarins.[1]
Kvikuhólf, eldfjall og gosm...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!