Ammonítar eða ammonshorn er undirflokkur sælindýra af flokki kolkrabba. Þeir eru með klefaskipta, oft kuðungslaga, ytri skel. Ammonítar voru sunddýr og flestar tegundirnar með mikla landfræðilega útbreiðslu. Ammonítar þróuðust hratt og mikið var um nýmyndun og útdauða tegunda, einkum á miðlífsöld. Þeir eru því víð...
Eins og staðan er í dag (apríl 2006) eru harla litlar líkur á að þú smitist af fuglaflensunni.
Í fyrsta lagi smitast fuglaflensan ekki á milli manna.
Í öðru lagi hefur flensan ekki enn greinst í fuglum á Íslandi þó líkur á að hún berist fljótlega hingað til lands hafi aukist verulega eftir að svanur drapst ú...
Silfurbrami (Pterycombus brama) er fiskur af bramaætt (Bramidae). Innan íslensku fiskveiðilögsögunnar hafa veiðst þrjár tegundir af þessari ætt og er stóri bramafiskur (Brama brama) algengastur. Heildaraflinn er þó ekki mikill, aðeins fáein tonn hin síðari ár.
Silfurbrami (Pterycombus brama).
Fiskar af þessari ...
Höfundur Njálu er óþekktur. Hvergi í handritum sögunnar né í neinum fornum heimildum er þess getið hver hafi skrifað hana. Sagan sjálf gefur heldur engar upplýsingar sem geti leyft ótvíræða ályktun um þetta.
Á síðari tímum hafa margar tilraunir verið gerðar til að leiða líkur að því hver höfundurinn sé. Í formá...
Þar sem oft er kalt í veðri þegar fólk sér norðurljósin, telja margir að þarna sé eitthvað orsakasamband á milli, en svo er ekki. Grunnskilyrði fyrir því að sjá norðurljósin eru annars vegar að það sé nægilegt dimmt og hins vegar að himinninn sé nægilega heiður, það er að ský byrgi ekki sýn.
Á Íslandi er fyrra ...
Granít er grófkristallað, kísilríkt (SiO2 = 70%) djúpberg með steindasamsetningu nálægt 25% kvars, 40% alkalífeldspat, 26% plagíóklas og 5-6% bíótít og/eða amfiból.
Granít er helsta bergtegund meginlandsskorpunnar. Lengi voru uppi deilur meðal bergfræðinga um uppruna þess og tókust þar á tvær meginkenningar; a...
Besta ráðið til þess að koma í veg fyrir sólbruna er að forðast sólina, til dæmis með því að hylja húðina með fatnaði, nota hatt og sólgleraugu þar sem sólin getur einnig skaðað augun. Ef það er ekki gert eða gerlegt af einhverjum ástæðum þá er mjög mikilvægt að nota sólvörn til þess að draga úr líkum á að skaða h...
Ágæt skilgreining á fíkn er eftirfarandi:Ákveðin hegðun, til dæmis að drekka áfengi, verður einstaklingnum miklu mikilvægari en áður og mikilvægari en önnur hegðun sem áður skipti máli. Hegðun er haldið áfram þrátt fyrir að hún valdi einstaklingnum skaða.
Það er ekki vitað fyrir víst af hverju sumir verða “fíklar...
Engar líkur eru á að sólin geti horfið skyndilega. Hún er af þeirri gerð sólstjarna sem brenna vetnisforða sínum á mjög löngum tíma, líklega nálægt 10 milljörðum ára, og er ekki nema miðaldra um þessar mundir.
Þegar hún hefur brennt öllu vetni sínu mun hún hins vegar þenjast út og verða að svokölluðum rauðum r...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Af hverju stafar ofvirkni í börnum?
Eldist ofvirkni af börnum sem eru með hana eða fylgir hún barninu alla ævi?
ADHD er skammstöfun fyrir Attention Deficit Hyperactivity Disorder. Á íslensku hefur þetta heilkenni verið nefnt athyglisbrestur með ofvirkni, skammstafað AMO ...
Að meðaltali fæðast rúmlega 4 börn á sekúndu einhvers staðar í heiminum. Mestar líkur eru á að þessi börn séu í Asíu þar sem meira en þriðjungur allra barna fæðist þar. Á sama tíma deyja að meðaltali tæplega 2 manneskjur. Það þýðir að á hverjum sólarhring fjölgar mannkyninu um rúmlega 200.000.
Til samanburða...
Vísindamenn vita ekki nákvæmlega hvað veldur ísöldum en nokkrir þættir sem þar koma við sögu eru meðal annars þeir að geislun sólar breytist reglubundið, efni frá eldgosum geta hindrað inngeislun sólar og hafstraumar geta breyst skyndilega.
Hægt er lesa meira um þetta í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurnin...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Er hægt að spá fyrir um hvort að komandi vetur verður harður eða mildur með lengri fyrirvara? Er einhver fylgni milli t.d. sumars og veturs eða þá milli ára (t.d. ef tveir mildir vetur í röð auki líkur á hörðum vetri).
Því miður er ekki enn hægt með vissu að sjá fyrir fram hvo...
Leifar örvera hafa fundist með vissu í jarðlögum sem eru um 3100 milljón ára gömul og mjög sterkar líkur eru á því að þær megi líka greina í 3450 milljón ára gömlum jarðlögum. Þessi gömlu jarðlög eru í Ástralíu og Suður-Afríku. Menn hafa reyndar fundið enn eldri en ekki alveg örugg merki um líf í um 3800 milljón á...
Dvergur er oftast skilgreindur sem einstaklingur sem er lægri en 147 cm á fullorðinsaldri. Ensku orðin "dwarf", "midget" og "pygmy" eru öll þýdd með íslenska orðinu dvergur. Til eru orðin skógardvergur og dvergsvertingi yfir þá sem nefnast pygmy á ensku og einnig er orðið íslenskað sem pygmýi.
Brjóskkyrkingur e...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!