Orðasambandið að mata krókinn ‛hagnast, einkum fjárhagslega, draga til sín, misnota aðstöðu’ þekkist frá fyrri hluta 19. aldar. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er úr kvæði eftir Benedikt Gröndal eldri í ljóðabók sem gefin var út 1833:ad hann brudli med óforstandi,
ellegar vilji mata krók.Samb...
Konur fremja að jafnaði ekki nema um 10-20 prósent af öllum afbrotum þegar skoðaðar eru opinberar afbrotaskýrslur. Hlutfallið er þó breytilegt eftir brotaflokkum.
Afbrot kvenna tengjast yfirleitt minniháttar auðgunarbrotum einsog hnupli, þjófnaði, skjalafalsi eða svokölluðum afbrotum án þolenda (e. victimless ...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Mig langar að vita um helstu orsakir heimilisofbeldis og hversu algengt það er hérna á Íslandi? Og hverjir gerendurnir eru og þolendur?
Almenna hugmyndin um heimilisofbeldi er líkamlegt ofbeldi milli fullorðinna einstaklinga sem eru í sambúð eða deila heimili. Þess vegna er ein...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hversu mikið er vitað um heimilisofbeldi á Íslandi? Hversu algengt er talið að það sé?
Rannsóknir á heimilisofbeldi á Íslandi eru hvorki margar né fjölbreyttar. Nokkuð er til af eigindlegum viðtalsrannsóknum við þolendur og rannsóknum á viðbrögðum opinberra aðila.[1] Hins vega...
Mér er ekki kunnugt um orð sem notað er um eiginkonu frænda eða eiginmann frænku einhvers. Mágur, mágkona, svili og svilkona eru nær í skyldleikaröðinni.
Mágur er samkvæmt Íslenskri orðabók (2002:971) ‘karlmaður þannig tengdur þeim sem talar eða rætt er um (karli eða konu) að hann er bróðir maka hans (hennar) ...
Hér er einnig svarað spurningu Önnu Andrésdóttur og Axels Fannars: Hvað er algengt að kóngulær lifi lengi?Á Íslandi lifa kóngulær að jafnaði í eitt til tvö ár. Í hitabeltislöndum verða kóngulær mun eldri; tarantúlur geta til að mynda orðið 15 ára.
Kóngulær verða kynþroska eftir að síðustu hamskiptum er lokið....
Orðið maki er notað um annað hjóna eða sambúðarfólks, hvort sem um er að ræða karl eða konu, en einnig um dýrapar. Önd, sem ekki hefur náð sér í maka að vori, syndir um makalaus. Maki á sér samsvaranir í grannmálunum, til dæmis í færeysku maki, nýnorsku og sænsku make.
Makalaus önd?
Af allt öðrum uppruna er ...
Meðvirkni er hugtak sem mest hefur verið notað kringum vímuefnamisnotkun. Meðvirkur einstaklingur er einstaklingur sem er "háður" öðrum einstaklingi eða einstaklingum. Þeim meðvirka finnst hann eða hún vera fastur/föst í sambandi, sem einkennist af misnotkun og stjórnsemi. Þetta eru oft einstaklingar sem hafa léle...
Upprunlega spurningin hljóðaði svo:Góðan dag! Karlmaður fellur frá á besta aldri. Hann á engin börn og engan maka en íbúð og peninga í banka. Foreldrar hans eru á lífi en móðir hans hefur verið í 20 ár á heilsustofnun (hún er út úr heiminum). Hann á líka þrjá bræður á lífi. Hver erfir hann?
Hér skiptir máli hva...
Flestar kenningar um sorgina fjalla um viðbrögð þess sem verður fyrir áfalli og missi. Í rannsóknum síðari ára hefur sjónum verið meira beint að aðstæðum og áhrifaþáttum í lífi hvers og eins. Þessir þættir geta bæði verið verið verndandi og eyðileggjandi.
Til að mynda leita menn svara við spurningum sem þessum...
Margir halda að réttaráhrif óvígðrar sambúðar séu hin sömu og hjúskapar, að minnsta kosti þegar óvígð sambúð hefur staðið í einhvern tíma. Í grundvallaratriðum er því þó ekki þannig farið, þrátt fyrir að á undanförnum árið hafi löggjafinn reynt að jafna mun á milli þessara sambúðarforma. Um óskráða sambúð gildir e...
Gert er ráð fyrir því í spurningunni að 2 þriðjuhlutar eigna skuli alltaf ganga til lögerfingja. Það er ónákvæmt. Lögerfingjar eru þeir erfingjar sem erfa arfleifanda (hinn látna) ef engri erfðaskrá er til að dreifa. Ef arfleifandi á maka eða niðja ganga eignir hans til þeirra. Sé engum maka eða niðjum til að drei...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Er það ekki rétt hjá mér að þegar sagt er að 'skel hæfi kjafti', þá sé það yfirleitt í neikvæðri merkingu? Og af hverju er orðatiltækið dregið?
Orðasambandið þar hæfir skel kjafti er í þessari mynd kunnugt frá 19. öld. Fleiri afbrigði eru til af því og er hið elsta í Ritm...
Nokkur pörunarmynstur eru þekkt í náttúrunni. Í fyrsta lagi er það svokallað einkvæni (e. monogamy). Einkvæni kallast það þegar dýr velja sér annað dýr til pörunar á hverju pörunartímabili en halda að því loknu í sitt hvora áttina. Í öðru lagi er það svokallað fjölkvæni (e. polygyny). Fjölkvæni kallast það þegar ...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Hefði ekki verið hægt fyrir Bjarna og Steinunni á Sjöundá að fara fram á skilnað við maka sína í stað þess að myrða þá?
Svo að byrjað sé á byrjuninni eru ótraustar og mótsagnakenndar heimildir um hjónaskilnaðarrétt Íslendinga í heiðni. Í Brennu-Njáls sögu segir frá Þráni Sig...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!