Meginuppistaða mannslíkamans eru fjögur frumefni. Fyrst má nefna súrefni (O) sem er um 65% af heildarmassa okkar. Hátt hlutfall súrefnis þarf ekki að koma á óvart þar sem um 60% af líkamsþyngd okkar er vatn en súrefni ásamt vetni mynda vatn.
Næst á eftir súrefni kemur kolefni (C) en það er um 18,5% af líkamsþy...
Í svari Hauks Más Helgasonar við spurningunni Hvenær var Einstein uppi? kemur meðal annars fram:Einstein bjó í München mesta bernsku sína, með foreldrum sínum. Hann olli þeim áhyggjum því að hann var seinþroska. Sem barn átti hann erfitt um mál, var lítt gefinn fyrir leiki og leiddist í skóla.Einstein sýndi ekki á...
Fyrr á tímum, þegar fólk var almennt bænræknara en nú gerist, leitaði það til Guðs um hjálp og styrk við erfiðleikum, sjúkdómum og öllu því sem það hrjáði. Það bað Guð um hjálp til að lifa sönnu kristnu lífi og breyta rétt gagnvart öðrum. Vissulega gera margir þetta enn, en upphrópunin ,,Guð hjálpi þér” heyrist sj...
Þyngdarkrafturinn á tungluni er ekkert skrýtnari eða öðruvísi en annars staðar. Á tunglinu verkar alveg sami þyngdarkraftur og á jörðinni en eini munurinn er sá að þyngdarkrafturinn á tiltekinn hlut á tunglinu er miklu minni en á sama hlut á jörðinni og hluturinn virðist því léttari þar en við yfirborð jarðar.
...
Ástæða þess að fólk má ekki borða fyrir svæfingu er sú að við innleiðslu svæfingar slaknar á öllum vöðvum, þar með talið vöðvum sem stjórna kyngingu og annarri starfsemi í koki.
Sjúklingur getur kastað upp eftir innleiðslu svæfingar og ef maginn er fullur getur innihaldið gubbast upp í kok og farið þaðan niður...
Draugasteinn og glerhallur eru íslensk nöfn á kalsedón (chalcedony), sem er fínkristallað eða myndlaust form af kísli (SiO2). Glerhallar með mislitum láréttum röndum nefnist ónyx en með sammiðja hringlögum agat. Glerhallar eru mjög algengir sem holufyllingar hér á landi, en einna þekktastur fundarstaða er Glerhall...
Framsögn er mjög einstaklingsbundin og tilefni misjöfn. Stundum hentar að tala hægt til að leggja áherslu á það sem verið er að segja en aðeins stutta stund. Hraðmæli er sjaldan ákjósanlegt. Of hægur upplestur og ofskýrmæli missa marks vegna þess að hætt er við að athygli áheyrenda dofni. Of hraður og óskýr lestur...
Állinn (Anguilla anguilla) byrjar lífsferil sinn í Þanghafinu sem er í suðvestanverðu Norður-Atlantshafi. Hann lifir hins vegar mestan aldur sinn í ósöltu vatni þar sem hann nærist og vex.
Állinn (Anguilla anguilla).
Það má segja að állinn éti allt það sem að kjafti kemur og hann ræður við. Meðal annars leg...
Neglur á mönnum hafa að ýmsu leyti gegnt svipuðu hlutverki hjá mönnum og klær hjá öðrum dýrum. Neglur og klær geta til dæmis gagnast til að grípa betur utan um hluti og meðhöndla þá. Einnig er hægt að klóra aðra líkamshluta með nöglum og það er líka hægt að beita þeim í átökum við aðra.
Við mennirnir beitum þ...
Orðið hland í sambandinu að fá hland fyrir hjartað merkir ‛þvag’ en hland er einnig notað um lélegan drykk eins og til dæmis þunnt kaffi. Óvíst er um aldur orðasambandsins en elstu heimildir í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru frá síðari hluta 20. aldar. Merkingin er annars vegar að ‛fá væga hjartak...
Orðið skar hefur fleiri en eina merkingu:
brunninn kveikur á kerti,
dauft blaktandi ljós,
hrumur maður.
Að taka af skarið merkir bókstaflega það að fjarlægja brunninn enda kveiks á kerti til þess að loginn verði hærri og betri.
Við fyrstu merkinguna er átt í orðasambandinu að taka af skarið. Bókstaflega merki...
Upprunalega spurningin hljómaði svona:
Er það málfræðilega rétt að segja að það sé kjöt á fiski? Það er að segja að þegar maður verkar fiskinn sé flakið kallað kjöt.
Orðið kjöt er langoftast notað í merkingunni 'hold (einkum af spendýrum)’. Í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er aðeins ein heimild um að kjöt sé...
Lítill munur er á merkingu orðanna hvílíkur og þvílíkur þegar þau eru notuð í merkingunni 'slíkur, þess konar' til þess að tjá undrun eða gremju: ,,þvílík/hvílík vitleysa“, ,,þvílíkur/hvílíkur asni“.
Hvílíkur úrslitaleikur og þvílík tilþrif hjá Götze!
Þvílíkur, eða fremur hvorugkynsmyndin þvílíkt, er notað ...
Túlka má muninn á kaþólskum sið og lútherskum svo að trú hins lútherska sé huglæg – ósýnileg – og undir honum einum komin en trú kaþólskra sé að nokkru hlutlæg – hún sést – er fólgin í réttum verkum. (Trúaður lútherskur maður vinnur þó rétt verk, en hann dæmist ekki af þeim og trú hans ræðst ekki af þeim.) Þetta e...
Hér verður einnig svarað spurningunum:
Hvað sagði Platon um hugtök og hvernig tengjast hugtökin frummyndunum? (Ásta Björk, f. 1987)
Hvaða þýðingu hafði frummyndakenning Platons fyrir siðfræði hans? (Páll Gunnarsson)
Hver var frummyndarkenningin? (Kristján Óskar, f. 1986)
Með spurningu sinni vísar spyrjandi...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!