Forskeytið tera- stendur yfirleitt fyrir billjón, það er milljón milljónir. Forskeytið mega stendur fyrir milljón. Því gæti virst sem eitt terabæt séu nákvæmlega milljón megabæti. En svo er ekki.
Minnsta eining upplýsinga í tölvu er biti. Biti hefur ýmist gildið 0 eða 1. Átta bitar í röð nefnast bæti. 01001110 ...
Margmiðlun er í raun sú aðferð að nota tvo eða fleiri miðla saman til að koma efni á framfæri. Þessir miðlar geta verið hljóð, myndir, kvikmyndir, texti, tónlist, gröf eða annað slíkt. Oftast þegar rætt er um margmiðlun er átt við margmiðlun í tölvum. Hún felur í sér getu tölva til að samþætta ofangreinda miðla í ...
Vísindamenn telja að í mannsheila séu líklega um 100 milljarðar heilafruma. Hver heilafruma tengist að meðaltali 3000 öðrum og tengingar á milli fruma í heilanum eru því eitthvað um 100 billjónir! Hver tenging getur síðan tekið nokkur gildi, sumir telja jafnvel að gildin gætu verið allt að 10. Sé það rétt þá erum ...
Samkvæmt lista sem Mannheim- og Tennessee-háskólarnir gefa út er bandarísk tölva sem nefnist ASCI Red öflugasta tölva heims í júní 2000. Hún er með 9632 stykki af Pentium II Xenon 333 MHz örgjörvum, 606 GB innra minni og 12,5 TB diskpláss.
Mannheim-háskóli og Tennessee-háskóli gefa út tvisvar á ári lista ...
Því sem næst sömu reglur gilda um heiti forskeyta á stærðum í tölvum og í metrakerfinu að öðru leyti. Þannig er talað um kíló- fyrir þúsund, mega- fyrir milljón og svo framvegis. Þó ber að hafa tvennt í huga.
Í fyrsta lagi eru tölvur byggðar upp á tvíundakerfi og því kemur talan 1024 í stað 1000, en 1024 er ei...
Nettengingar eru æði misjafnar og því er von að spurningar vakni um hraða þeirra, sérstaklega ef einingarnar bitar og bæti eru ekki alveg á hreinu.
Í svari Hauks Más Helgasonar við spurningunni Hvað er eitt terabæti mörg megabæti? segir meðal annars:Minnsta eining upplýsinga í tölvu er biti. Biti hefur ýmist gi...
Hefðbundnar tölvur
Vinnsluminni venjulegrar tölvu er mælt í bætum. Algengt er til dæmis að heimilistölva nú á dögum hafi 64 megabæti í vinnsluminni [Í dag(23. júlí 2010) er um 2 gígabæt algengt]. Hvert bæti er sett saman úr 8 bitum. Hver biti getur tekið gildið 0 eða 1. Áætla má að í 64 MB sé hægt að geyma 16 m...
Upphafleg spurning var svona:
Ég hef heyrt að með því að stækka innra minni í tölvu þá aukist afkastagetan. Er þetta rétt? Eða á þetta eingöngu við þegar mörg forrit eru opin í einu og skiptir engu máli þegar verið er að vinna í einu forriti?
Í afar stuttu máli sagt þá er þetta rétt. Meira minni eykur afkast...
Harði diskurinn og disklingar tilheyra svokölluðu ytra minni í tölvu. Ytra minnið geymir gögn, forrit og næstum allt það sem á að varðveita eftir að slökkt hefur verið á tölvunni.
Á hörðum diskum og disklingum eru segulsvið og járnseglandi efni notuð til að skrá upplýsingar. Járnseglandi efni hafa þann eiginlei...
Það má líta á BIOS (Basic Input/Output System) eða grunnstýringarkerfi sem mjög einfalt stýrikerfi sem er á öllum PC-tölvum. Það er brennt inn í minni tölvunnar og því er yfirleitt ekki breytt.
Helsta hlutverk BIOS forritsins er að keyra tölvuna upp þegar kveikt er á henni. Þegar örgjörvi fær straum eftir að þa...
Torrent eða BitTorrent er samskiptastaðall til skráaskipta yfir Netið. Enska orðið torrent þýðir meðal annars stríður straumur eða flóð og er einnig notað um hellirigningu. Torrent-tæknin byggist á svokallaðri deilitækni (e. Peer-to-peer, P2P) sem gengur út á að notendur sækja og senda gögn beint sína á milli án þ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!