Elstu heimildir um sögnina murka virðast vera frá 19. öld samkvæmt Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans. Merkingin er ‘sarga í sundur, skera með bitlausum hníf, tálga eitthvað niður’. Þannig merkir að murka úr einhverjum lífið að drepa hann hægt og seint. Notkunina má vel sjá af eftirfarandi dæmum sem öll er að finna í...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið „fisjað"? Notað einu sinni í svari hér á Vísindavefnum: „Okkur er ekki fisjað saman!"
Sögnin að fisja er aðeins notuð í orðasambandinu einhverjum er ekki fisjað saman í merkingunni ‘einhver er traustur, sterkbyggður’ sem þekkist frá 19. öld. Einnig kemur fyrir...
Samkvæmt heimildum tekur prjón ekki að tíðkast hérlendis fyrr en á 16. öld. Það kemur ekki fyrir í fornu máli. Af nafnorðinu prjónn ‘teinn úr málmi (eða tré), stuttur málmpinni með haus á enda’ er leidd sögnin að prjóna og af henni nafnorðið prjón (Ásgeir Blöndal Magnússon 1989: 724–725). Í Ritmálssafni Orðabókar ...
Í heild hljóðar spurningin svona:Hvaðan kemur nafnið „Síða“ sem nafn á tiltekinni sveit í Vestur-Skaftafellssýslu og hver er upphafleg merking þess?
Síða er eldfornt örnefni yfir byggðarlag í Vestur-Skaftafellssýslu. Nafnið kemur þegar fyrir í Landnámabók og Íslendingabók Ara fróða. Það merkir bókstaflega „hlið...
Nafnorðið úlfúð merkir ‘fjandskapur, óvinátta’. Það er samsett úr úlfur og úð ‘hyggja, hugarfar, hugð’, eiginlega ‘sá sem hefur hugarfar úlfs’.
Samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989:1081) er orðmyndin orðin til í áherslulausum viðliðum samsettra orða, það er orðið til úr hugð sem aftu...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Hver er uppruni orðsins köflótt og til hvaða mynstra nær hugtakið? Getur skákborð verið köflótt?
Lýsingarorðið köflóttur er leitt af nafnorðinu kafli 'hluti af einhverju, þáttur í bók, tímabil'. Það er myndað með viðskeytinu –óttur og hljóðvarpi rótarsérhljóðs (a > ö).
O...
Orðasambandið að tefla við páfann merkir ‘að ganga örna sinna, kúka’. Elst dæmi um það í ritmálssafni Orðabókarinnar er frá miðri 19. öld í bréfi frá Jónasi Hallgrímssyni. Af sama tagi eru orðasamböndin að heimsækja páfann, að tala við páfann og að gjalda páfanum skatt og eru þau öll yngri. Einnig er talað um að t...
Talið er að ítalska fánann megi rekja til komu Napóleons Bónaparte, hershöfðingja og verðandi keisara Frakklands, til Ítalíu árið 1797. Ítalski fáninn samanstendur af þremur litum; grænum, hvítum og rauðum. Bæði rauði og hvíti liturinn koma úr fána Mílanóborgar en sá græni kemur frá fylkingu Langbarða (e. Lombardy...
Orðasambandið að velgja einhverjum undir uggum er notað í merkingunni ‛þjarma að einhverjum, láta einhvern finna fyrir valdi sínu’. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans um orðtakið er úr Skírni frá 1839:Áli jarl hafði í hyggju að velgja Tirkjum undir uggum.
Halldór Halldórsson getur sér þess til í ...
Orðið kuml í merkingunni ‛gröf’ þekkist í fornum bókmenntum enda er það notað um þann sem var jarðaður að heiðnum sið. Það var haft um hauga, minnisvarða og yfirleitt um legstað sem var ofanjarðar. Í kuml var oft lagt svokallað haugfé en það gat verið ýmislegt fémætt eða hinum látna mikils virði eins og vopn...
Upphaflega spurningin hljóðaði svo:Hvort er réttara að tala um puru eða pöru, sérstaklega í samhenginu purusteik eða pörusteik?
Nafnorðið para hefur fleiri en eina merkingu. Það getur merkt ‘flus, hýði, ysta laga á kjöti eða fiski’ og fleira. Það þekkist í málinu allt frá 17. öld. Aukaföllin eru pöru (u-hljóðva...
Orðasambandið að láta skeika að sköpuðu í merkingunni ‘að láta fara sem vill’ þekkist þegar í fornu máli og má finna dæmi um það í ýmsum fornsögum, til dæmis í 22. kafla Egils sögu:
Enga vil eg nauðungarsætt taka af konungi. Bið þú konung gefa oss útgöngu. Látum þá skeika að sköpuðu (Ísl.s. bls. 391).
Um fle...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hver er uppruni orðsins lúsablesi? Hvað merkja orðin lúsa og blesi þarna?
Orðið lúsablesi virðist samkvæmt heimildum koma upp um miðja 20. öld sem skammaryrði um ómerkilegan mann en einnig um lúsugan mann. Það er samsett úr orðunum lús ‘lítið sníkjudýr sem heldur sig á mönnum,...
Við þessari einföldu spurningu er til einfalt svar. Það er vegna Ungmennafélagsins Sindra.
Sindri var stofnaður árið 1934 á Höfn í Hornafirði og hefur síðan þá verið miðpunktur í félagsstarfi og íþróttalífi bæjarins. Sindrabragginn eða Bíóbragginn hýsti fyrstu félagsaðstöðuna sem tekin var í notkun 1944 og ger...
Spurningin í heild hljóðar svona:Tengist bílda germanska orðinu Bild? Hver er uppruni þess og hvar er samsvörun íslenska orðsins mynd að finna í indóevrópskum málum?
Ekki er að sjá að íslenska orðið bílda ‘breiðöxi’ tengist þýska orðinu Bild ‘mynd’. Um mynd segir í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússo...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!