Svarið við spurningu þessari er alls ekki einhlítt og fer töluvert eftir því hvaða skilning spyrjandinn leggur í orðið „friðarhreyfing“. Afar margir kjósa að kalla sig friðarsinna, enda munu flestir taka frið fram yfir stríð - að minnsta kosti í orði. Þannig hafa grimmilegustu stríð og ofbeldisverk sögunnar verið ...
Það er rétt að sólstjörnur, reikistjörnur og tungl eru yfirleitt sem næst kúlulaga, að minnsta kosti ef við sleppum áhrifum möndulsnúnings og sjávarfallakrafta. Þetta svar fjallar eingöngu um þessa hnöttóttu hluti himingeimsins.
Stjörnur eru gerðar úr gasi. Yfirborð tungla og reikistjarna eins og jarðarinnar er...
Kabbala er dulhyggjustefna í Gyðingdómi. Örðugt er að fullyrða hvenær hún kom fram því að hún var lengi vel aðeins ætluð fáum innvígðum og varðveittist fyrst og fremst í munnlegri hefð. Í bókinni The Secret Doctrine of the Kabbalah: Recovering the Key to Hebraic Sacred Science eftir Leonoru Leet, er því haldið fra...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Leifar snareðlu (Velociraptor) hafa fundist í jarðlögum frá efri hluta krítartímabils í Rússlandi, Mongólíu og Kína. Aldur þeirra er talinn vera 80-85 milljónir ára. Fyrstu leifarnar fann H.F. Osborn í Mongólíu árið 1924, en nú eru þekktar leifar að minnsta kosti 12 dýra.
Snareðla tilheyrir skriðdýraættbálknum...
Það er rétt að kvikmyndastjörnur í Hollywood fá margfalt hærri laun en starfsystkin þeirra á Íslandi, jafnvel meira fyrir eina kvikmynd en bílfarmur af íslenskum leikurum fær fyrir alla starfsævina. Hins vegar er ekki þar með sagt að leikarar í Ameríku fái almennt hærri laun en hérlendis. Það eru ekki allir stjörn...
Svarið við fyrri spurningunni er já, háhyrningar eru sérstök tegund hvala og nefnis á fræðimáli Orcinus orca.
Lausleg skilgreining á hugtakinu tegund er afmarkaður hópur lífvera, hvort sem um er að ræða jurtir eða dýr, sem eru í meginatriðum eins að útliti og líkamsgerð og geta átt saman frjó afkvæmi. Háhyrnin...
Til að geta svarað þessari spurningu þurfum við að vita tvennt: hvað það er sem við skynjum með skilningarvitum okkar og hvert hið rétta eðli heimsins er. Hið fyrrnefnda hafa heimspekingar átt í nokkrum vandræðum með að koma sér saman um en þó getum við gert okkur vonir um að finna svarið með því að rýna nógu miki...
Hið svonefnda lögmál Murphys (e. Murphy's Law) hljóðar svona á ensku:If anything can go wrong, it will.Á íslensku er hefð fyrir því að þýða það eitthvað á þessa leið:Ef eitthvað getur farið úrskeiðis, mun það gera það.
Nokkrar tilgátur er á kreiki um hvers vegna lögmál þetta var eignað manni að nafni Murphy og ei...
Spyrjandi bætir við:Hvaða dýrategundum hefur maðurinn útrýmt og hverjar hafa bara bókstaflega dáið út? Vegna breytts loftslags til dæmis?
Þessari spurningu er ekki auðsvarað því að margir þættir geta legið að baki útrýmingu dýrategunda. Þó má ætla að sú útrýmingaralda sem við upplifum nú um stundir megi rekja bei...
Hér er einnig svarað spurningunum:Hvernig kemur brjóstamjólk í veg fyrir að ungbörn veikist? Er móðurmjólkin hollari en kúamjólk eða þurrmjólk?
Móðurmjólk er fullkomin fæða fyrir ungbörn. Í henni eru (í hárréttum hlutföllum) öll þau næringarefni sem ungbörn þarfnast, það er sykrur, prótín, fita, vítamín og stei...
Rúmmál Íslands ofansjávar er um 50.000 km3 þar sem flatarmál landsins er 103.000 km2 og meðalhæð Íslands yfir sjó er um 0,5 km. Framleiðsla gosbergs í eldgosum miðað við síðustu 10.000 ár er hins vegar áætluð um 4,3 km3 á öld. Þetta svarar til þess að 43.000 km3 af gosbergi hafi myndast á milljón árum (m.á.), sem ...
Upprunalega spurningin hjóðaði svona:Getið þið sagt mér eitthvað um erfðafræði íslenska melrakkans, til dæmis hvernig litarhaft erfist? Einnig hvort tófan hefur blandast alaskaref/silfurref.
Áður en lengra er haldið er nauðsynlegt að skýra út tvö algeng hugtök í erfðafræðinni, svipgerð (e. phenotype) og arfgerð (...
Við þessari spurningu væri hægt að gefa einfalt svar: Já, það er óhjákvæmilegt. Skoðum það aðeins nánar.
Við alla brennslu myndast mengandi efni í nokkrum mæli. Við brennsluna myndast fínt ryk eða sót og gastegundir eins og koltvíoxíð, kolmónoxíð, nituroxíð og brennisteinstvíoxíð. Reykurinn frá eldi af þessu t...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!