Vogin er eitt ógreinilegasta stjörnumerki dýrahringsins svonefnda. Engar goðafræðilegar sagnir eru taldar tengjast merkinu en þess má þó geta að vogin er tákn réttlætis. Hinn frægi forn-gríski stjörnufræðingur Ptólmæos sagði merkið vera hluta af Sporðdrekanum, klær hans, en stjörnurnar σ (Sigma) Librae, e...
Skjaldarmerkið er hvorki framan á né aftan á íslensku einnar krónu myntinni. Á framhliðinni er mynd af bergrisa úr landvættamerkinu, en á bakhlið er þorskur.
Á 5, 10, 50 og 100 króna peningum eru allar landvættirnar fjórar á framhliðinni en ekki skjaldarmerkið. Hins vegar var algengt að hafa skjaldarmerkið á ...
Hárin á skíðum hnúfubaka og annarra skíðishvala gegna mikilvægu hlutverki í fæðunámi þeirra. Skíðin eru föst við efri kjálka dýranna og sú hlið skíðanna sem snýr inn að munnholi er alsett hárum. Hnúfubakurinn hefur 330 pör af skíðum. Þau eru um 60 cm á lengd og rúmir 30 cm á breidd þar sem þau eru breiðust.
Hér s...
Skjaldbökur hafa skjöld til að verjast hugsanlegum afræningjum, eða dýrum sem ætla að éta þær. Skjaldbökur eru hægfara og geta ekki hlaupið undan rándýrum og því hafa þær þróað með sér skjöld sem rándýr eiga afar erfitt með að vinna á.
Skjöldurinn er í reynd hluti af beinagrind skjaldbökunnar og samanstend...
Bæði bensín og dísilolía eru unnin úr hráolíu og þegar hráolía er hreinsuð fæst einnig úr henni flugvélabensín, jarðgas og tjara sem notuð er í malbik. Rúmlega tvo lítra af hráolíu þarf til að vinna einn lítra af bensíni.
Það er hægt að búa til bensín með aðferðum efnafræðinnar en til þess þarf eiginlega jafnmi...
Tunga gíraffans er dökk á lit en misjafnt er eftir heimildum hvernig henni er lýst. Hún er ýmist sögð vera dimmsvört, svarblá, fjólublá eða jafnvel blá að lit, en gera má ráð fyrir að þarna sé um einhvern breytileika að ræða líkt og með flest annað í lífríkinu.
Gíraffinn notar langa tungu sína til að slíta lauf...
Orðið heimur kemur fyrir í nokkrum orðtökum þar sem fyrir koma tveir heimar. Fyrir utan þau sem nefnd eru í fyrirspurninni eru til dæmis vera milli heims og Heljar, vera milli tveggja heima og vita hvorki í þennan heim né annan.
Hugmyndin er rakin til þeirrar fornu trúar að við dauðann komist menn í eitthvert ...
Efnið sem kemur upp í eldgosum er misheitt og ræður þar miklu hver samsetning þess er. Kvikan sem kemur upp er gjarnan flokkuð eftir því hversu mikið kísilsýrumagn hún inniheldur.
Heitasta kvikan er basísk kvika en hún inniheldur minnst af kísilsýru. Basalthraun, algengasta tegund hrauna á Íslandi, eru einmitt...
Vöxtur grenitrjáa fer bæði eftir því hvaða grenitegund á í hlut og hvernig vaxtarskilyrði trésins eru. Sólskin, rakastig, jarðvegur, rými og margt fleira getur haft áhrif á hversu hratt tré vaxa.
Taka má dæmi um sitkagreni (Picea sitchensis), en það er stærsta tegund grenitrjáa og er í hópi með hraðvöxnustu tr...
Slagari er tökuorð í íslensku sennilega úr dönsku slager sem aftur tók orðið að láni úr þýsku Schlager. Elsta dæmi í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er frá 1944 og er orðið haft í gæsalöppum sem oftast bendir til að um aðkomuorð sé að ræða sem ekki er talið fullgildur gegn í málinu.
Orðið slagari varð fyrst til...
Hvirfilbyljir eða skýstrókar eru ógnarhvassar en smáar hringiður í neðsta hluta gufuhvolfsins, sumir hafa kannski séð hvirfilbylji í bíómyndum. Fellibyljir eru hins vegar víðáttumikil óveður sem ná frá yfirborði jarðar upp að veðrahvörfum. Það er algengt að skýstrókar myndist í fellibyljum.
Skýstrókar og fellib...
Sambandið að detta í það er ekki gamalt í málinu um að neyta áfengis ríkulega oftast samfara einhverri skemmtun en þó ekki alltaf. Margur dettur í það einn með sjálfum sér.
Elstu dæmi Orðabókar Háskólans eru frá síðari hluta 20. aldar en sambandið getur vel verið eitthvað eldra. Í Íslenskri orðabók (2002: 213)...
Örgjörvi (e. processor/CPU) notar tíðnigjafa til að búa til púlsað klukkumerki. Þessi tíðnigjafi kallast oscillator crystal og er oftast gerður úr kristal. Örgjörvinn notar þetta klukkumerki til að stýra allri sinni innri vinnslu.
Bakhlið (til vinstri) og framhlið (til hægri) örgjörva.
Örgjörvar eru seldir for...
Mikið hefur borið á á ýmiss konar heimsendaspám sem allar eiga það sameiginlegt að spá fyrir um endalok heimsins árið 2012. Nákvæmlega hvernig heimurinn mun farast og af hvaða ástæðum fer svo nokkuð eftir spánni hverju sinni. Í sumum spám kemur fram að heimsendir verði vegna kjarnorkustríðs; í öðrum er því spáð að...
Ekki er mikið um að karl- og kvenfuglar séu greindir að með mismunandi heitum. Undirritaðri er ekki kunnugt um að kvenhrafninn eigi sérstakt heiti. Það á aftur á móti við um kvenörninn sem kölluð er assa. Æðarkollan er nefnd æður en karlfuglinn bliki og æðarbliki. Meðal annarra andfugla ber karlinn heitið steggur ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!