Breiðafjörður og Faxaflói eru hlutar af sömu lágsléttu sem er aðallega tilkomin vegna þess að landið sígur smám saman í hafið eftir því sem það fjarlægist heita reitinn — 2 cm á ári til vesturs en sama sem ekkert til austurs. Einnig á rof af völdum ísaldarjökla og öldugangs sinn þátt í myndun þessarar lágsléttu se...
Til úlfalda teljast tvær tegundir, kameldýr (Camelus bactrianus) og drómedarar (Camelus dromedarius). Kameldýr eru með tvo hnúða á baki og lifa í Mið-Asíu en drómedarar hafa aðeins einn hnúð og lifa í norðanverðri Afríku og í Arabíu.
Það er algengur misskilningur að hnúðarnir séu fylltir vökva og nýtist þess ve...
Örlaganornirnar þrjár, eða skapanornirnar, heita Urður, Verðandi og Skuld. Urður er norn fortíðar og elst af þeim öllum. Nafn hennar merkir "það sem orðið er". Verðandi, "hin líðandi stund", er norn nútímans og Skuld, "það sem skal gerast" (samstofna sögninni "að skulu"), er norn framtíðar.
Samkvæmt norrænn...
Athugasemd ritstjórnar: Þegar þetta svar var upphaflega skrifað var Plútó flokkaður sem ein af reikistjörnum sólkerfisins. 24. ágúst árið 2006 samþykkti Alþjóðasamband stjarnfræðinga aftur á móti nýja skilgreiningu á reikistjörnum. Plútó fellur ekki undir hana og telst nú til dvergreikistjarna. Reikistjörnurnar er...
Andlitið á Mars, sem sást á mynd sem Viking 1 geimfarið tók árið 1976 af Cydoníu-svæðinu, er ekkert annað en vindsorfin hæð og leikur ljóss og skugga.
Á myndinni sést það sem mörgum finnst við fyrstu sýn vera mannsandlit. NASA sendi myndina til fjölmiðla því að menn töldu að hún væri til þess fallin að vekja a...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Geta flóðhestar lifað á Íslandi? Ef svo er, er þá hægt að eiga þá svona eins og gæludýr?
Sjálfsagt er hægt að halda flóðhest hér á landi við manngerðar aðstæður innandyra og hluta úr ári utandyra. Flóðhestar virðast að minnsta kosti þrífast ágætlega í dýragörðum víða um heim ...
Orðið ninja merkir sá sem iðkar ninjutsu en það er heiti á austurlenskri bardaglist sem hægt er að þýða sem 'list hins ósýnilega'. Ninjur voru félagar í japönskum leynisamtökum sem stofnuð voru fyrir árið 1500. Þær voru aðallega njósnarar, en líklega voru þær einnig fengnar til að ráða menn af dögum og vinna ýmis ...
Sjálfsvíg ungs fólks hefur verið samfélagslegt vandamál í mörg ár. Tíðni sjálfsvíga hjá fólki á aldrinum 15 - 24 ára hefur aukist á Íslandi undanfarna tvo áratugi, eins og víðast hvar annars staðar í hinum vestræna heimi. Heildartíðni sjálfsvíga á Íslandi er þó svipuð og í mörgum öðrum vestrænum löndum.
Í s...
Hér er gengið út frá því að spurt sé um fuglsegg en margar mjög smáar lífverur, svo sem krabbaflær og aðrir smásæir hryggleysingjar, verpa einnig eggjum.
Sá fugl sem að jafnaði verpir minnstum eggjum er tegundin sólbríi (Mellisuga minima) sem er af ætt kólibrífugla (Trochilidae). Sólbríinn lifir í skóglendi, (...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Hafa reglur um sögnina að hlakka til breyst í tímanna rás. Var t.d. einhvern tímann rétt að segja "mig hlakkar til"?Sögnin að hlakka hefur allt frá fornu máli verið notuð í fleiri en einni merkingu. Í fyrsta lagi um garg eða gjall í ránfugli, örninn hlakkar yfir bráðinni. Í ...
Grápadda, eða grálodda eins og hún er einnig kölluð, er ekki skordýr heldur krabbadýr af flokki jafnfætla (Isopoda).
Innan yfirættbálks grápaddna eru þekktar um 3000 tegundir. Flestar þeirra lifa í heitum og rökum regnskógunum, en útbreiðsla yfirættbálksins teygir sig þó bæði norður og suður á bóginn. Grápöddu...
Orðið supernova kemur upphaflega úr latínu og er samsett úr tveimur liðum. Sá fyrri, super-, merkir 'yfir-' eða 'ofur-', en sá seinni, -nova, þýðir 'ný' og er stytting á nova stella, 'ný stjarna'. Á íslensku er supernova kölluð sprengistjarna og lýsir það heiti ágætlega þessu fyrirbæri.
Fyrir um 400 árum síðan ...
Það getur verið léttskýjað í Reykjavík í sunnanátt en það er sjaldgæft. Til að svara spurningunni verðum við fyrst að ákveða hvaða sunnanáttir á að telja. Stundum hagar til dæmis þannig til að Reykjavík er í skjóli Esjunnar þegar norðanátt er ríkjandi á Vesturlandi. Átt getur þá verið breytileg á höfuðborgarsvæðin...
Kínamúrinn var byggður í áföngum á löngum tíma og hefur raunar oft verið endurbyggður.
Allnokkrir múrar voru reistir á 7. til 4. öld f.Kr. Á 3. öld f.Kr. lét svo Qin Shihuang, þáverandi keisari Kína, tengja mörg varnarvirki saman í eitt. Þetta mannvirki sem kalla mætti fyrsta Kínamúrinn er ekki lengur til.
...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!