Orðið skíthæll virðist koma fram í málinu í lok 19. aldar. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er frá 1899 og elsta heimild á vefnum timarit.is er úr blaðinu Fjallkonunni frá 1905. Í báðum tilvikum er farið með orðið eins og vel þekkt skammaryrði þannig að reikna má með að það hafi verið þekkt í talmáli ...
Upphaflega spurningin hljóðaði svo:Hvort er réttara að tala um puru eða pöru, sérstaklega í samhenginu purusteik eða pörusteik?
Nafnorðið para hefur fleiri en eina merkingu. Það getur merkt ‘flus, hýði, ysta laga á kjöti eða fiski’ og fleira. Það þekkist í málinu allt frá 17. öld. Aukaföllin eru pöru (u-hljóðva...
Orðasambandið að láta skeika að sköpuðu í merkingunni ‘að láta fara sem vill’ þekkist þegar í fornu máli og má finna dæmi um það í ýmsum fornsögum, til dæmis í 22. kafla Egils sögu:
Enga vil eg nauðungarsætt taka af konungi. Bið þú konung gefa oss útgöngu. Látum þá skeika að sköpuðu (Ísl.s. bls. 391).
Um fle...
Upprunalega spurningin var:
Hver er uppruni þess að nota orðið "kúla" þegar verið er að tala um milljón?
Að því er mér skilst kom orðið kúla í merkingunni ‘milljón’ fram á árunum 2007–2008 eða jafnvel aðeins fyrr. Orðið í þessari merkingu er því ekki í Íslenskri orðabók en ekki heldur í Íslenskri nútímamáls...
Lengsti sannanlegi aldur villtra hrafna (Corvus corax) samkvæmt merkingu á unga úr hreiðri og endurheimt þegar hann drapst eru 20 ár og 5 mánuðir. Þetta var fugl sem merktur var í Finnlandi.
Hrafn (Corvus corax).
Hæsta staðfesta aldri álftar (Cygnus cygnus) í Evrópu náði fugl sem Sverrir Thorstensen merkti s...
Skjaldbökur eru frumstæð skriðdýr af ættbálknum Chelonia. Í dag er talið að þekktar skjaldbökutegundir séu alls 348 og 119 undirtegundir. Af þessum tegundum eru aðeins sjö tegundir svokallaðra sjávarblaka, aðrar lifa í fersku vatni eða á landi. Helsta einkenni skjaldbaka er vitanlega skjöldurinn sem umlykur skrok...
Orðið gengilbeina var upphaflega notað sem ambáttarheit. Í 10. erindi Rígsþulu, sem er eitt Eddu-kvæða, segir:
Þar kom at garði gengilbeina, aurr var á iljum, armr sólbrunninn, niðrbjúgt er nef, nefndisk Þír.
Þír í síðasta vísuorðinu þekktist í fornu máli í merkingunni ‘ambátt’, skylt þý og þjóna.
Í nútím...
Orðið saltari er haft um bók með Davíðssálmum eða sálmabók, yfirleitt með nótum.
Samkvæmt Íslenskri Orðsifjabók er saltari tökuorð úr fornensku, saltere sem er komið úr latína og þaðan úr grísku en þar er það tengt orðinu psállein sem merkir 'leika strengleik' og var upphaflega notað um strengjahljóðfæri sem lí...
Þessari spurningu er nánast ómögulegt að svara. Mörg tungumál eru lítið eða nánast ekkert rannsökuð og oft er ekki vitað hve málhafarnir eru margir, það er að segja hve margir nota tungumálið. Þetta á til dæmis við um ýmis indíánamál í Mið- og Suður-Ameríku. Vitað er til þess að inflúensa lagði nær alla íbúa þorps...
Sá siður að kenna karla og konur við feður sína, og í sumum tilvikum við mæður ef feður voru látnir, var ríkjandi á öllum Norðurlöndum á landnámsöld. Íslendingar einir hafa haldið þessum sið, þótt einstaka fjölskylda tæki upp ættarnöfn einkum á 19. öld. Ný ættarnöfn voru síðan bönnuð með lögum frá 1925 þar sem ráð...
Íslenski hundurinn er talinn skyldastur norska búhundinum og hann barst líklega til Íslands með landnámsmönnum. Hann var lengi notaður í smalamennsku en er núna vinsæll fjölskylduhundur.
Íslenski fjárhundurinn nýtur töluverðar sérstöðu enda var afbrigðið lengi einangrað frá öðrum afbrigðum.
Íslenski fjárhun...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hver er uppruni orðsins lúsablesi? Hvað merkja orðin lúsa og blesi þarna?
Orðið lúsablesi virðist samkvæmt heimildum koma upp um miðja 20. öld sem skammaryrði um ómerkilegan mann en einnig um lúsugan mann. Það er samsett úr orðunum lús ‘lítið sníkjudýr sem heldur sig á mönnum,...
Orðið hlandbrenndur finnst ekki í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans og ekki í Íslenskri orðabók sem gefin var út af Eddu 2002. Aðeins ein heimild var á Tímarit.is í skammargrein í Dagblaðinu Vísi í nóvember 2009 þar sem maður var sagður hafa grenjað eins og hlandbrenndur krakki. Aftur á móti þekkist orðið hlandbrunn...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Þegar barn er skírt eða nefnt tveimur nöfnun eða fleirum hvort er þá rétt að segja;
a) Innilegar hamingjuóskir með nafnið.
b) Innilegar hamingjuóskir með nöfnin.
Engar fastar reglur eru til um þetta. Líklega segðu flestir við foreldrana: „Til hamingju með nafnið...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Afhverju kallast kínakladdi, kínakladdi? Þ.e. svörtu harðspjalda bækurnar með rauðu hornunum og línustrikuðum blaðsíðum?
Skýringin á nafninu kínakladdi mun vera sú að þessar harðspjalda, línustrikuðu minnisbækur, svartar að lit með rauðum kili og rauðum hornum, fluttust...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!