Fyrst er nauðsynlegt að segja nokkur orð um vetni, einföldustu frumeindina.
Algengasta form vetnis hefur eina rafeind sem sveimar um eina róteind í kjarna. Í loftkenndu ástandi myndar vetni tvíatóma sameind, H2. Vetni er mjög hvarfgjarnt við súrefni og það brennur með mikilli varmamyndun og umbreytist í vatnsg...
Afbrigði veira eru skilgreind út frá mismun í erfðaefni þeirra.[1] Veirur fjölga sér kynlaust og stökkbreytingar sem verða í erfðaefni þeirra geta haft áhrif á hæfni þeirra í lífsbaráttunni. Þrátt fyrir dramatískt nafn eru stökkbreytingar aðeins frávik í erfðaefni sem geta haft jákvæð, neikvæð eða engin áhrif á hæ...
Kettir sem og önnur spendýr af ætt rándýra (Carnivora) eru með hærri líkamshita en við mennirnir. Samkvæmt rannsóknum er eðlilegur líkamshiti heimiliskatta að meðaltali 37,8-38,9 °C eftir því hvenær sólarhringsins hann er mældur.
Mynd: HB
...
Þegar þurrkað er út með strokleðri myndast eins konar mylsna. Hún hefur ekkert eitt sérstakt heiti en orð sem ég hef fundið um þetta eru:dustkusk mylsna
Hægt er að lesa meira um strokleður á Vísindavefnum í svörum við spurningunum:Hver fann upp strokleðrið? eftir Fríðu Rakel LinnetHvernig verkar strokleður? eft...
Hér er einnig svarað spurningum Birgis Haukssonar:
Hvernig er kenningin í skammtafræði um að hlutur geti verið á 2 stöðum á sama tíma? Hvaða rit eru til á íslensku, á mannamáli, um skammtafræði?
Skammtafræði er í grundvallaratriðum frábrugðin klassískri eðlisfræði. Það helgast af því að þessar tvær kenningar...
Það voru eitt hundrað sæti við hringborðið hjá Artúr konungi samkvæmt Le Morte d'Arthur eftir Sir Thomas Malory frá 1485, en sú bók er aðalritið um Artúr (3. bók, 1. kafli).
Sjá meira um enskar riddarasögur í svari Terry Gunnells við spurningunni Voru Camelot og Excalibur til?
Mynd af Hringborði Artúrs...
Makedónía var hluti af Júgóslavíu þar til sjálfstæði var lýst yfir árið 1991 og því voru stjórnendur þess hinir sömu og í Júgóslavíu. Tæplega er hægt að tala um að einræðisherra hafi ríkt í Júgóslavíu eftir dauða Títós árið 1980 fyrr en Slóbodan Mílosjevits fer að láta til sín taka við lok 9. áratugarins. Stofnun ...
Fyrir allnokkrum árum var spurst fyrir um íslensk hundanöfn í hljóðvarpsþætti Orðabókar Háskólans um íslenskt mál. Talsvert barst af svörum sem varðveitt eru á stofnuninni. Eftir því sem ég best veit safnar Hundaræktarfélag Íslands hundanöfnum og í bókinni Íslenski fjárhundurinn, sem gefin var út 1999, er einnig l...
Orðið pylsa er tökuorð í íslensku, líklegast úr dönsku pølse. Í nýnorsku og færeysku þekkist myndin pylsa, í sænsku pölsa og í sænskum mállýskum pylsa. Það þekkist í málinu frá því á 17. öld. Miðað við uppruna er rétt að skrifa pylsa með -y- en orðmyndin pulsa er framburðarmynd, hugsanlega fyrir áhrif frá dönsku. ...
Víkur með þessu nafni eru kenndar við svera trjáboli, bolunga, sem rekið hefur á land. Eðlilegra þætti ef til vill að kenna þær við marga bolunga og hafa þá nafnið án –r-, Bolungavík. En í Landnámabók er Bolungarvík við Ísafjarðardjúp nefnd svo og þykir því rétt að hafa þá nafnmynd. Eðlilegt er að rita Bolungarví...
Í svari við spurningunni Hvernig myndast hraunhellar? kemur fram að hraunhellar eru rásir sem hraunbráðin rann eftir og tæmdust síðan.
Surtshellir, lengsti og nafntogaðasti hellir á Íslandi, er hraunhellir. Hann er í Hallmundarhrauni sem talið er vera frá 10. öld eins og lesa má um í svari við spurningunni Er ...
Broddgöltur ættaður frá Skotlandi.
Broddgeltir (Erinaceidae) finnast ekki í íslenskri náttúru. Hins vegar hafa þeir mjög mikla útbreiðslu á heimsvísu og finnast á stórum svæðum í Asíu, Afríku og Evrópu. Þar með talin eru svæði í nágrannlöndum okkar eins og Danmörku, víða í Skandinavíu og á Bretlandseyjum.
E...
Orðið þollur hefur fleiri en eina merkingu. Ein þeirra er ‘keipur’ en með því orði er átt við umbúnað á borðstokki báts sem árin er lögð í við róður. Annað orð um það sama er samsetta orðið áraþollur. Árin er lögð í áraþoll þegar róið er.
Orðabók Háskólans á engin dæmi um orðið flóapollur og ekki fannst það í út...
Orðið bóhem er tökuorð, komið í íslensku úr dönsku boheme og merkir ‘léttúðarmaður, lausingi, maður sem telur sig ekki bundinn af hefðbundnum reglum’.
Í dönsku er það tekið að láni úr frönsku bohème í merkingunni ‘sígauni’. Upphaflega var átt við mann frá Bæheimi en þaðan kom fjöldi sígauna til Vestur-Evrópu....
Í gömlum ævintýrum eru oft sagðar sögur af tröllum sem verða að steini, steinrenna, þegar sólin nær að skína á þau. Í tilraunaverkefni á Hellisheiði, svokölluðu CarbFix-verkefni, hefur hópur vísindamanna og verkfræðinga fangað aðflutt koltvíoxíð og koltvíoxíð frá Hellisheiðarvirkjun og breytt því í stein. Koltvíox...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!