Gulu loðnu flugurnar sem sitja oft í miklum fjölda á mykjuskán í haga heita mykjuflugur (Scathophaga stercoraria). Þessar gulu eru karlflugurnar, en með þeim á skítnum eru kvenflugur sem minna fer fyrir, enda grænmóskulegar og falla betur að umhverfinu. Reyndar er breytileikinn mikill, bæði hvað stærð og skýrleika...
Þegar minnst er á útflutning á vörum til Afríkuríkisins Nígeríu þá dettur sjálfsagt langflestum í hug skreið og það ekki að ósekju. Lengi vel var skreið helsta útflutningsvara til Nígeríu en á seinni árum hafa þurrkaðir fiskhausar sótt í sig veðrið.
Lengst af hefur fiskur verið þurrkaður úti hér á landi en á sí...
Menn hafði lengi grunað að á Títan, stærsta tungli Satúrnusar, væri að finna höf eða að minnsta kosti stöðuvötn. Strax við komuna til Satúrnusar sýndu ratsjármyndir Cassini-geimfarsins og loftmyndir Huygens-lendingarfarsins, greinileg merki um að einhvers konar vökvi hefði runnið um ísilagt yfirborð Títans. Aftur...
Á vef Mennta- og menningarmálaráðuneytisins má finna lista yfir allar stofnanir á hennar vegum. Þegar þetta er skrifað í júní árið 2010 má sjá að í Reykjavíkurborg eru starfræktir 94 leikskólar, 46 grunnskólar, 11 framhaldsskólar og 3 háskólar. Auk þess eru 25 tónlistarskólar. Þannig eru 179 skólar af öllum skólas...
Í dag eru hreindýr aðeins á Austurlandi en svo var ekki alltaf. Hreindýr voru flutt til Íslands frá norður Noregi í fjórum hópum á árunum 1771-87. Þrír fyrstu hóparnir sem fluttir voru til landsins, það er að segja til Vestmannaeyja og Rangárvallasýslu árið 1771, Reykjaness árið 1777 og til Norðurlands árið 1784, ...
Hér er rétt að telja að um tvö tungumál sé að ræða. Háþýska er tungumál ekki mállýska. Lágþýska (þ. Plattdeutsch/Niederdeutsch, e. Low German) er töluð á landssvæðunum í Norður-Þýskaland. Það er nokkuð umdeilt hvort lágþýska er sjálfstætt tungumál en hún hefur verið viðurkennd af Evrópuráðinu sem tungumál (Evrópus...
Orðið fuð merkir ‚kvensköp‘ en í þessum örnefnum er merkingin ‚(kletta)gjögur‘ (Ásgeir Blöndal Magnússon, 214).
Þórður Tómasson í Skógum kallar Gunnufuð og Mangafuð bergskoru (Þórsmörk, 61).
Á vef Útisvistar er að finna leiðarlýsingu inn á Goðaland. Þar segir:
Hvannárgil skiptist innar í Norðurgil og Suður...
Rangár eru nokkrar á landinu:Á sem kemur af Rangárdal í Miðdölum í Dalasýslu og rennur í Hörðudalsá að vestanverðu (Dalasýsla, 34).
Á í Ljósavatnshreppi (ÁM og PV Jarðabók XI, 116 o. víðar).
Á suður af Bárðardal (Þingeyjarsýslur, 98).
Á sem rennur úr Sandvatni og niður í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu. (Land...
Með borgarís eða borgarísjaka er einvörðungu átt við ís sem á uppruna sinn að rekja til jökuls á þurru landi. Þegar skriðjökull nær í sjó fram brotnar smám saman framan af jöklinum. Háreistur borgarís myndast þá og tekur að reka á haf út. Fyrr eða síðar brotnar borgarísinn og úr verða borgarbrot sem bráðna síðan í...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað er skötufótur? Samanber: þegir barn er það nagar skötufótinn.
Í riti Lúðvíks Kristjánssonar, Íslenzkir sjávarhættir, (IV:352) segir: „Við kviðuggana á skötuhæng er allstór sepi – skötufótur. „Þegir barnið meðan það etur skötufótinn,“ er sagt, þegar ætla má, að einhver sé ...
Lítið er vitað um ævi Pýþagórasar en talið er að hann hafi fæðst um 570 f.Kr. á grísku eyjunni Samos og dáið einhvern tímann á tímabilinu 500 f.Kr. til 475 f.Kr. Engin verk Pýþagórasar eða lærisveina hans, Pýþagóringa, hafa varðveist og engar heimildir eru til um hvernig talnaritun þeir notuðu.
Vitað er að Grik...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Hér eru vangaveltur og veðmál í bekknum sem ég er að kenna um það hvort leðurblökur hafi sjón. Þannig að við spyrjum: Hafa leðurblökur sjón?
Til er enskt orðatiltæki sem oft er notað um þá sem taka ekki eftir hlutunum. Þá er sagt um viðkomandi að hann sé 'blind as a bat...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Kæri Vísindavefur HÍ.
Ég var að velta orðinu 'valhopp' fyrir mér. Hvaðan kemur það? Smá gúggl leiðir í ljós að það tengist gangi hesta en hvernig yfirfærist það á manneskjur? Er einhver að velja að hoppa? Eða var það Valur sem hoppaði fyrstur manna? Og var það eins og hestur? ...
Upprunalega spurningin var:
Hvers konar fyrirbæri er sprakki? Og ef til er eitthvað sem heitir forsprakki, liggur þá ekki beint við að álykta að einhvern tíma hafi verið til baksprakki?
Orðið sprakki er einkum notað eitt sér í skáldamáli um röskleikakonu, kvenskörung. Í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er ...
Orðatiltækið að taka upp hanskann fyrir einhvern merkir ‘taka málsstað einhvers, aðstoða einhvern’ þekkist frá miðri 19. öld.
Í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er til dæmis þetta dæmi:
Tíminn tekur upp hanzkann fyrir formann síns flokks.
Að kasta hanskanum er annað orðatiltæki úr sömu átt:
Séra Sigurðr h...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!