Ísland er 103.000 km2 (ferkílómetrar) að flatarmáli. Hægt er að sjá stærðir einstakra hluta landsins, sem og annarra landa og heimsálfa, með því að smella á efnisorðin neðst í svarinu.
Mynd:
norden. (Sótt 4.3.2003).
Annað kort af Íslandi er að finna hér: Detailed Road Map of Iceland. (Skoðað 25.03.2015)...
Með orðunum hugræn sálfræði gæti verið átt við það sem á ensku er kallað cognitive psychology en það hefur verið nefnt vitsmunasálarfræði á íslensku. Það orð gefur sæmilega hugmynd um hvað við er átt en auðvitað væri hægt að gera því betri skil í lengra máli.
Einnig gæti verið að spyrjandi sé í rauninni að spy...
Orðið róni er sennilega stytting úr orðinu baróni í merkingunni 'drykkjurútur'. Það er sett saman úr bar og róni en síðari liðurinn sækir sér fyrirmynd í orðið las(s)aróni 'róni, flækingur, drykkfelldur auðnuleysingi'.
Lasarus rís upp frá dauðum. Mósaíkmynd frá 5. öld e. Kr. í ítölsku borginni Ravenna.
Las(s)...
Nóttum hafa ekki verið gefin nein sérstök nöfn í íslensku. Talað er um sunnudagsnótt, mánudagsnótt, þriðjudagsnótt, o.s.frv. og er þá átt við aðfaranótt næsta dags. Sunnudagsnótt er þannig aðfaranótt mánudags.
Málverkið Stjörnubjört nótt sem Vincent van Gogh málaði í júní 1889.
Í öllum germönskum málum eiga da...
Hryggdýr skiptast í fimm flokka; spendýr, skriðdýr, fiska, fugla og froskdýr. Salamöndrur ásamt froskum skipa hóp froskdýra og því eru þær hryggdýr. Lesa má meira um salamöndrur í svari sama höfundar við spurningunni Eru salamöndrur eðlur?
Salamandra af tegundinni Ambystoma maculatum.
Það sem allir hópar ...
Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 1. desember 2004 voru íbúar Íslands 293.291 talsins og aukningin var 0,96% frá því í fyrra.
Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar mun íbúatalan halda áfram að vaxa á komandi árum. Íslendingar verða þá 304.711 árið 2010, 325.690 árið 2020 og 353.416 árið 2045.
Þeir sem vilja f...
Fyrsta fullorðinstönnin kemur við 6 ára aldurinn. Langoftast er það svokallaður sex ára jaxl sem kemur fyrir aftan barnatennurnar.
Hvorki sex ára jaxlinn né jaxlarnir þar fyrir aftan koma í staðinn fyrir barnatennur. Hins vegar myndast framtennur, augntennur og framjaxlar undir rótum eða á milli róta barnatann...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:
Við frumuskiptingu verða dótturfrumur minni en móðurfrumur. Verða þá ekki „næstu kynslóðir“ frumunnar ennþá minni og svo koll af kolli?
Þótt dótturfrumur séu minni en móðurfruma eins og hún var rétt fyrir skiptingu, ná þær senn eðlilegri stærð sinnar frumugerðar. Þær skip...
Orðatiltækið að vera á höttunum eftir e-u er notað í merkingunni að ‘vera á hnotskóg eftir e-u, reyna að ná í e-ð, svipast um eftir e-u’. Dæmi um það eru til í söfnum Orðabókar Háskólans frá því á 19. öld. Samkvæmt elstu dæmum virðist merkingin upphaflega hafa verið að ‘vera á verði, hafa gætur á’.
Ósennilegt ...
Sagnarsambandið að vaska upp er gamalt í málinu. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er frá miðri 17. öld úr ævisögu Jóns Ólafssonar Indíafara sem skrifuð var 1661. Sennilegast er að það hafi borist hingað úr dönsku vaske op eins og nafnorðið uppvask, í dönsku opvask.
Vaskað upp.
Í dönsku eru einnig heimildir um ...
Sennilegasta skýringin á því af hverju karlmenn hafa geirvörtur er einfaldlega sú að þeir eru náskyldir konum sem hafa geirvörtur til að fæða afkvæmi sín.
Karldýr spendýra hafa ekki öll geirvörtur. Stóðhestar og karldýr nagdýra hafa ekki geirvörtur, en hundar hafa þær. Karlmenn hafa bæði mjólkurkirtla og mjólku...
Orðið senditík heyrist sjaldan nú orðið en var einkum notað um þann sem tók að sér sendiferðir fyrir húsbónda sinn eða aðra sem stóðu honum sjálfum hærra í þjóðfélagsstiganum. Merkingin er fremur niðrandi og orðið notað þeim til háðungar sem önnuðust viðvikin. Jákvæðari merkingu hafa aftur á móti orðin sendill og ...
Orðið púss hefur fleiri en eina merkingu. Dæmi um þá sem spurt er um, ‘viðhafnarföt’ en einnig ‘embættisklæðnaður’ eru til í söfnum Orðabókarinnar frá því á 19. öld. Um er að ræða tökuorð úr dönsku puds en það er notað í svipaðri merkingu, til dæmis í orðasambandinu at være i sit stiveste puds ‘að vera í sínum bes...
Orðið rönd merkir ‘brún, barmur, jaðar, rák’. Orðasambandið í aðra röndina merkir ‘að hálfu leyti, að nokkru leyti, hálfvegis’ og eru elst dæmi um það í söfnum Orðabókar Háskólans frá því um miðja 19. öld.
Líkingin í orðasambandinu er ekki fullljós. Þó gæti verið átt við brún til dæmis á umslagi þar sem ein rönd...
Orðið róða hefur fleiri en eina merkingu. Í eldra máli var það notað sem samheiti yfir róðukross en það var einnig notað um kross almennt. Orðið merkir einnig ‘dýrlingsmynd’. Karlkynsmyndin róði merkti í eldra máli annars vegar ‘kross’ og hins vegar ‘dýrlingsmynd’.
Róðukross hefur einnig fleiri en eina merking...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!