Þótt orðið karaoke sé ekki alveg nýtt í málinu hefur ekkert eitt íslenskt orð fest sem nýyrði yfir þetta hugtak. Í nýyrðabanka Íslenskrar málstöðvar eru fjögur orð sem þangað hafa borist. Þau eru:
lagvísir, sem sennilega er þannig hugsað að það vísar á lagið, hjálpar til við að halda lagi
tónhjarl, karlky...
Bærinn er vafalítið kenndur við mann að nafni Kleppjárn. Mannsnafnið kemur fyrir í Landnámabók, Kleppjárn Einarsson (Íslenzk fornrit I, 140) og Kleppjárn inn gamli Þórólfsson (Ísl. fornrit I, 57). Auk þess er nefndur Hyrningur Kleppjárnsson (Ísl. fornrit I, 86nm). Kleppjárnsreykir eru ekki nefndir í Landnámabók, e...
Um kjörgengi forseta á Íslandi segir í 4. grein stjórnarskrárinnar:Kjörgengur til forseta er hver 35 ára gamall maður, sem fullnægir skilyrðum kosningaréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu.
Af þessu má draga þá ályktun að aðild að þjóðkirkjunni sé ekki skilyrði fyrir þann sem sækist eftir þessu æ...
Upphaflega spurningin hljóðaði svona: Ég hef séð á mörgum kortum af landinu að Langjökull er nefndur Baldjökull. Hvenær og af hverju átti þessi nafnabreyting sér stað?
Nafnmyndin Baldjökull er eldra nafn á Eiríksjökli eða norðvesturhluta Langjökuls og er upphaflega nafnmyndin Balljökull (nefndur til dæmis í Harða...
Eins og fram kemur í Íslensku alfræðiorðabókinni hafa um 3000 rúnasteinar fundist á Norðurlöndunum, þar af 2000 í Svíþjóð. Flestir rúnasteinar hafa þess vegna fundist í Svíþjóð.
Elstu rúnasteinarnir voru reistir í Noregi og Svíþjóð á þjóðflutningstímanum. Lengsta áletrunin sem fundist hefur er um 170 orð en han...
Engar erfðafræðilegar forsendur eru fyrir því að hundar og refir geti eignast saman afkvæmi. Hundar hafa 38 litningapör (2n=76 litningar) en heimskautarefir hafa 25 litningapör (2n=50).
Þó hundar og refir tilheyri sömu ættinni Canidae (hundaætt) þá greinist hún í tvennt, annars vegar refi (Vulpini) og hins veg...
Nei, alls ekki. Í svari við spurningunni Suðumark vatns lækkar við minnkandi þrýsting, en getur ís soðið? má meðal annars sjá eftirfarandi mynd. Lesendur eru hvattir til að lesa það svar áður en lengra er haldið.
Eins og sjá má liggur línan milli storkuhams (íss) og vökvahams (fjótandi vatns) í átt til lækkandi h...
Nú á dögum finnast engir tenntir fuglar. Margir fræðimenn telja að gen sem stuðla að tannvexti hafi stökkbreyst og orðið óvirk í fuglum fyrir um 70 milljónum ára. Steingerðar leifar af mörgum forsögulegum fuglategundum benda til þess að þær hafi verið tenntar líkt og áar þeirra skriðdýrin. Öglir (Archaeopteryx), s...
Norrænir menn á tímum víkinga borðuðu mikið lamba- og nautakjöt, einnig hrossakjöt, og voru þá langflestir hlutar dýrsins nýttir eins og menn þekkja sem borðað hafa þorramat.
Þeir neyttu einnig fisks, kornvara, mjólkurvara og eggja villifugla. Lítið var um grænmeti en sums staðar borðuðu menn ber og epli þar se...
Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands bjuggu 2.229 manns á Húsavík þann 1. janúar 2010, 1.093 karlar og 1.136 konur.
Húsavík er hluti af sveitarfélaginu Norðurþingi sem varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga: Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps. Árið 2...
Svarið er í stuttu máli það að margir loftsteinar hafa lent á jörðinni og engin ástæða er til að ætla annað en þeir haldi því áfram.
Þann 9. október 1992 lenti 12 kg loftsteinn á skottinu á þessum bíl. Á Veraldarvefnum er hægt að lesa meira um Peekskill-loftsteininn á síðunni Peekskill Meteorite Car.
En lofts...
Bandaríkjaforseti hefur 400.000 dali í árslaun eða sem samsvarar um 29 milljónum íslenskra króna, þegar þetta er skrifað í mars 2004. Auk þess fylgja starfinu nokkur fríðindi, svo sem Hvíta húsið sem embættisbústaður, sumarbústaður í Camp David, einkaþota af stærstu gerð og brynvarinn Cadillac.
Hvíta húsið er ...
Geitur eru með svokallaðan fjögurra hólfa maga líkt og kýr og önnur jórturdýr. Hólfin nefnast vömb, keppur, laki og vinstur (kvk.) og er vömbin langstærst að rúmmáli, um 80% af heildarrúmmáli magans.
Vömbin verkar sem eins konar gerjunartankur. Fæðan fer nánast ótuggin þangað niður og gerjast í svolítinn tíma ...
Felling laufblaða er einkum stjórnað af samspili tveggja plöntuhormóna, áxíni og absisínsýru.
Absisínsýran veldur því að laufblöðin falla. Áxín er hins vegar framleitt í lifandi laufblöðum og svo lengi sem styrkur þess er tiltölulega hár kemur það í veg fyrir að absisínsýra vinni sitt verk.
Áxínstyrkur ...
Það er rétt að svokölluð síberíutígrisdýr lifa ekki í Síberíu en sennilega er þetta heiti upprunalega tilkomið vegna misskilnings eða vanþekkingar á landsvæðum. Í Rússlandi eru þessi tígrisdýr yfirleitt kennd við Amurfljótið eða Ussuriland og því kölluð amurtígrisdýr eða ussuritígrisdýr.
Landsvæðið þar sem dý...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!