Orðið bláhorn er vel þekkt allt frá því á síðari hluta 19. aldar. Í elsta dæmi Orðabókar Háskólans er verið að tala um bláhorn í kirkjugarði en einnig eru dæmi um bláhorn á bókarspjöldum og á húsgögnum, til dæmis borði eða skáp.
Fyrri liðurinn blá- er bæði notaður til að mynda nafnorð og lýsingarorð og er þá t...
Orðasambandið Róm var ekki byggð á einum degi í merkingunni 'mikil verk taka langan tíma' er vel þekkt í Evrópumálum og eru elstu heimildir raktar til frönsku seint á 12. öld. Það hefur hugsanlega borist hingað um dönsku, Rom blev ikke bygget på én dag, en ekki er ljóst hversu gamalt orðasambandið er í íslensku. Þ...
Í svari Ólafs Páls Jónssonar við spurningunni Hvenær fæddist Astrid Lindgren og hvað hefur hún skrifað margar bækur? kemur fram að barnabækur hennar eru samtals 40 auk þess sem hún gerði fjöldann allan af myndabókum.
Emil í Kattholti að tálga einn af sínum mörgu spýtukörlum.
Um 40 kvikmyndir og sjónvarpsþæt...
Krossköngulóin (Araneus diadematus) er meðal stærstu köngulóa sem fyrirfinnast í íslenskri náttúru. Kvendýrin eru nær undantekningarlaust stærri en karldýrin eins og tíðkast meðal langflestra köngulóa. Búklengd kvendýranna eru yfirleitt um 10-13 mm en hjá körlunum um 4-8 mm.
Krosskönguló í vef sínum.
Tvær aðr...
Hér er einnig svarað spurningunni: Hvert er lengsta vatn Íslands?
Í svari við spurningunni Hver eru dýpstu stöðuvötn á Íslandi? kemur fram að Lögurinn er sjötta dýpsta stöðuvatn landsins, 112 metra djúpt, og nær um 90 m niður fyrir sjávarmál.
Flatarmál vatnsins er alls um 53 km2 sem skipar því í þriðja sæti...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Eru dekkri viðartegundir í heitum löndum og ljósari í kaldari löndum? Eða er reglan „dökkur jarðvegur = dökkur viður“?Litur viðar er hvorki háður veðurfari né jarðvegi. Það vill svo til að flestar trjátegundir í barrskógabeltinu (köldu löndunum) eru með frekar ljósan við en...
Perluhæna (Numida meleagris) er afrískur hænsnfugl. Upprunaleg heimkynni hennar eru víða á svæðum sunnan Sahara og á Madagaskar en fuglinn hefur einnig verið fluttur inn til sportveiða í Vestur-Indíum og Frakklandi.
Kjörlendi perluhænunnar eru heit og þurr svæði þar sem ekki er mikið um gróður svo sem á staktr...
Þegar velja á stjörnusjónauka er mikilvægt að vanda valið. Stjörnusjónaukar eru af öllum stærðum og gerðum og því þarf hver og einna að finna út hvaða tegund hentar honum eða henni best.
Góður sjónauki þarf að uppfylla tvö skilyrði. Hann verður að vera á góðri undirstöðu og hafa góð sjóntæki.
Besti stjörnu...
Í svari Hildar Guðmundsdóttur við spurningunni Hvernig verka myndlampar í sjónvörpum? kemur meðal annars fram:Skjárinn er húðaður að innan með fosfórljómandi (langljómandi, phosphorescent) efni sem hefur þann eiginleika að gefa frá sér ljós þegar rafeindir rekast á það. Í fyrstu var notaður fosfór í þessa húð en s...
Andrómeda-vetrarbrautin er næsta stóra vetrarbrautin við vetrarbrautina okkar. Við góð skilyrði sést hún sem daufur þokublettur á næturhimninum í stjörnumerkinu Andrómedu, sem hún dregur nafn sitt af. Stjörnufræðingar nefna Andrómedu-vetrarbrautina oft M31 eða NGC 224 og er hún í um 2,8 milljón ljósára fjarlægð ...
Vissulega geta rándýr drepið skjaldbökur ef tækifæri gefst. Skjöldur skjalbaka er þó afar góð vörn gegn flestum rándýrum. Mörg dæmi um það að ljón hafi reynt að brjóta skjöld landskjaldbaka í Afríku með litlum árangri.
Jagúar gerir sig líklegan til að brjóta skjöld skjaldböku.
Það eru einungis rándýr með af...
Steypireyðurin (Balaenoptera musculus), stærsta dýr jarðar, getur fullvaxin orðið allt að 30 metra löng og vegið 100-190 tonn. Þessi tröllvaxni hvalur er þó hvorki langur né þungur í samanburði við risafuruna (Sequoiadendron giganteum) sem er þyngsta lífvera jarðarinnar.
Risafurur geta orðið allt að 95 metrar...
Laganám á Íslandi tekur alla jafna 5 ár og er því skipt niður í þriggja ár grunnnám sem veitir BA-gráðu, og tveggja ára meistaranám. Að því loknu útskrifast stúdent með embættispróf í lögfræði og getur sótt um réttindi héraðsdómslögmanns samkvæmt skilyrðum 6.–8. gr. laga um lögmenn nr. 77/1998. Um skilyrði þess að...
Frímerki er tökuorð úr dönsku, en samsvarandi danskt orð er frimærke. Um miðja 19. öld var farið að ræða á þingi um að taka upp notkun frímerkja eins og í Danmörku. Í Tíðindum frá Alþíngi Íslendinga 1855 segir svo: „en eg held, að skoðun hans breyttist, ef hér væri innfærð „frímerki“, eins og í Danmörk“. Þarna er...
Athugunarmenn á fáeinum veðurstöðvum við sjávarsíðuna meta sjólag, það er hversu mikil ölduhæð er á sjónum næst stöðinni. Sjólagið er metið í 10 stigum sem hvert um sig ber nafn. Nöfnin og ölduhæðin eru:
SjólagstalaHeitiÁætluð ölduhæð (í metrum)
0Ládautt0 m (spegilsléttur sjór) - nefnist stundum líka hafblik ef...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!