Í heild sinni hljóðaði spurningin svona: Hvað eru til mörg litbrigði af steintegundinni jaspis og hvar er jaspis helst að finna?
Jaspis er dulkornótt afbrigði af kísli, SiO2, rétt eins og kalsedón (glerhallur, draugasteinn) og tinna. Jaspis er ekki hreinn kísill heldur mengaður ýmsum efnum, einkum járnsamböndum, ...
Orðið klisja er notað um orðalag sem í fyrstu var ef til vill frumlegt og nýstárlegt en verður vegna ofnotkunar útslitið og tákn um flatneskjulegan stíl. Orðið er til í mörgum tungumálum kringum okkur og er dregið af franska orðinu cliché sem er haft um prentmót til að prenta myndir í blýprenti. Hugmyndin er þess ...
Merking fyrri liðar í götuheitinu Ánaland er ekki fullkomlega ljós. Fleiri örnefni eru til á landinu með þessum forlið eins og Ánastaðir, Ánabrekka, Ánavatn (tvö) og götuheitið Ánanaust. Ánanaust var upphaflega hjáleiga frá bænum Hlíðarhúsum en götuheitið ákveðið 1948 en þá hafði hjáleigan verið rifin.
Mannsnaf...
Svonefndar PCI-, PCI Express- og AGP-raufar (e. slots) eru hraðvirk tengi á móðurborðum. Raufarnar eru notaðar til að bæta virkni við móðurborðið í tölvunni, til dæmis skjákort, netkort, diskastýringar, sjónvarpskort og hljóðkort. Helsti munurinn á þeim er aldur þeirra og samskiptahraðinn.
PCI Express-, AGP- og...
Í Gylfaginningu segir: Körmt og Örmt
og Kerlaugar tvær,
þær skal Þór vaða
dag hvern
er hann dæma fer
að aski Yggdrasils,
því að Ásbrú
brenn öll loga,
heilug vötn hlóa.
Helst er giskað á að hlóa þýði að eitthvað sjóði eða sé heitt en ‛vötn hlóa’ kemur fyrir ...
Eftir því sem best er vitað lifðu loðfílar (fílategundir af ættkvíslinni Mammuthus) ekki á Íslandi. Ástæðan er einföld, heimkynni þeirra voru bundin við túndrusvæði Evrasíu og Norður-Ameríku sem voru í skjóli af ísaldarjöklunum. Afar ólíklegt er að þeir hafi farið yfir lagnaðarísinn á Norður-Atlantshafi, þegar han...
Nútímaleg vísindi og fræðimennska á sér rætur í upplýsingunni á 18. öld. Á 19. öldinni var lagður grunnur að félagsvísindum. Félagsvísindin beindu sjónum sínum að upptökum nútímalegs samfélags og uppruna og afleiðingum iðnvæðingar og kapítalisma. Það var viðtekin skoðun að trú hefði haft mikla þýðingu fyrir samfél...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Mig langar að spyrja um heiti á ákveðinni málhefð. Ég veit að á Siglufirði sleppa menn stundum eignarfornafni þegar talað er um hluti sem tilheyra einhverjum, t.d. bíllinn mömmu í stað bíllinn hennar mömmu, báturinn afa í stað báturinn hans afa, dótahillan Helgu í stað dótah...
Sögnin að ybba þekkist í málinu frá 17. öld og merkir ‘ýfast, derra sig’. Af sögninni er líklega leitt lýsingarorðið ybbinn ‘argur, önugur, ósvífinn’.
Goggur merkir annars vegar ‘nef á fugli’ en hins vegar ‘kjaftur, munnur’. Sá sem er að ybba gogg er því að ‘brúka munn, mótmæla, rífa sig’.
Sögnin að ybba þe...
Hand- í orðinu handónýtur er svokallaður herðandi forliður. Í Íslenskri orðabók Eddu (2002:538) er hann sagður forliður lýsingarorða en í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er vísað í Stephan G. Stephansson sem notaði forliðinn í sögninni handónýta í ljóðabókinni Andvökur I, bls. 89. Dæmið var ekki sýnt. Það sem er ...
Orðið tuska merkir ‘efnis- eða pappírspjatla’. Tuskudýr er leikfang, bangsi eða annað dýr ætlað börnum, búið til úr efni. Hugsanlega er það innflutt frá Danmörku en þar heitir slíkt dýr tøjdyr. Í þýsku heitir slíkt dýr Stofftier (Stoff ‘efni’). Einnig er talað um tuskudúkku ef hún er búin til úr efni, oft áður fyr...
Flestar lægðir sem hingað koma eru tengdar bylgjugangi vestanvindabeltisins. Í heildina tekið ræðst styrkur þess af mun á hita á norðlægum og suðlægum breiddarstigum. Þessi munur er talsvert meiri að vetrarlagi heldur en á sumrin. Lægðir eru því að jafnaði kröftugastar á vetrum, mun öflugri heldur en að sumarlagi....
Orðið piparkaka er tökuorð úr dönsku peberkage sem aftur hefur fengið orðið að láni úr þýsku Pfefferkuchen. Í Danmörku þekkjast piparkökur frá 15. öld en elsta dæmi Orðabókar Háskólans er frá 18. öld.
Danska sögnin pebre ‘pipra’ merkti ekki einungis að setja pipar í mat heldur var notuð um hvers kyns sterkt k...
Orðið sígauni er talið tökuorð úr dönsku. Í verkinu Den danske ordbog segir að orðið sé fengið að láni úr þýsku Zigeuner en að öðru leyti sé uppruni sagður ókunnur. Í sögulegu dönsku orðabókinni Ordbog over det danske sprog er tekið fram að orðið sé slavneskt en uppruni annars óþekktur. Báðar þessar bækur má finn...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið „gródirskur“ eins og Þórbergur Þórðarson ritar oft í sínum bókum og bréfum?
Ég hygg að átt sé við lýsingarorðið gróteskur ‘fáránlegur, afskræmilegur, hlægilegur’. Það er tökuorð í íslensku, líklega úr dönsku grotesk eða þýsku grotesk. Í ensku og frö...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!