Upprunalega spurningin hljóðaði svona: Sá hjá ykkur svar við aðgengi almennings að sjó á eignalandi. Langar að vita með lóðir eins og á Arnarnesinu. Hafa húseigendur leyfi til að banna gerð göngu-og hjólastígs meðfram ströndinni? Ná eignalóðir alveg niður að sjó?
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hva...
Elmar Geir Unnsteinsson er lektor í heimspeki við University College Dublin og fræðimaður við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hans hafa verið á sviði heimspeki tungumáls og málvísinda, heimspeki hugar og sögu heimspekinnar á tuttugustu öld. Elmar hefur sérstaklega fengist við spurningar um tengsl máls o...
Einlend (e. endemic) tegund er tegund sem er upprunaleg og finnst aðeins á einu tilteknu svæði og hvergi annars staðar. Svæði getur verið eyja, land eða ákveðið búsvæði. Til að mynda eru allir lemúrar einlendir á afrísku eyjunni Madagaskar. Á hinum enda „útbreiðslurófsins“ eru tegundir sem hafa alheimsútbreiðslu e...
Lífplast (e. bioplastics) er samheiti yfir plasttegundir sem framleiddar eru úr lífmassa í stað jarðefnaeldsneytis. Einn helsti kosturinn við notkun lífplasts er að efnið er framleitt úr endurnýjanlegum auðlindum, sem olíulindir eru ekki, en flest plastefni eru búin til úr jarðolíu eða jarðgasi. Helstu hráefni sem...
Loðfílar urðu til með milljón ára þróun þar sem tegundir þurftu að aðlagast breyttum aðstæðum í náttúrunni.
Talið er að ísöld (pleistósen) hafi hafist fyrir um 2,6 milljónum ára og lokið fyrir um 10.000 árum. Á þessum tíma í jarðsögunni skiptust á kuldaskeið þar sem loftslag var kalt og styttri hlýskeið þar sem...
Ekki er fyllilega ljóst hvers kyns svar er hægt að gefa við þessari spurningu. Við hvað er til dæmis átt við með hugtakinu „lífsspeki“? Er það einhvers konar samþjöppuð viska sem unnt er að tjá í örfáum orðum? Er þá gert ráð fyrir því að til sé einhver ein kínversk lífsspeki, líkt og svarið „42“ sem gefið var við ...
Upprunalega spurningin var:
Hvernig og hvar flokkast SWAPO-flokkurinn í Namibíu? Er hann vinstri flokkur eða er hann hægri flokkur eða er hann eitthvað annað?
Skammstöfunin SWAPO stendur fyrir 'South West African People‘s Organization' en það er nafn á ráðandi stjórnmálaflokki í Namibíu. Upphaflega var SWAP...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hvað er erkiengill? (Guðmunda Dagbjört)
Hverjir "eru" erkienglarnir (nöfn)? (Jóhanna Kristín)
Hverjir voru og hvaða hlutverk gegndu englarnir Michael og Gabríel? (Rúnar Sighvatsson)
Á engla er víða minnst í Biblíunni, eða ríflega 300 sinnum, og hafa þeir löngum verið snar...
Almennt er talið að smásagan í því formi sem við þekkjum hana nú á dögum hafi orðið til á 19. öld. Þá hafi skapast vissar sögulegar aðstæður sem urðu til þess að fram kom frásagnarform sem mótaðist af fagurfræðilegum þáttum en tók jafnframt mið af væntingum stækkandi lesendahóps í borgaralegu samfélagi. Á þeim tím...
Samkvæmt venju er stofnun Rómar talin hafa átt sér stað 21. apríl árið 753 f.Kr. Í fyrstu var Róm ekki nema lítið þorp við ána Tíber. Er fram liðu tímar óx borgin og Rómverjar seildust til áhrifa utan borgarinnar. Róm varð lýðveldi árið 510 eða 509 f.Kr. Á lýðveldistímanum varð Rómaveldi að stórveldi. Rómverjar ná...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hversu þungar geta stærstu löngur við Ísland orðið? Þær upplýsingar sem ég hef fundið eru hlægilega rangar.
Langa (Molva molva) er af þorskaætt (Gadidae) líkt og margir af okkar helstu nytjafiskum, svo sem þorskur, ufsi, ýsa og kolmunni. Hún hefur löngum verið álitin einhvers ...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Er það satt að Kóreustríðið (1950-1953) sé í raun ennþá í gangi?
Stutta svarið við spurningunni er „já“. Þegar þetta er skrifað, í mars 2022, nærri 70 árum eftir að átökum lauk, er enn formlega stríð í gangi milli Alþýðulýðveldisins Kóreu (almennt vísað til sem Norður-...
Hljóð þarf efni til að geta borist á milli staða, það berst ekki í tómarúmi. Vel heyrist í hljóðfærum sem leikið er á í geimstöðvum, en fyrir utan stöðvarnar heyrist ekkert, enda eru þar nánast engar agnir.
Um borð í geimstöðvum ríkir örþyngd (e. microgravity) sem veldur nánast algjöru þyngdarleysi. Þar er engu...
Þeir sem búa í þéttbýlinu á Suðvesturlandi þekkja flestir dúfur (Columbidae) sem réttilega eru kallaðar húsdúfur og hafa haldið til á torgum og götum í Reykjavík í áratugi. Húsdúfan er afkomandi villtra dúfna sem nefnast bjargdúfur. Þessar villtu frænkur húsdúfnanna hafa numið hér land og ættu því að teljast rétti...
Latneska orðasambandið deus ex machina þýðir bókstaflega 'guð úr vélinni'. Það kemur úr skáldskaparfræðum og vísar til sérstaks leiksviðsbúnaðar sem notaður var til forna, eins konar körfu sem hægt var að hala upp og niður. Grísk leikritaskáld nýttu sér 'guð úr vélinni' til að leysa úr erfiðum flækjum leikrita sin...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!