Bær í Hörgárdal í Eyjafjarðarsýslu heitir Myrká eftir samnefndri á. Bærinn er alþekktur úr þjóðsögunni um djáknann á Myrká, sem birtist í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar (I:270-272 (1961)).
Myrká fellur eftir Myrkárdal sem gengur vestur úr Hörgárdal. Áin hefur grafið sér mjög djúpt gil fyrir neðan bæinn Myrkárda...
Skaginn mikli milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar gengur undir nafninu Tröllaskagi á seinni tímum en nafnið er ekki ýkja gamalt. Merkilegt er að bæði Tröllaskagi og Flateyjarskagi hafa ekki haft sérstök nöfn frá fornu fari. Nafn Flateyjarskaga er raunar ekki nema nokkurra áratuga gamalt en nafn Tröllaskaga talsvert ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Ég er að reyna að finna hver uppruni kenninafnana okkar er. Sem sagt hver er ástæðan fyrir því að við berum föðurnafn okkar og svo dóttir eða sonur. Hvenær má sjá þau fyrst birtast í samfélaginu?
Notkun föður- eða móðurnafna er liður í langri þróun nafnaforða evrópskra ...
Til að svara þessari spurningu er vænlegast að skoða jarðfræðikort (mynd). Þar eru sýnd gosbelti landsins og innan þeirra hraun runnin eftir ísöld, með yngri hraun frá því eftir landnám merkt sérstaklega. Bæja, það er þéttbýliskjarna, sem byggðir eru á hrauni er þarna að leita.
Gosbelti á Íslandi og hraun runnin...
Í heild hjóðaði spurningin svona:Hver er uppruni nafnsins Líneik? Og þá orðsins líneik? Ég veit af meiningunni kona/ung kona og þekki m.a. ljóðið úr Víglundar sögu þar sem ’Langúðig strauk löðri Iíneik um skör mína’ kemur fram. Ég er mjög áhugasöm um hvaðan það er og hvenær það kemur fram, í hvaða samhengi það var...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað merkið orðið „sýling“ í heiti á Sýlingarfelli fyrir ofan Grindavík?
Sýlingarfell, sem stundum er kallað Svartsengisfell, er um 200 m hátt fell á Reykjanesskaga, rétt austan við Svartsengi. Í örnefnalýsingu fyrir Hóp í Grindavíkurhreppi er heiti fellsins skýrt svo:...
Vikan sem byrjar með pálmasunnudegi og lýkur laugardaginn fyrir páska er oft nefnd páskavika. Svo hefur þó ekki alltaf verið og hefur menn stundum greint á um það. Í fornu máli virðist svo sem páskavika byrji með páskadegi og sé vikan eftir páska. Þetta skýrist með því að vikan er talin hefjast með sunnudegi og pá...
Ekki er til einhlítt svar við þessari spurningu. Að hluta til liggur svarið í því að spúnar sem hafa reynst vel í tímans rás, hafa skapað sér nafn og áunnið virðingu veiðimanna og eru því oftar hnýttir á færið. Það leiðir aftur til þess að fiskar, sem á annað borð taka spún, taka þá spúna sem veiðimennirnir setja ...
Að undanskyldu Suðurskautinu (þar sem fólk hefur ekki fasta búsetu) er Eyjaálfa, sem stundum er kölluð Ástralía, bæði minnsta og fámennasta heimsálfan. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðunni Geohive (sem sækir sínar upplýsingar á síðu The World Factbook) er áætlað að íbúar Eyjaálfu hafi verið 32.750.000 um mitt ár 20...
Sú tegund manna sem yfirleitt er nefnd Homo neanderthalensis heitir fullu nafni á fræðimáli Homo sapiens neanderthalensis.
Á íslensku er rétt að skrifa neanderdalsmenn. Hefð er fyrir því að rita dýra- og plöntunöfn sem mynduð eru með sérnafni með litlum upphafsstaf, samanber til dæmis grænlandshákarl og baldurs...
Spurningin í fullri lengd var þessi:
Er vitað hvaðan nafnið Kænugarður er upprunnið, mér finnst svolítið sérkennilegt að þetta nafn skuli ávallt vera notað af fjölmiðlafólki hérlendis, sérstaklega í seinni tíð, borgin heitir Kiev (eða Kyiv) og er að mér hefur skilist ævafornt nafn á höfuðborg Ukraínu.
Orðið...
Hrognkelsi (Cyclopterus lumpus) hafa verið veidd hér við land í áraraðir, bæði grásleppa, sem er hrygnan, og rauðmaginn, sem er hængurinn. Fiskurinn er veiddur í net þegar hann gengur upp á grunnsævið til hrygningar. Hrygning fer fram á grýttum og þanggrónum botni á 0-40 metra dýpi. Venjulega koma fyrstu hrygnurna...
Í nokkrum örnefnum hérlendis kemur orðliðurinn jól fyrir. Það er þó sjaldnar orðið jól í merkingunni ‘hátíð’ sem hér er um að ræða heldur jóli í merkingunni ‘hvönn, hvannleggur’. Orðið hefur í samsetningunni hvann-jóli orðið njóli. Stundum er ekki vitað um uppruna örnefna með -jól(a). Þessi örnefni verða nú rakin:...
Ekki virðist vera til eitthvað nafn á eyjunni sem Sírenurnar voru sagðar búa á. Þó er minnst á það í frásögnum grísku goðafræðinnar að þær hafi byggt sér hof við Sorrento sem stendur á nesi við Napólí á Ítalíu.
Sírenunum er lýst í grísku goðafræðinni sem verum sem eru til helminga konur og til helminga fuglar. ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!