Þanghafið nefnist einnig Sargassóhaf. Það dregur nafn sitt af lausu sargassóþangi sem flýtur um hafið í miklum breiðum. Þanghafið er hluti af Atlantshafi. Það er fyrir vestan Asoreyjar og nálægt Bermúda-eyjum, á mótum Golfstraumsins og Norðurmiðbaugsstraumsins.
Hér sést Þanghafið á korti.
Það voru líklega po...
Spurning Önnu hljóðaði svona í heild sinni:
Afhverju skrifa Íslendingar Pólland með tveimur L-um? Dregur ekki landið nafnið af ánni Po? Það er ekkert L í Po hvaðan kemur þetta auka L?
Rótin í fyrri hluta landsheitisins er Pól-. Hún er rakin til frumslavneskrar rótar, *pol’e með merkinguna „opið svæði, slétta...
Orðasambandið Róm var ekki byggð á einum degi í merkingunni 'mikil verk taka langan tíma' er vel þekkt í Evrópumálum og eru elstu heimildir raktar til frönsku seint á 12. öld. Það hefur hugsanlega borist hingað um dönsku, Rom blev ikke bygget på én dag, en ekki er ljóst hversu gamalt orðasambandið er í íslensku. Þ...
Í grófum dráttum getum við sagt að orka sé hæfileiki til að framkvæma vinnu, það er til dæmis að færa hlut úr stað, auka hraða hans eða minnka eða breyta honum að öðru leyti, til dæmis stefnu. Við tölum meðal annars um staðarorku sem hlutur hefur vegna stöðu sinnar, hreyfiorku sem tengist hreyfingu hlutarins, varm...
Við eigum svar við þessari spurningu. Þú getur lesið það með því að smella hér. Í svarinu kemur fram að veiran dragi nafn sitt af ánni Ebólu í Austur-Kongó þar sem veiran kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1976. Þar segir ennfremur:
Ebóla veldur því að frumur og vefir skemmast. Fyrstu einkenni ebólublæðingarsó...
Andrómeda-vetrarbrautin er næsta stóra vetrarbrautin við vetrarbrautina okkar. Við góð skilyrði sést hún sem daufur þokublettur á næturhimninum í stjörnumerkinu Andrómedu, sem hún dregur nafn sitt af. Stjörnufræðingar nefna Andrómedu-vetrarbrautina oft M31 eða NGC 224 og er hún í um 2,8 milljón ljósára fjarlægð ...
Athugunarmenn á fáeinum veðurstöðvum við sjávarsíðuna meta sjólag, það er hversu mikil ölduhæð er á sjónum næst stöðinni. Sjólagið er metið í 10 stigum sem hvert um sig ber nafn. Nöfnin og ölduhæðin eru:
SjólagstalaHeitiÁætluð ölduhæð (í metrum)
0Ládautt0 m (spegilsléttur sjór) - nefnist stundum líka hafblik ef...
Það virðist vefjast fyrir ýmsum hvernig eigi að rita nafn Landspítalans.
Á vefsetri Landspítalans eru teknar saman upplýsingar um það hvernig eigi að orða og rita ýmislegt sem tengist heiti spítalans og starfsemi hans.
Þar kemur meðal annars fram að spítalinn hét Landspítali - háskólasjúkrahús frá 2. mars 20...
Þormóðssker er á Faxaflóa út af Mýrum. Nafn þess er nefnt í Landnámabók og þar er skerið kennt við Þormóð þræl Ketils gufu og samkvæmt því frá landnámstíð (Íslenzk fornrit I, bls. 168-169).
Þormóðssker er syðsta og vestasta sker í skerjaklasa. Það er um 200 m á lengd, tæpir 100 m á breidd og 11 m á hæð yfir sj...
Legsteinar í japönskum grafreit í Broome í Ástralíu.
Orðið leg hefur fleiri en eina merkingu en ein þeirra er 'staður sem eitthvað liggur á eða í'. Talað er um að menn fái leg í kirkjugarði þegar þeir eru grafnir, það er stað þar sem þeir eru lagðir til hvílu. Við þann stað er oft legsteinn, minningarsteinn þar ...
Rangá er nafn á nokkrum ám í landinu:
Á sem kemur af Rangárdal í Miðdölum í Dalasýslu og rennur í Hörðudalsá að vestanverðu.Á í landi Ófeigsstaða í Ljósavatnshreppi, Suður-Þingeyjarsýslu, og nýbýli kennt við hana.Á sem rennur úr Sandvatni og niður í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu (Landnámabók), og bær kenndur v...
Orðið kaup merkir ‛verslun, viðskipti’ og er venjulega notað í fleirtölu sem og í merkingunni ‛það að kaupa’. Gerð eru góð eða slæm kaup, maður getur átt í hagstæðum eða óhagstæðum kaupum við einhvern annan og þriðji maður getur til dæmis gengið inn í kaupin.
Ekki er kominn festa á beygingu verslun...
Úlfarsfell í Mosfellssveit kemur hvorki fyrir í Landnámabók né fornsögum eða annálum, en Úlfarsá er nefnd í Landnámabók. Úlfarsfell er nefnt í fornu skjali, Hítardalsbók frá 1367 (Íslenskt fornbréfasafn II, 220), og í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns 1704 (III, 310). Nafnið er vafalítið dregið af mannsna...
Lyktin frá borholum á Hellisheiði stafar af brennisteinsvetni (H2S) í gufunni, en það er litlaus, baneitruð og eldfim lofttegund. Sagt er að þefskynið taki öllum mælitækjum fram við að greina mjög lítinn styrk brennisteinsvetnis í andrúmsloftinu, en aukist styrkurinn hættir nefið að skynja lyktina og jafnframt ver...
Upphafleg spurning í heild er sem hér segir:Á vef Alþingis, www.althingi.is, í kaflanum "Upplýsingar-Ýmis hugtök...- Umræður," er greint frá hvernig þingmönnum ber að haga ræðu sinni. Þar eru meðal annars sýnd þessi tvö dæmi um ávörp: "hæstvirti forseti" og "hæstvirtur forsætisráðherra". Af hverju er þetta haft hv...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!