Í heild sinni hljóðaði spurningin svona: Er hægt að fá eða kaupa bréf í t.d iðngreinum og ef svo er hverjir veita upplýsingar?
Forsetabréf teljast til stjórnsýslufyrirmæla. Stjórnsýslufyrirmæli geta verið með ýmsu móti en þekktust þeirra eru líklega reglugerðir settar af ráðherrum. Stjórnsýslufyrirmæli teljast ha...
Pétursfiskur (Zeus Faber) hefur mjög mikla útbreiðslu. Hann er djúp- og miðsjávarfiskur og getur náð allt að 65 cm lengd. Hann er þunnvaxinn, hefur stóran haus og endastæðan kjaft. Út frá bakuggunum skaga langir broddar og áberandi dökkur blettur er á hvorri hlið.
Pétursfiskurinn er með langa brodda út frá bakug...
Ýmsar heimildir eru til um nafnið Guttorm. Í bókinni Nöfn Íslendinga eftir Guðrúnu Kvaran og Sigurð Jónsson, segir að nafnið Guttormur komi fyrir í Landnámu, Egilssögu og fornbréfum.
Í Landnámu kemur nafnið fyrir í 18. kafla. Þar segir frá því að synir Guttorms Sigurðssonar eru drepnir og í Egils sögu er minnst...
Í forngrískri byggingarlist voru þrjár megingerðir burðarsúlna og tilheyra þær hver sínum stíl:
dórískur stíll
jónískur stíll
kórintustíllHér sjást þrjár súlnareglur Forngrikkja. Lengst til vinstri er dórískur stíll, jónískur í miðjunni og kórintustíll til hægri.
Í dóríska stílnum er enginn stallur undir súlun...
Upprunalega Spurningin hljóðaði svona:
Mér leikur forvitni á að vita hver er merking nafnsins á fjallinu Baulu í Borgarfirði.
Örnefnið Baula er til á nokkrum stöðum í landinu:
Baula í Borgarfirði, keilulaga fjall úr líparíti. Af því dregur orðið baulusteinn (= líparít) nafn sitt.
Sker í Rifgirðingum ...
Mikjálsmessa heitir eftir Mikael erkiengli. Vesturkirkjan sá í honum bakhjarl kristinna manna almennt, einkum þó hermanna, en í austurkirkjunni var hann fyrst og síðast talinn hjálpari og styðjandi veikra og lasburða.
Minningardagar hans eru aðallega tveir, 8. maí og 29. september. Sá fyrrnefndi tengist birtin...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Af og til fæ ég sjónvarpsköku að maula og finnst mér hún ósköp góð. En alltaf verður mér hugsað til nafnsins og hvaðan það kemur. Veit einhver hvaðan nafnið sjónvarpskaka kemur?
Íslenskt sjónvarp hóf útsendingar 30. september 1966 og sendi út tvisvar í viku, á miðvikudö...
Tveir firðir með þessu nafni eru á landinu, annar á Austfjörðum og hinn á Vestfjörðum. Heiti þeirra eru alveg eins nú en svo hefur ekki alltaf verið. Í Landnámabók er sá eystra skrifaður Seyðarfjörður en sá vestra Seyðisfjörður. Ekki er þó víst að þessi munur sé til marks um mismunandi merkingu eða uppruna. Í ísle...
Í svari Snæbjörns Guðmundssonar við spurningunni: Hvernig varð fjallið Keilir til? segir þetta um fellið Keili:
Nafn fellsins er augljóslega dregið af keilulaga lögun þess en öfugt við það sem halda mætti er Keilir þó ekki það sem kallað er eldkeila á fræðamáli jarðfræðinga. Eldkeilur, svo sem Snæfellsjökull og...
Upphaflega hljóðaði spurningin svo:
Hvað merkir orðið soga í t.d. Sogavegur, Sogablettur, Sogið o.s.frv.?
Sog er skylt sagnorðinu sjúga og fleiri orðum af þeim toga, til dæmis soga (sogast upp), súgur (dragsúgur), suga (blóðsuga). Í náttúrunni geta orð af þessu tagi bæði vísað til vinds og vatns. Í örnefnum ví...
Orðið spennusaga er þýðing á enska orðinu ‘thriller’ sem er aðallega haft um spennandi sögur eða kvikmyndir. Thrill merkir spenna eða æsandi upplifun.
Spennusögur skarast oft við aðrar bókmenntategundir, eins og til dæmis leynilögreglusögur, njósnasögur, sakamálasögur og hryllingssögur.
Svo virðist sem orði...
Í grísku goðafræðinni koma um þrjátíu gyðjur og jafnmargir guðir við sögu. Hómer skrifaði Ilíonskviðu og Ódysseifskviðu átta hundruð árum fyrir Krist og eru þær ein elstu og þekktustu ritin um guðina. Einnig koma guðirnir og gyðjurnar við sögu í grískum harmleikjum eftir leikritahöfunda eins og Sófókles og Evripíd...
Í þessu svari er aðallega fjallað um hátíðisdaga íslensku þjóðkirkjunnar en aðrar kirkjudeildir geta haft fleiri eða færri hátíðisdaga.
Kirkjuárið hefst með fyrsta sunnudegi í aðventu eða jólaföstu, sem getur verið frá 27. nóvember til 3. desember. Á einu kirkjuári er farið í gegnum líf og starf Jesú Krists á ...
Í öðrum kafla Sturlubókar og Hauksbókar Landnámu er fundur Íslands tímasettur með tilvísun í samtímakónga, konunga á Norðurlöndum og á Englandi, en einnig páfann í Róm og keisara. Hlöðver Hlöðversson er „keisari fyrir norðan fjall“ en auk hans eru nefndir keisarar í Miklagarði.
Hlöðver þessi er nú jafnan kallað...
Tundurdufl (mine á ensku og dönsku) er nafn á sprengjum sem lagðar eru í sjóinn til þess að granda skipum og kafbátum. Herskipin sem leggja tundurduflin kallast tundurduflaleggjarar (e. minelayer). Sprengjurnar springa ef þær verða fyrir höggi vegna áreksturs, hljóðs, segulsviðs eða þrýstings. Tundurdufl eru oft l...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!