Flest trúarbrögð eiga sögur af sköpun veraldarinnar. Í Biblíunni segir Guð: 'Verði ljós' og það varð ljós. Síðan sagði hann 'Verði' hitt og þetta og þá urðu hlutar heimsins til.
'Guð' er orð sem hefur meðal annars verið notað yfir það sem menn skilja ekki og vekur þeim furðu. Það skilur í raun enginn hvernig þe...
Ein tomma er nákvæmlega 2,54 cm eða 25,4 mm. Til að breyta tommum í millímetra þarf sem sagt að margfalda með þeirri tölu. Tólf tommur jafngilda einu feti sem aftur er jafnt 30,48 cm.
Svona upplýsingar er auðvelt að nálgast, bæði á veraldarvef og í handbókum ýmiss konar.
Heimild:
Benson, Harris, 1996. Uni...
Vísindamenn telja núna að alheimurinn hafi orðið til í svonefndum Miklahvelli. Kenningin um Miklahvell byggist á því að alheimurinn er sífellt að þenjast út og menn gera ráð fyrir því að útþenslan hafi staðið allt frá upphafi alheimsins. Ef það er rétt hefur efni alheimsins í upphafi verið óendanlega þétt.
Tal...
Það er ekki hægt að vita nákvæmlega hvenær Hekla gýs næst.
Þegar Hekla gaus árið 1947 töldu menn að hún gysi reglulega á 100 ára fresti. Næst hefði hún þess vegna átt að gjósa nálægt 2045.
Þetta gekk ekki eftir og síðan hefur Hekla gosið 1970, 1980, 1991 og 2000. Miðað við það ætti hún að gjósa næst nálægt 2...
Mér hefur ekki tekist að finna orðasambandið nákvæmlega í þeirri mynd sem spurt var um. Aftur á móti eru tvö vestfirsk dæmi til í söfnum Orðabókar Háskólans um að sitja ekki undir sjö og dilla þeim áttunda og eitt austfirskt um að sitja með púkana sjö og dilla þeim áttunda.
Orðatiltækin virðast notuð um þá se...
Vísindamenn vita ekki nákvæmlega hvað veldur ísöldum en nokkrir þættir sem þar koma við sögu eru meðal annars þeir að geislun sólar breytist reglubundið, efni frá eldgosum geta hindrað inngeislun sólar og hafstraumar geta breyst skyndilega.
Hægt er lesa meira um þetta í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurnin...
„Fjallið“ Paramount er auðvitað þekktast sem merki Paramount Pictures. Engar heimildir styðja það að Paramount sé raunverulegt fjall en fólk hefur líkt því við ýmis fjöll víða um heim.
Fjallið Artesanraju í Perú er þekkt sem fyrirmynd Paramount-merkisins enda eru þau mjög lík, en þó ekki nákvæmlega eins.
...
Við vitum ekki nákvæmlega hvenær Vatnajökull hverfur en jöklafræðingar spá því að ef loftslag haldist næstu 50 ár eins og það var að meðaltali á 20. öld gæti Vatnajökull rýrnað um 10% eða 300 km3 á næstu hálfri öld. Það er jafnmikil rýrnun og varð alla 20. öldina.
Ef sú rýrnun helst stöðug gætum við þess vegna ...
Þessi áletrun er á latínu og þýðir, orð fyrir orð: 'Innsigli Háskóla Íslands', enda stendur hún á innsigli skólans.
Latneska málfræðin í þessu er frekar einföld. Sigillum er hvorugkynsorð í nefnifalli og þýðir sem sagt 'innsigli'. Universitatis er eignarfall af universitas sem þýðir 'háskóli' í hefðbundinni mer...
Fámennast sjálfstæðra ríkja er Vatíkanið sem hefur um 921 íbúa. Næst minnst er svo Túvalú með 11.636 íbúa og svo Nárú með um 13.048 þúsund íbúa. Þessar tölur eru áætlaður íbúafjöldi í júlí 2005.
Ísland, með sína 300 þúsund íbúa, er í 18. sæti yfir minnstu þjóðríki heims.
Athugið að hér er í rauninni verið að...
Ekki hefur tekist með beinum tilraunum að sýna fram á neinn mun á eiginleikum einstakra rafeinda en það getur ekki talist endanleg sönnun þess að þær séu allar eins. Rafeindin er ein af þeim tiltölulega fáu grundvallarögnum (öreindum) sem við teljum að heimurinn sé samsettur úr. Aðrar vel þekktar öreindir eru ljós...
Í stuttu máli er svarið að það eru engin sérstök neðri mörk á því hversu mikið hægt er að þjappa gögnum. Það er þó ekki hægt að þjappa þeim niður í ekki neitt, því að gögnin verða að komast til skila. En það fer eftir eðli gagnanna og þeim forsendum sem við gefum okkur, hversu mjög við getum þjappað.
Tökum einf...
Þrautin sem um ræðir sést á mynd 1 hér fyrir neðan. Markmiðið er að teikna óbrotna línu, sem sker sjálfa sig ekki, og fer gegnum hvert strik í kassanum á myndinni nákvæmlega einu sinni.
Mynd 1 - Þrautin
Ein tilraun að lausn sést á mynd 2. Þar höfum við þó lent í sjálfheldu, því enn vantar að fara gegnum strikið ...
Ásdís Birgisdóttir: Af hverju snúast dekkin á bílum alltaf öfugan hring í bíómyndum?
Einar Bragi: Af hverju sýnast hjólin snúast aftur á bak í sjónvarpi og bíó?Sumir virðast halda að þetta gerist alltaf en það er ekki rétt; það gerist bara stundum! Í fyrsta lagi duga ekki hjól af venjulegustu gerð til að þe...
Frumeindaklukkur (e. atomic clock) eru nákvæmustu tímamælingatæki sem smíðuð hafa verið. Slíkar klukkur meta lengd einnar sekúndu út frá náttúrulegum sveiflutíma ákveðinna frumeinda.
Flestallar klukkur hafa innbyggt einhvers konar kerfi sem hefur náttúrlegan sveiflutíma. Þessi sveiflutími er síðan notaður til ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!