Kvenkynsorðið gríð merkir ‘ákafi, áfergja’ og er skylt orðinu gríður sem var í fornu skáldamáli notað sem tröllkonuheiti, meðal annars í kenningum. Með gríðar stóði, gríðar grástóði og gríðar fákum er til dæmis átt við úlfa í kveðskap.
Gríður hét einnig tröllkona sú sem Þór átti soninn Viðar með samkvæmt Sno...
Orðasambandið að halda á spöðunum er í nútímamáli aðallega notað í merkingunni ‘keppast við eitthvað, halda kappsamlega áfram við eitthvert verk’. Ef litið er í seðlasafn Orðabókar Háskólans má sjá að eldri mynd orðasambandsins er að hafa eitthvað á spöðunum og á Orðabókin elst dæmi um það frá síðari hluta 18. ald...
Ólafur Davíðsson þjóðfræðingur flokkar leikinn "að gefa selbita" undir hrekkjabrögð og nánar undir fantabrögð (1887:167). Hann lýsir verknaðinum þannig:Selbiti eða sölbiti er fólginn í því að fremsti liðurinn á laungutaung eða vísifíngri er spentur við þumalfíngursgóminn; er honum svo kipt fram af gómnum á höndina...
Orðið spönn er ákveðin mælieining ‛þriðjungur úr alin, bilið milli góma þumalfingurs og litlafingurs (eða vísifingurs) útglenntra’. Orðasambönd með spönn og rassi eru til í fleiri en einni gerð. Elst dæmi í söfnum Orðabókar Háskólans er um að sjá ekki spönn úr rassi, það er að sjá nánast ekkert og er það úr ...
Orðasambandið yfir höfuð er fengið að láni úr dönsku. Þar er það notað í tvenns konar merkingu, annars vegar neitandi eða spyrjandi, það er ‛alls ekki’ eða ‛yfirleitt’, „jeg er overhovedet ikke enig“, „ég er alls ekki (yfir höfuð ekki) sammála“, eða „har hun overhovedet sagt noget?“ „hefur hún yfirleit...
Orðasambandið að hnoða hinn þétta leir er ekki algengt í málinu. Í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans eru fjórar heimildir. Tvær eru frá 18. öld, önnur úr öðru bindi postillu Jóns biskups Vídalín (1724) en hin úr bók með sjö predikunum (1722) en af þeim samdi Jón Vídalín sex. Í báðum tilvikunum er um fjármuni að ræ...
Spurningin í fullri lengd hljóðar svona: Hvaðan er máltækið að sitja eftir með sárt ennið komið? Hvernig er hægt að sitja eftir með sárt enni?
Orðasambandið þekkist að minnsta kosti frá miðri 18. öld og er merkingin 'missa af feng, verða fyrir vonbrigðum'. Í seðlasafni Orðabókar Háskólans er elst dæmi úr þýðin...
Upprunalega hljómaði spurningin svona:
Getur orðið „Hæ” verið heil setning (Úr orðflokknum upphrópun)?
Hæ er upphrópun sem ein og sér er ekki heil setning. Í ritinu Handbók um málfræði skilgreinir Höskuldur Þráinsson setningu á þessa leið (1995:136):
Setning er orðasamband sem inniheldur eina aðalsögn, og o...
Eftir því sem vitað er tengist orðasambandið að prumpa í stampinn Norðurlandi, einkum Akureyri. Það er í raun merkingarlítið. Allir þekkja sögnina að prumpa ‘leysa vind’ og nafnorðið stamp um kringlóttan bala. Sunnlendingar gerðu og gera ef til vill enn gys að norðlensku málfari, einkum rödduðum framburði. Á Tímar...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Af hverju er slæmt að setja strik í reikning? Hvers konar strik er það?
Orðasambandið að setja/gera strik í reikninginn merkir að eitthvað breyti einhverju, raski einhverju sem áður hafði verið gert ráð fyrir. Það þekkist að minnsta kosti frá miðri 19. öld samkvæmt Rit...
Orðasambandið rembast eins og rjúpa við staurinn þekkist að minnsta kosti frá því snemma á 19. öld. Í Safni af íslenskum orðskviðum sem Guðmundur Jónsson gaf út 1830 er gefið upp sambandið: „Hann rembist í kút og kvartil (eins og rjúpan við staurinn).“ „ … eins og rjúpan við staurinn“ er reyndar viðbót í sviga en...
Orðasambandið að eitthvað kosti kúk og kanil virðist ekki gamalt í málinu. Það hefur ekki komist inn í orðabækur eða orðtakasöfn en virðist mjög algengt á Netinu. Ekki er það heldur að finna í Slangurorðabókinni á Netinu. Merkingin er ‛lítið sem ekki neitt’. Ef eitthvað kostar kúk og kanil er það hræódýrt. A...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hver er tilurð frasans „sama og þegið“ og hvers vegna er hann notaður þegar eitthvað er afþakkað?
Orðasambandið sama og þegið er notað í kurteisisskyni þegar einhverju er hafnað. Dæmi finnast á timarit.is frá því fyrir miðja 20. öld. Elsta dæmið þar er frá 1937 úr bla...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvað eru grafgötur og hvað merkir orðasambandið að fara (ekki) í grafgötur með eitthvað?
Orðið grafgötur er fleirtöluorð og merkir 'djúpar, niðurgrafnar götur, niðurgrafnir stígar'. Það er notað í orðasamböndunum fara ekki í grafgötur um eitthvað eða ganga ekki í gr...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Kannist þið við orðið tíri/týri um timburstafla (stæða af borðum t.d. 1"x 6")? Heyrði þetta fyrst í byggingavinnu um 1962.
Hvergi hef ég fundið orðið tíri eða týri í þeirri merkingu sem um var spurt. Ég hef spurt nokkra sem unnu í byggingarvinnu á sjöunda áratug síðustu...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!