Kvenkynsorðið æs merkir ‘kantur, brún, jaðar (einkum á skinni)’ en einnig ‘rifa eða gat til að draga eitthvað í gegnum’. Fleirtalan er ýmist æsar eða æsir. Það er fyrra merkingarsviðið sem kemur fram í orðasambandinu ‘út í ystu æsar’ og er fleirtalan þar oftast með -ar. Merking þess er 'algerlega' eða 'til fulls'....
Orðasambandið að hleypa í brýnnar er notað um að láta í ljós óánægju eða reiði með því að draga saman augabrúnirnar. Einnig er talað um að hleypa brúnum í sömu merkingu.
Ýmsar aðrar sagnir eru notaðar til að lýsa óánægju eða reiði með einhvers konar augngrettum. Vel er þekkt að yggla brýnnar og setja í brýnnar...
Herslumunur er samsett orð úr hersla ‘herðing, það að herða; áreynsla’ og munur ‘mismunur, breyting’.
Hér vantar aðeins herslumuninn.
Herslumunur er notað um smávegis átak til viðbótar svo að unnt sé að ljúka einhverju. Það er mjög oft notað í sambandinu það vantar aðeins/ekki nema herslumuninn og er þá átt...
Merking orðatiltækisins grunaði ekki Gvend er ‛datt mér ekki í hug, ég átti von á þessu’. Það er ekki gamalt, virðist koma fram snemma á 20. öld. Í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndals (1920–1924) er einnig nefnt grunaði ekki gamla Gvend en viðbótin gamla hefur ekki verið mjög algeng.
Hugsanlega lig...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:
Hver er uppruni setningarinnar „að vera fjarri góðu gamni“?
Orðasambandið þekkist frá 17. öld í lítið eitt annarri mynd: langt frá góðu gamni. Um fjarri góðu gamni eru elstu dæmi frá síðari hluta 19. aldar. Gaman merkir hér ‘ánægja, skemmtun’ og sá sem er fjarstaddur missi...
Orðatiltækið það er of seint í rassinn gripið er fremur nýtt í málinu og uppruni ekki alveg ljós. Það gæti tengst orðatiltækinu að grípa í rassinn á deginum sem þekkt er allt frá 17. öld í merkingunni ‘byrja á einhverju of seint’. Þá gæti hugsunin verið að of seint sé að grípa í rassinn á einhverjum, sem ná þurfi ...
'Að hafa ekki grænan' er stytting á orðtakinu 'að hafa ekki grænan grun'. Merking þess er að hafa ekki hugmynd um eitthvað, að standa algjörlega á gati.
Hér er enn ósvarað af hverju grunurinn er grænn. Guðrún Kvaran segir í svari sínu við spurningunni Hvaðan kemur græni liturinn í "einum grænum hvelli"? að græ...
Orðtakið bera beinin í merkingunni ‘deyja, ljúka lífi sínu’ er þekkt í fornu máli og hefur lifað allt fram á þennan dag. Af dæmum úr fornum textum er augljóst að um sterku sögnina bera er að ræða (bera – bar – bárum – borið).
Í bókinni Íslenzkt orðtakasafn (1968:52) getur Halldór Halldórsson sér þess til að sö...
Orðatiltækið að ‘verða fyrir barðinu á einhverjum’ virðist ekki gamalt í málinu ef marka má söfn Orðabókar Háskólans. Elstu dæmi eru frá fyrri hluta 20. aldar og er merkingin ‘verða fyrir reiði einhvers, fá að kenna á kröftum einhvers’.
Orðið barð hefur fleiri en eina merkingu. Ein þeirra, sem þekktist þegar í...
Orðasambandið að láta deigan síga er notað í merkingunni ‘missa ekki kjarkinn, gefast ekki upp, láta ekki bilbug á sér finna’. Eldri mynd orðasambandsins, sem Orðabók Háskólans á dæmi um frá 19. öld, er að láta ekki deigan á síga í sömu merkingu og sagnarsambandið að vera deigur á e-ð ‘óttast eitthvað, hafa áhyggj...
Að fá sér einn gráan merkir að ‘fá sér snafs, fá sér neðan í því’. Jón G. Friðjónsson nefnir orðasambandið í bók sinni Mergur málsins (2006:270) en gefur enga skýringu.
Ég tel líklegast að upphaflega hafi verið átt við brennivínsstaup, landa eða vodka, það er gráleitan eða litlausan drykk. Ég hygg að fáir eða ...
Orðatiltækið „með lögum skal land vort byggja“ var vel þekkt til forna um öll Norðurlönd. Það kemur fyrir í Jótalögum, Upplendinga- og Helsingjalögum og í Frostaþingslögum. Í íslenskum heimildum er orðatiltækið þekkt úr Njáls sögu með viðbótinni „...en með ólögum eyða“ sem einnig er í Frostaþingslögum.
Í 70. k...
Orðatiltækið að lifa eins og blóm í eggi er notað um að ganga allt í haginn, njóta lífsins, lifa í vellystingum. Blóm merkir í þessu sambandi ‘eggjarauða’ en hún er einnig nefnd blómi (kk.). Blóm í merkingunni ‘eggjarauða’ er líklegast tökumerking úr dönsku, æggeblomme.
Eggjarauða, eða blóm.
Annað orðtak sem...
Orðið bura var notað um kvenúlpu með standkraga sem krækt var að framan. Nú til dags er orðið frekar haft um lélega úlpu, oft frekar fyrirferðarmikla, eða olíukápu.
"Áttu börn og burur" kemur að minnsta kosti fyrir í munnmælasögum frá 17. öld. Lengri gerðin: "Áttu börn og buru, grófu rætur og muru" þekkist ve...
Orðatiltækið á elleftu stundu á rætur að rekja til Biblíunnar.
Í 20. kafla Matteusarguðspjalls segir Jesús lærisveinum sínum dæmisögu af húsbónda einum sem gekk út snemma morguns í þeim tilgangi að ráða verkamenn til vinnu í víngarði sínum. Vinnudagurinn hjá Gyðingum stóð frá sex að morgni til sex síðdegis. Su...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!