Spurningin í heild er sem hér segir:
Hvernig er stærðfræðileg skýring á Quicksort algoritmanum? Er til hraðari algoritmi til þess að raða gögnum og ef svo er, hvernig er hann?
Til eru ýmsar útgáfur af Quicksort röðunaraðferðinni, en grunnaðferðinni má lýsa þannig að byrjað er á að velja svokallað vendistak (á en...
Spurningin í fullri lengd var svona:
Hvaðan kemur orðið renus sem gefur til kynna að maður eigi ekkert eftir af einstakri sort í spilum?
Lýsingarorðið renus 'litþrota (í spilum)’ er fengið að láni úr dönsku renonce sem aftur fékk orðið úr frönsku renonce af sögninni renoncer 'hætta við; fylgja ekki lit’.
...
Það má skipta límgerðum gróflega í tvo flokka eftir virkni þeirra. Annar flokkurinn byggir á herslu (stífnun) af völdum efnahvarfa og hinn flokkurinn byggir á herslu af völdum uppgöfunar vökva (leysi). Lím í fyrri flokknum eru almennt sterkari en lím úr seinni flokknum en jafnframt eru þau oft vandmeðfarnari og ge...
ECR er skammstöfun á Efficient Consumer Response og hefur það verið þýtt sem skilvirk neytendasvörun. QR er skammstöfun á Quick Response, sem þýðir einfaldlega skjót viðbrögð. Bæði hugtökin eru notuð í tengslum við vöruflæði og birgðastjórnun og samskipti einstakra liða í keðju fyrirtækja frá framleiðanda til neyt...
Upphaflega spurningin var sem hér segir:
Hverjar eru líkurnar á að 52 spil raðist þannig eftir stokkun að þau koma í „réttri röð“, til dæmis kóngur og eftirspil í sömu sort, síðan kóngur og eftirspil í sömu sort og svo framvegis?
Í þessu svari gerum við ráð fyrir að stokkunin sé framkvæmd þannig að nákvæmlega ...
Það er frekar erfitt að segja nákvæmlega hvenær fyrstu bílarnir urðu til. Bílar eins og við þekkjum þá voru ekki fundnir upp í einu vetfangi heldur þróuðust þeir af eldri farartækjum.
Fyrstu gufuknúnu bílarnir voru smíðaðir á seinni hluta 18. aldar. Reyndar eru til sögur um að kaþólskur prestur að nafni Ferdina...
In Old Icelandic, when the word sonr formed the second part of a compound, i.e. Magnús-son, Sigurðs-son, the final -r (-ur) was dropped in nominative singular, and the same morphology is used in Modern Icelandic. E.g.:
Nom. Magnús Sigurðsson (son(u)r)
Acc. Magnús Sigurðsson (son)
Dat. Magnúsi Si...
Bandaríski jólasveinninn Santa Claus er yfirleitt talinn eiga heimkynni sín norðarlega á hnettinum, þrátt fyrir að draga nafn sitt af heilögum Nikulási sem var biskup í Litlu-Asíu. Um þetta má lesa meira í svari við spurningunni Bjó Coca-Cola-fyrirtækið bandaríska jólasveinninn til? Líklegt er að hreindýr hafi orð...
Heimildum ber nokkuð saman um það að nú á tímum nái jöklar yfir um 15 milljónir km2 af yfirborði jarðar sem er um það bil 3% af heildarflatarmáli jarðarinnar og um eða yfir 10% af flatarmáli þurrlendis jarðar.
Suðurskautslandið með hafís umhverfis.
Jökulskjöldur Suðurskautslandsins er langstærsta jökulbreiða ...
Á nokkrum stöðum í Kóraninum er að finna texta sem hægt er að túlka sem tilmæli um að konum beri að hylja sig. Sumir textarnir virðast einungis fela í sér boð um almenna hógværð og látleysi en ekki endilega fyrirmæli um ákveðinn klæðaburð.
Mikill munur er á því hvernig fræðimenn túlka þessa texta. Sumir líta sv...
Frumspeki er undirgrein heimspekinnar sem fjallar um eðli veruleikans. Á ensku heitir frumspeki metaphysics en það og samsvarandi orð í öðrum málum er komið úr grísku. Þegar ritverk Aristótelesar voru gefin út á 1. öld f. Kr. var bókunum um frumspeki nefnilega gefinn titillinn ta meta ta physika sem merkir „bækurn...
Spaðafaldurinn er frá seinni hluta 18. aldar. Á vef Þjóðbúningaráðs er honum lýst svona: Hann var úr hvítu lérefti sem var nælt með títuprjónum yfir pappa eða vír. Spaðinn var breiðastur fremst og mjókkaði aftur og niður í faldfótinn sem var festur við litla lérefts- eða prjónahúfu. Utan um faldfótinn og húfuna va...
Upprunalega spurningin var:
Hvert er fjölmennasta dýr jarðar eða hvaða tegund?
Stutta svarið er að það er ekki vitað hvaða einstaka tegund telur flesta einstaklinga en það er væntanlega einhver smár hryggleysingi.
Tölur um stofnstærðir eru alltaf mat vísindamanna því ógerlegt er að telja alla einstaklin...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!