Nafnorðið straff í merkingunni ‛hegning’ og sögnin að straffa ‛refsa’ eru þekkt í málinu frá því á 16. öld. Um er að ræða tökuorð úr dönsku straf og straffe í sömu merkingu sem aftur eru fengin að láni úr miðlágþýsku straf(f) og straffen ‛ávíta, aga, refsa’. Hægt er að straffa mönnum á margvísleg...
Spurnarfornafnið hvor er notað þegar átt er við annan, aðra eða annað af tveimur, en hver ef átt er við einn, eina eða eitt af fleiri en tveimur. Dæmi:
Guðrún á tvær dætur. Hvor er líkari henni?
Báðar peysurnar eru götóttar. Hvor er skárri?
Báðar peysurnar eru götóttar. Hvora viltu heldur?
Tveir umsækjendur er...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Hvort er réttara að skrifa „tugthús“ eða „tukthús“? Finn það ekki með „G“ inni á Ritmálasafni Árnastofnunar.
Sögnin tukta, einnig ritað tugta, er leidd af nafnorðinu tukt sem merkir ‘góðir siðir, siðvendni’. Sögnin merkir ‘refsa, siða’, til dæmis tukta einhvern til ‘siða e...
Í grundvallaratriðum fylgir réttarkerfi okkar á Íslandi þeim almennu réttarfarshugmyndum sem mótast hafa síðustu tvær aldir á Vesturlöndum. Gengið er út frá því að einstaklingar búi yfir frjálsum vilja og að afbrotamenn séu ábyrgir gerða sinna með örfáum undantekningum sem felast einna helst í ósakhæfi vegna ungs ...
Það tilvik sem lýst er í spurningunni hefur hvergi komið til kasta dómstóla svo vitað sé. Hér er því um vangaveltur að ræða hvernig tekið yrði á slíkum málum en lög og reglur veita engin svör um þetta.
Spurningin tengist raunar annarri og stærri spurningu um hvernig fara skuli með réttindamál síamstvíbura. Eru...
Orðasambandið að velgja einhverjum undir uggum er notað í merkingunni ‛þjarma að einhverjum, láta einhvern finna fyrir valdi sínu’. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans um orðtakið er úr Skírni frá 1839:Áli jarl hafði í hyggju að velgja Tirkjum undir uggum.
Halldór Halldórsson getur sér þess til í ...
Í því skyni að svara þessari spurningu er tilvalið að leita til franska heimspekingsins Henri Bergsons (1859-1941). Hann setti fram kenningar sínar um hlátur um aldamótin 1900, í frægri ritgerð sem einfaldlega heitir Hláturinn (Le Rire). Enn í dag eru hugmyndir hans mikilvægar, þó ekki sé nema vegna þess hversu mi...
Í riti sínu Pensées (grein 418) segir Blaise Pascal (1623-1662):
Annað hvort er Guð til eða hann er ekki til. En hvort eigum við að halda? Skynsemin getur ekki skorið úr. Á milli þessara tveggja kosta er ginnungagap og úti í óendanleikanum er hlutkesti varpað. Hvor hliðin kemur upp? Á hvað ætlar þú að veðja?
S...
Eiturlyf hafa verið til frá alda öðli en á undanförnum áratugum hafa sterkari, og jafnvel mannskæð efni verið þróuð og hefur það kallað á hertari löggjöf um fíkniefni almennt.
Á Íslandi er skýr og skilmerkileg löggjöf varðandi eiturlyf. Í lögum númer 65/1974 um ávana- og fíkniefni er í 2. grein tekið fram að v...
Samkvæmt grískri goðafræði var Pandóra fyrsta konan á jörðinni.
Guðirnir höfðu falið bræðrunum Epimeþeifi (nafnið þýðir eftirsjá) og Prómeþeifi (“forsjálni”) að fylla jörðina lífi. Epimeþeifur byrjaði á að skapa dýrin og gaf þeim ýmsa eiginleika, styrk, hraða og klókindi, og feld og fjaðrir til að verja sig með...
Orfeifur var sonur Oeagrusar Þrakíukonungs og listagyðjunnar Kallíópu sem nefndist svo vegna þess hve rödd hennar var þýð. Orfeifur var frægasti söngvari, skáld og tónlistarmaður fornaldar. Grísku músurnar eða menntagyðjurnar, kenndu honum að leika á lýru og með hljóðfæraslætti gat hann hann tamið villidýr og sagt...
Snorri Sturluson fæddist í Hvammi í Dölum árið 1178 og var veginn í Reykholti árið 1241. Hann var mikill stjórnmálamaður, fræðimaður og eitt merkasta skáld Íslendinga en hann skrifaði meðal annars Heimskringlu og Eddu. Sumir fræðimenn telja hann einnig höfund Egils sögu.
Snorri var sonur Hvamm-Sturlu og t...
Stjörnumerkið Óríon er að margra mati meðal fegurstu stjörnumerkja himinsins. Í goðafræðinni var Óríon veiðimaðurinn mikli, sonur Póseidons og Eruyale drottningar. Hann stærði sig af því að geta drepið hvaða skepnu sem var á og var hreykinn af sjálfum sér. Það kom að því að guðirnir fengu nóg af stærilæti Orío...
Þessu getur eiginlega enginn svarað nema andinn sjálfur. Skapferli anda er mjög mismunandi eftir því sem við höfum heyrt og má því búast við að þeir mundu bregðast mjög misjafnlega við þessu.
Sumir andar eru strangir og kannski geðvondir, hafa jafnvel sofið illa síðustu nótt (við höldum að andar sofi á nótt...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Gilda reglur um tattóveringu íslenska fánann? Eru jafn strangar reglur um skjaldarmerkið og fánann?Um meðferð íslenska þjóðfánans og skjaldarmerkisins gilda lög nr. 34/1944 um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið. Reglur um notkun skjaldamerkisins eru mun strangari en ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!