Áður en vasareiknar komu til sögu voru reiknistokkar og logratöflur (lógaritmatöflur) notaðar til reikninga af þessu tagi. Það kostaði allnokkra vinnu og vasareiknarnir spara okkur hana. Til þess að gera slíka reikninga án nokkurra hjálpartækja þarf talsverða stærðfræðikunnáttu og -leikni.
Einungis í mjög fáu...
Eldflugur eru í raun ekki flugur heldur bjöllur af ættinni Lampyridae. Á ensku nefnast bjöllur af þessari ætt fireflies eða lightning bug. Rúmlega 1100 tegundir eru þekktar af bjöllum sem nota ljósmögnun (e. bioluminescence) til samskipta sín á milli, langoftast á pörunartímanum. Dýrin laða þá aðila af hinu kyninu...
Einfaldasta svarið við þessari spurningu er að þjóðsögur eru yfirleitt ekki byggðar á sönnum atburðum, en engu að síður er hægt að lesa ýmislegt úr slíkum sögum um veruleikann.
Þjóðsögum má skipta í ævintýri og sagnir. Ævintýri er löng formúlukennd frásögn sem oft er óbundin stað og tíma og gerist í ímynduðum ...
ECR er skammstöfun á Efficient Consumer Response og hefur það verið þýtt sem skilvirk neytendasvörun. QR er skammstöfun á Quick Response, sem þýðir einfaldlega skjót viðbrögð. Bæði hugtökin eru notuð í tengslum við vöruflæði og birgðastjórnun og samskipti einstakra liða í keðju fyrirtækja frá framleiðanda til neyt...
Skammrif er annars vegar notað um stutt rifbein í kind, það er eitthvert af fjórum fremstu rifjunum en hins vegar um framhluta kindarskrokks (bringu, hrygg og fjögur fremstu rifin). Orðið er notað í tveimur orðasamböndum, það eru komin/farin skammrifin úr deginum ‘það er tekið að líða á daginn’ og þar fylgir böggu...
Orðið klósett er talið tökuorð úr dönsku, kloset. Þangað er orðið komið úr ensku, sbr. water-closet í sömu merkingu. Að baki liggur fornfranskt orð clos með smækkunarendingu, þ.e. closet, sem aftur á rætur að rekja til latínu clausus 'lokaður'. Það er því rétt að klósett og enska closed eru skyld orð....
Orðið kverúlant er dönsk sletta en í dönsku er kværulant notað um þann sem er kvartsár og aðfinnslusamur. Það á rætur að rekja til latínu en sögnin qveror merkir að ‘kvarta yfir einhverju’ og nafnorðið qverulus er notað um þann sem kvartar.
Í ritmálssafni Orðabókar Háskólans er nú aðeins eitt dæmi um kverúlant...
Samrunaorka er orkan sem losnar úr læðingi við kjarnasamruna (e. nuclear fusion). Léttir atómkjarnar renna þá saman og mynda aðra þyngri. Massi léttu kjarnanna er samanlagt meiri en massi þyngri kjarnanna sem myndast og þessi massamunur kemur fram sem orka samkvæmt hinni frægu jöfnu EinsteinsE = m c2Mikill hluti þ...
Í svari við spurningunni Hver er munurinn á ávöxtum og grænmeti? kemur skýrt fram að tómatar eru ávextir í fræðilegum skilningi. Þar segir meðal annars:Hin fræðilega skilgreining virðist vera á þann veg að til ávaxta teljist allar þær jurtaafurðir sem vaxið hafa úr egglegi (ovary) frævunnar á plöntu og umlykja fræ...
Uppruni forliðarins splúnku- í orðinu splúnkunýr er óljós. Orðið virðist ekki tökuorð og helst er giskað á að um blendingsmynd sé að ræða úr orðunum flunkunýr og splundurnýr.
Flunkunýr á rætur að rekja til dönsku flunkende ny af sögninni flunke sem merkir 'blika, skína' og splundurnýr er einnig rakið til dönsku...
TT stendur hér fyrir Telegraphic Transfer og á rætur sínar að rekja til þess er símskeyti voru notuð til að færa fé á milli bankareikninga, í þessu tilfelli af bankareikningi kaupanda (innflytjanda) á reikning seljanda (útflytjanda). Rafrænar millifærslur eru nútímaútgáfa af þessu.
L/C stendur fyrir Letter of C...
Ásgeir Blöndal Magnússon tengir í Íslenskri orðsifjabók (1989:1189–1190) –þrasir í nöfnunum Dolgþrasir, Lífþrasir og Mögþrasir sögninni að þrasa ‛þjarka, þrefa, þrátta; †æða, fara hratt; fnæsa’. Af henni er leitt nafnorðið þras ‛þræta, þjark, hávaði’. Af sama toga telur hann kvenmannsnafnið Hlífþrasa í...
Þekktar eru um 3.500 tegundir fluga sem í daglegu tali nefnast moskítóflugur en eru tegundir innan ættarinnar Culicidae. Þær eru flokkaðar niður í rúmlega 40 ættkvíslir. Flestar eru ættkvíslirnar í hitabeltinu en tegundir af ættkvíslinni Aedes finnast á tempruðu svæðum jarðar, svo sem í Evrópu. Þess má geta að hei...
Ágæt spurning, en svarið er nei – ekkert tómarúm myndast. Reyndar er til merk regla í jarðfræðinni sem segir: Náttúran þolir ekki tómarúm (á ensku: Nature abhors vacuum).
Kannski mætti líkja eldstöð við vatnsfyllta blöðru sem hleypt er úr: rúmmál blöðrunnar minnkar sem svarar vatnstapinu en blaðran er jafnfull...
Nöfn sem notuð eru í grannlöndum og hefjast á Zim- eru af fleiri en einum uppruna. Sum þeirra eru háþýsk, t.d. Zimmer, Zimmerle, Zimmerling, Zimmermann. Þar liggur að baki fornháþýskt orð, zimbar 'smíðaefni, hús, hýbýli', sem samsvarar íslenska orðinu timbur.
Önnur eru af slavneskum uppruna eins og til dæmis Z...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!