Við þessari spurningu er sennilega ekkert eitt rétt svar. Tvær ástæður eru fyrir því, sé svarið eingöngu miðað við lengd fullvaxins dýrs. Önnur ástæðan er flokkunarfræðileg: Hvað er dýr? Hin varðar nákvæmni og viðmið í mælingum.
Í flokkunarfræði nútímans eru þeir einfrumungar sem áður töldust vera einfruma dýr,...
Það er rétt að ljóshraðinn er nálægt þessari einföldu tölu þegar við skrifum hann samkvæmt metrakerfinu sem við notum í mælingum og tugakerfinu sem við notum venjulega til að skrifa tölur. Ef spyrjandi á við þetta tölulega atriði er hins vegar rétt að upplýsa að vísindamenn líta yfirleitt á það sem algera tilvilju...
Þegar menn eða dýr bíta, þá gera þau það með munninum. Geitungar hafa brodd á afturendanum og er hann að uppruna varppípa. Þeir beita broddinum bæði til fæðuöflunar og til varnar. Það er því rétt að segja að þeir stingi andstæðing sinn en bíta hann ekki þar sem munnurinn kemur ekkert við sögu, eingöngu broddurinn ...
Kvenkynsorðið kví merkir ‘rétt til að mjólka kvíaær’. Kvíin var ýmist hlaðin úr grjóti eða gerð úr trégrindum og var þá færanleg (færikvíar). Þangað eiga rætur að rekja orðasamböndin færa út kvíarnar í yfirfærðri merkingu ‘stækka við sig’ og færa saman kvíarnar ‘minnka við sig’. Orðið þekkist þegar í fornu máli (J...
Neysluvatn er skilgreint sem matvæli og því eru vatnsveitur með eigið eftirlit rétt eins og matvælafyrirtæki og undir eftirliti heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Allt er þetta gert til þess að tryggja öryggi neytenda.
Ár og lækir eru ekki undir slíku eftirliti og rannsóknir hafa sýnt að þetta vatn getur veri...
Í ritinu Ríkjaheiti og þjóðernisorð (Statsnavne og nationalitetsord) sem Norræn málstöð gaf út 1994 eru nefnd heitin Mexíkói og Mexíkómaður (bls. 25). Það kemur heim og saman við það að heldur er amast við endingunni -ani í þjóðaheitum. Sjá umfjöllun á Vísindavefnum um orðin Kúbani og Kúbverji....
Upprunalega spurningin var þríþætt og hljóðaði svona:
Hvers lenskt er fólk frá Litháen, er það litháenskt eða litháískt?
Hvað með fólk frá Filippseyjum, er það filippseyskt eða filippískt?
Hvað kallast japanskt fólk, Japanir eða Japanar?
Í mörgum tilfellum vefst það lítið fyrir fólki hvað kalla skuli íbúa ...
Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sem fullgiltur var af Íslands hálfu árið 1992, segir í 19. gr. aðaðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og menntunarmála til að vernda barn gegn hvers kyns líkamlegu og andlegu ofbeldi, meiðingum, misnotkun, vanræksl...
Óhætt er að fullyrða að útbreiddustu trúarbrögðin séu kristni. Kristnir telja um 2 milljarða eða um þriðjung jarðarbúa. Í öðru sæti eru múslimar sem eru 1,2 til 1,3 milljarðar eða kringum 20% íbúa jarðar. Næst koma hindúar; 780 til 900 milljónir eða 13-15%. Búddistar eru 360 milljónir eða 6% og eitthvað um 200 mil...
Ástæðan fyrir því að hnattlíkan gefur nokkuð rétta mynd af yfirborði jarðar en landakort af heiminum ekki, er sú að hnattlíkan er í raun smækkuð mynd af jörðinni þar sem einungis mælikvarðanum hefur verið breytt en löguninni haldið. Á landakortinu er hins vegar búið að fletja hnöttinn út, en það er ekki hægt að ge...
Skýrum fyrst um hvað spurningin snýst. Til einföldunar má segja að hún varði afköst eða getu tölva til að leysa tiltekin verkefni. Það er þó ekki svo einfalt að þetta snúist um hvað tölvan geti framkvæmt margar aðgerðir á sekúndu heldur frekar hvað þurfi margar aðgerðir eða skref til að leysa tiltekið vandamál.
...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað er ský á auga? Hvers vegna skemmast augasteinarnir?
Ský á auga eða drer nefnist það sjúkdómsástand þegar augasteinninn er ekki glær heldur skyggður sem aftur veldur óskýrri sjón. Ef sjúkdómurinn er langt á veg kominn sést að augasteinninn er grár. Slík ský geta komið samtími...
Orðið þúsund er bæði notað í kvenkyni og hvorugkyni. Það er líka notað sem töluorð og þá óbeygt. Það beygist því á tvennan hátt:
Kvenkyn
Hvorugkyn
eintala
nf.
þúsund
þúsund
þf.
þúsund
þúsund
þgf.
þúsund
þúsundi
ef.
þúsundar
þúsunds
fleirtala
nf.
þúsundir
þúsund
þf.
þúsundir
þúsund...
Þegar fjallað er um trúfrelsi sem mannréttindi (hliðstæð við fleiri frelsisréttindi til dæmis málfrelsi, atvinnufrelsi og ferðafrelsi) er að minnsta kosti átt við að mönnum sé heimilt að iðka og aðhyllast hvaða trú sem er, skipta um átrúnað eða hafna öllum trúarbrögðum.
Frelsisréttindi takmarkast af réttind...
Upphaflega svarið sem við birtum við þessari spurningu var vitlaust. Við biðjumst velvirðingar á því og birtum um leið rétt svar.
Tjörnin í Ásbyrgi heitir Botnstjörn. Botnstjörn er í botni Ásbyrgis. Ástjörn er hins vegar rétt hjá Ásbyrgi og fyrir utan það.
Heimild: Náttúruvernd
Þetta...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!