Þetta er snúin spurning. Þó má draga fram nokkur atriði sem gætu réttlætt þessa einkunn:
Eitthvað hefur orðið til á Íslandi og hvergi annars staðar.
Eitthvað hefur flust til Íslands og varðveist þar en horfið annars staðar.
Eitthvert fjölþjóðlegt fyrirbæri hefur fengið sérstætt snið á Íslandi.
Áður en f...
Þessi vísa birtist fyrst í seinna bindinu af þjóðsögum Jóns Árnasonar árið 1864:
Upp á stólstendur mín kanna;níu nóttum fyrir jól,þá kem ég til manna.
Stóllinn sem kannan stendur á heitir könnustóll og var þekkt húsgagn á heimilum heldri manna á miðöldum. Á honum stóðu ýmis ílát með vínföngum. Vísan virðist ...
Hundurinn (Canis familiaris) er vinsælasta gæludýr mannsins ásamt heimiliskettinum. Hundurinn er þó oft ekki aðeins gæludýr heldur gegnir hann öðrum hlutverkum í þágu mannsins, svo sem smölun, hjarðgæslu, ýmiss konar aðstoð við veiðar og sömuleiðis verndun og vörnum. Í rúm 12 þúsund ár hefur hann verið veiðifélagi...
Út frá rannsóknum á steingervingum er sennilegt að tegund nokkur af fylkingu armfætlinga (brachiopoda), sem fengið hefur íslenska nafnið tyngla en nefnist á latínu lingula, sé sú tegund sem lengst hefur verið við lýði af núlifandi tegundum jarðarinnar. Tegund þessi hefur fundist í steingervingalögum frá kambríum t...
Nýlega var undirritaður samningur um áframhaldandi stuðning Happdrættis Háskóla Íslands og Háskóla Íslands við Vísindavef HÍ. Happdrætti Háskólans og Háskóli Íslands eru aðalstyrktaraðilar Vísindavefsins og stuðningur þeirra tryggir grunnrekstur vefsins.
Vísindavefur Háskóla Íslands varð 20 ára á þessu ári og h...
Hið sveigða tímarúm Einsteins er tímarúmið sem við og ljósgeislar og allt efni ferðast um. Í almennu afstæðiskenningunni er ekkert þyngdarsvið. Þess í stað er tímarúmið sveigt. Það merkir til dæmis að hornasumman í þríhyrningi er ekki endilega 180° nákvæmlega, og ljósgeislar fara ekki alltaf eftir beinum línum.
...
Talið er að massamiklar stjörnur endi æviskeið sitt sem svarthol. Svarthol verða til þegar kjarnar stjarnanna falla saman undan eigin massa. Kjarninn fellur saman þangað til hann er orðinn geysilega þéttur og allur massinn er saman kominn á örlitlu svæði. Umhverfis það er þyngdarsviðið svo sterkt að ekkert sleppur...
Því miður hefur lítið verið skrifað um náttúruspeki franska heimspekingsins René Descartes (1596–1650) á íslensku. Í inngangi sínum að Orðræðu um aðferð eftir Descartes skrifar Þorsteinn Gylfason:
[Descartes] hafði þar með sýnt fram á það að um himneska hluti giltu sömu lögmál og gilda um jarðneska hluti. Í öllu ...
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:Hver var munur á vinnumönnum/konum og húsmönnum/konum? Ég tek eftir báðum þessum starfsheitum langt fram á 19. öld.
Í íslensku fornmáli koma orðin húsmaður og húskona ekki fyrir í þeirri merkingu sem þessi orð hafa á síðari öldum. Á elsta stigi sem við þekkjum eftir að þr...
Upprunalega spurningin var:
Hvernig og hvar flokkast SWAPO-flokkurinn í Namibíu? Er hann vinstri flokkur eða er hann hægri flokkur eða er hann eitthvað annað?
Skammstöfunin SWAPO stendur fyrir 'South West African People‘s Organization' en það er nafn á ráðandi stjórnmálaflokki í Namibíu. Upphaflega var SWAP...
Einfaldasta svarið við þessari spurningu er að þú sérð það ekki.
Fyrir því eru tvær meginástæður. Hin fyrri er sú að það hvort hlutur er listaverk veltur á mörgu öðru en því sem við sjáum, til dæmis á samhenginu sem hluturinn stendur í, hugmyndinni að baki verkinu, ætlun listamannsins, og þeim möguleikum sem l...
Heili Einsteins var breiðari en heilar úr öðrum mönnum en hins vegar ívið léttari. Óvenjulegt mynstur fannst á því svæði heilans sem tengist hæfni í stærðfræði og rúmfræði. Taugafrumur á ákveðnum stöðum virtust líka liggja þéttar saman en venjulegt er. Frekari rannsóknir væru þó æskilegar til að staðfesta þetta be...
Á síðustu öld var talið að allt rúmið væri fyllt með undarlegu efni sem menn kölluðu ljósvaka. Í upphafi aldarinnar varð eðlisfræðingum svo ljóst að ljósvakinn er ekki til og því ætti rúmið að vera tómt. En samkvæmt nútímaeðlisfræði er tómarúmið fjarri því að vera tómt!
Ef allar agnir og eindir væru fja...
Í töflunni hér að neðan má sjá þá upphæð sem Bandaríkin vörðu í Marshall-aðstoðina á árunum 1948-53, og hversu mikið hvert land fékk í sinn hlut. Alls tóku 16 lönd við fjármunum en hér eru Belgía og Lúxemborg talin saman. Tölurnar eru fengnar af heimasíðu Marshall-samtakanna, George C. Marshall Foundation:
Mars...
Síbírískir eskimóahundar (e. Siberian husky) eru óvenju harðgerðir vinnuhundar upprunnir frá Síberíu. Þeir eru allstórir og loðnir með sperrt eyru og hringaða rófu. Þetta ræktunarafbrigði er ættað frá Chuchki-þjóðflokknum í norðaustur Síberíu sem notuðu hundana aðallega til að draga sleða. Síbírískir eskimóahundar...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!