Galllitarefni gefa bæði þvagi og hægðum lit.
Galllitarefni tengjast endurnýtingu rauðra blóðkorna eða rauðkorna. Rauðkorn lifa ekki nema í um það bil 120 daga. Þetta stafar af því að viðkvæmar frumuhimnur þeirra slitna og rifna smám saman þegar rauðkornin troða sér í gegnum háræðar. Slitin, útjöskuð rauðkorn ...
Upphaflega hljóðaði spurningin svona:Hefur nýgengi eitlakrabbameins (Hodgkins) aukist á undanförnum árum? Eru einhverjar rannsóknir til um áhættuhópa?
Hodgkins-sjúkdómur, sem er krabbamein í eitilfrumum, er ekki meðal þeirra meina sem eru í 15 efstu sætum hvað varðar árlegt nýgengi á Íslandi.
Um hann gildir e...
Hér er einnig svarað spurningunni:Er fuglaflensan nokkuð komin til Spánar?
Á heimasíðu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) er hægt að finna upplýsingar um hversu margir hafa greinst með fuglaflensu og hversu margir hafa látist. Nýjustu upplýsingarnar þar eru frá 24. mars 2006. Þá höfðu greinst 186 fuglafle...
Í læknisfræði er spasmi skyndilegur og ósjálfráður samdráttur vöðva, hóps af vöðvum, í veggjum hols líffæris eða samdráttur ops á líffæri. Í daglegu tali er það kallað spasmi þegar krampi kemur í vöðva, oft með skyndilegum sársauka sem líður fljótt hjá en getur varað í nokkrar mínútur eða lengur. Spasmi getur leit...
Hér er einnig svarað spurningunum:Oft þegar við fáum flensu fylgja henni beinverkir. Hvað veldur þeim?Hvað eru beinverkir og hvað veldur sársaukanum?
Beinverkir eru líklega í raun vöðvaverkir (e. myalgia). Þeir og önnur einkenni flensu stafa ekki beint af flensuveirunni sjálfri, heldur eru þau fylgifiskar þess a...
Jónsmessan er kennd við Jóhannes skírara enda eru Jón og Jóhannes aðeins tvö afbrigði sama nafns og hún er sögð fæðingardagur hans. Um þetta má lesa nánar í svarinu Af hverju er nafnið Jónsmessa dregið? eftir Unnar Árnason.
Jónsmessunóttin, aðfaranótt 24. júní, er ein þeirra fjögurra nátta í íslenskri þjóðtrú s...
Í tóbaksreyk eru nokkur þúsund efni og efnasambönd og eru mörg þeirra hættuleg heilsu manna. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á að tóbaksneysla eykur verulega líkurnar á alvarlegum sjúkdómum svo sem krabbameini, hjarta- og æðasjúkdómum og lungnasjúkdómum.
Talið er að um 1,3 milljarður manna í heiminum rey...
Nýrnasjúkdómar eru margir og margs konar. Sumir koma fram strax við fæðingu á meðan aðrir birtast ekki fyrr en á fullorðinsárum. Flestir nýrnasjúkdómar eru ekki arfgengir en flokka má þá arfgengu í sex almenna flokka.
Í fyrsta flokki eru vanskapanir nýrna og annarra þvagfæra. Í öðrum flokki eru ýmsir blöðrusjú...
Í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvað ræður augnalit okkar? segir meðal annars að gen sem við erfum frá foreldrum okkar ráði því hversu mikið litarefni myndast í lithimnu augans og þar með hvaða augnlit við erum með. Meira litarefni þýðir dekkri (brúnni) augu. Gen sem ráða þessu eru líklega mörg...
Heilbrigt fólk sem klæðir sig vel er ekki í sérstakri hættu í köldu veðri. Undirstúka í heila stjórnar viðbrögðum við hitabreytingum og miðar að því að halda helstu líffærum gangandi. Aldur, líkamsástand og undirliggjandi sjúkdómar hafa áhrif á það hvernig fólk bregst við kulda. Helstu viðbrögð líkamans við kulda ...
Hér er einnig svarað spurningunni: Hvað er Meniere sjúkómur og er hægt að lækna hann?
Meniere-sjúkdómur eða völundarsvimi eins og hann er nefndur á íslensku, er sjúkdómur í innra eyra sem orsakast af breytingum á vökvamagni. Sjúkdómurinn einkennist af skyndilegum svima og ógleði, uppköstum, verri heyrn og suði fy...
Til hörgulsjúkdóma teljast allir sjúkdómar sem orsakast af skorti á næringarefnum, en hörgull þýðir einmitt skortur. Þar má fyrst nefna sjúkdóma sem stafa af almennum skorti á mat eða hitaeiningum. Einnig teljast allir þeir sjúkdómar sem stafa af skorti á tilteknu næringarefni vera hörgulsjúkdómar.
Sem dæmi um ...
Jón Snædal hefur unnið mestan sinn starfsaldur á öldrunarlækningadeild Landspítalans en meginviðfangsefni hans hafa verið Alzheimers-sjúkdómur og aðrir sjúkdómar sem valda heilabilun. Hann hefur samhliða starfi sínu stundað vísindarannsóknir í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Rannsóknarstörf hans hófust á t...
Kólera er bráð þarmasýking sem orsakast af staflaga bakteríunni Vibrio cholerae. Tíminn sem líður frá smitun þar til einkenni kóleru koma fram, svokallaður meðgöngutími (e. incubatory period) sjúkdómsins, er stuttur eða frá innan við einum degi til fimm daga.
Bakterían myndar iðraeitur (e. enterotoxin) sem verk...
Þetta er nokkuð flókin spurning, einkum þar sem krabbamein er í raun margir sjúkdómar og eðli krabbameina er afskaplega misjafnt. Almennt mætti þó svara spurningunni í stuttu máli á þann hátt að hafi einstaklingur fengið krabbamein er líklegra að hann fái aftur krabbamein heldur en annar einstaklingur á sama aldri...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!