Skötuselur (Lophus piscatorius) er beinfiskur og hefur fundist á um 1.800 metra dýpi. Hann heldur sig á sendnum eða grýttum botni þar sem hann felur sig í þaragróðri eða í botninum sjálfum og lúrir þar eftir bráð. Hann notar einskonar fálmara ofan á höfðinu sem veiðistöng og lokkar til sín bráðina. Á matseðli sköt...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Getið þið hjálpað mér að finna upplýsingar um nöfn á beinum í þorskhausnum?
Þessi spurning gæti talist með þeim óvenjulegri sem Vísindavefnum berast, og eru þær þó margar og ólíkar. Svarið er sem betur fer samt já! Við getum gefið upplýsingar um beinin í þorskhausnum.
Be...
Stinglaxinn (Aphanopus carbo) er langvaxinn og þunnvaxinn fiskur sem getur orðið allt að 110 cm á lengd.
Í riti Einars Jónssonar fiskifræðings, Íslenskir fiskar, segir hann svo um stinglaxinn:Hausinn er í meðallagi langur, en þunnur og frammjór og flatur að ofan. Neðri skoltur er framteygður og á honum er líti...
Hnúðlaxar (Oncorhynchus gorbuscha) hafa lengi veiðst í íslenskum ám. Þeirra varð fyrst vart í evrópskum ám upp úr miðri 20. öld. Þann 12. ágúst 1960 veiddist einn slíkur í Hítará á Mýrum og var það fyrsti hnúðlaxinn sem kom á land úr íslenskri á. Hnúðlaxana í Evrópu má rekja til tilrauna Rússa til að koma á legg h...
Krókurinn sem vex upp úr neðri skolti á karlfiskum laxfiska, hængunum, er merki um karlmennsku þeirra. Krókurinn er notaður til að kyngreina lax en erfitt getur verið að kyngreina smáan nýgenginn lax (1-1,5 kg) því þá er goggurinn lítill. Krókurinn fer stækkandi í hlutfalli við stærð laxins.
Þegar haustar og ...
Í bókinni Íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson er sardínu lýst svona:Þunnvaxinn fiskur og dálítið sívalur. Haus er í meðallagi, augu eru stór en kjaftur lítill og endastæður. Neðri skoltur teygist þó fram fyrir þann efri, þegar kjafturinn er opinn. Tálknalok eru geislagárótt. Bakuggi er á miðum bol, þó nær trjónu...
Þótt fæðuvistfræði löngu útdauðra dýra eins og grameðlunnar (Tyrannosaurus rex) sé ekki þekkt, þykir nokkuð víst að hún hafi verið kjötæta. Lengi vel töldu menn að grameðlan hafi trónað efst á toppi fæðupíramíta risaeðla á krítartímabilinu. Stórkostleg líkamsstærð hennar og risaskoltur ollu því að engin risaeðla g...
Adeliemörgæsin (Pygoscelis adeliae) er meðal smæstu núlifandi tegunda mörgæsa í heiminum, um 3-5 kg að þyngd og um 70 cm á hæð.
Heimkynni adeliemörgæsarinnar er Suðurskautslandið og nokkrar aðliggjandi eyjar og er hún eina mörgæsin fyrir utan keisaramörgæsina (Aptenodytes forsteri) sem verpir á Suðurskautsland...
Síld (Clupea harengus) hefur verið kölluð silfur hafsins vegna þeirra verðmæta sem hún skapaði íslensku þjóðinni á síðustu öld. Á þeim árum sem mest veiddist af síld var heildarsíldarafli íslenskra skipa oft yfir 600 þúsund tonn og mest 770 þúsund tonn árið 1966. Síldin var verkuð í þorpum og bæjum víða norðan- o...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!