Nauðsynlegt er að fjalla fyrst um hugtakið samlífi (symbiosis) sem komið er af gríska orðinu symbioun 'að lifa saman'. Undir það heyra síðan nokkur önnur hugtök sem lýsa nánar eðli samlífisins. Þau hugtök eru gistilífi (commensalism), samhjálp (mutualism) og sníkjulífi (parasitism).
Samlífi þar sem önnur lífver...
Spurningin er í heild sinni svona:Hvert er ríki, fylking, flokkur, ættbálkur, ætt, ættkvísl og tegund Homo sapiens sapiens?
Maðurinn (Homo sapiens sapiens) er flokkaður á eftirfarandi hátt:
Ríki (Regnum, e. Kingdom)
Dýraríki (Animalia)
Fylking (Phylum)
Seildýr (Chordata)
Undirfylking (Subphylum...
Jórtrun er eitt best þekkta dæmi um samlífi spendýra (Mammalia) og örvera. Dýr sem jórtra hafa fjórskiptan maga og kallast magahólfin vömb, keppur, laki og vinstur.
Þegar jórturdýr bíta gras berst það lítt tuggið niður í vömbina. Þar er fæðan möluð og blandast munnvatni. Jórturdýr framleiða gríðarlegt magn af ...
Það er langt síðan þessir tveir flokkar hryggdýra: froskdýr (Amphipia) og skriðdýr (Reptilia) aðskildust í þróunarsögunni. Fyrstu froskdýrin komu fram seint á Devon-tímabilinu í jarðsögunni, fyrir um 360 milljón árum (sjá mynd af jarðsögutöflu með því að smella hér), og voru ríkjandi á kolatímabilinu. Fyrir um 310...
Risaletidýr tilheyra hópi svokallaðra jarðletidýra (e. ground sloth). Þau komu sennilega fram á ólígósen-skeiði nýlífsaldar og lifðu allt fram á sögulegan tíma á eyjum í Karíbahafi. Talið er að síðustu jarðletidýrin hafi dáið út um 1550 á eyjunum Kúbu og Hispanólu.
Jarðletidýr eru afar fjölbreytilegur hópur dý...
Nú eru þekktar um 130 tegundir prímata og er fæða þeirra mjög fjölbreytt. Mismunandi tegundir éta ólíka fæðu og eins getur verið munur á fæðuvali innan sömu tegundar.
Algengast er að fæða prímata komi úr plönturíkinu og eru nokkrar tegundir nær alfarið plöntuætur. Flestar tegundir éta þó einnig einhverja leyti ...
Hér er einnig að finna svör við eftirfarandi spurningum: Spurning Brynjars Arnar Reynissonar Hvað voru risaeðlutegundirnar margar og hvernig voru fyrstu risaeðlurnar? og spurning Dags Ebenezerssonar Hvað er búið að finna margar risaeðlutegundir?
Risaeðlur (Dinosauria) teljast til skriðdýra (Reptilia) og eru flokk...
Spurningin er heild sinni hljóðaði svona:
Getur þú sagt mér allt um gíraffa? Meðal annars hvar hann lifir, stærð, lögun, útlit og fleira? Hvað er merkilegast við gíraffa? Eru til dæmis blettirnir eins á öllum? Er gíraffi jurtaæta? Hvert er fæðuval hans? Er hann nokkuð í útrýmingarhættu? Hvernig fer mökun fram?
R...
Gílaeðlan (Heloderma suspectum), oft kölluð gílaófreskja (e. Gila monster), er mjög sérstök eðla. Hún er önnur af aðeins tveimur núlifandi tegundum eitraðra eðla og sú eina sem finnst í Norður-Ameríku, en þær voru algengar fyrir um 35 milljónum ára. Gílaeðlan dregur nafn sitt af fljóti, Gila, sem rennur í Suðvestu...
Ljóst er að á nokkrum stöðum hérlendis eru kanínur orðnar hluti af dýralífi Íslands. Þegar farið er í göngutúra í Öskjuhlíðinni eða Heiðmörk sjást iðulega kanínur á vappi og finnst mörgum þetta vera góð viðbót við annars fátæka spendýrafánu landsins. Litlar líkur eru á því að menn sjái önnur spendýr á göngu um gró...
Stökkmýs tilheyra ættbálki nagdýra (rodentia) og ætt stökkmúsa (Dipodidae) ásamt sprettmúsum (Zapodidae) og birkimús (Sicista betulina). Alls eru tegundir stökkmúsa 33 í 11 ættkvíslum og 5 undirættum.
Stökkmýs lifa í eyðimörkum og á hrjóstrugum steppum í Afríku, Asíu og austast í Evrópu. Þær búa oft saman í ...
Hér er einnig svarað spurningunni:
Hver var forfaðir timburúlfsins?
Líklegast kom gráúlfurinn (Canis lupus) fram á sjónarsviðið í Asíu fyrir um milljón árum síðan. Hann er talinn hafa farið vestur yfir landbrúna sem lá yfir Beringssund og tengdi saman Asíu og Norður-Ameríku fyrir um 700 þúsund árum síðan. Það er...
Orðið svín er almennt heiti yfir tegundir af ættunum (lat. Familia) Suidae og Tayassuidae. Innan þessara tveggja ætta eru 20 tegundir. Svín eru meðalstór klaufdýr (Artiodactyla). Þau eru hausstór, hafa stuttan háls og mjög öflugan skrokk. Þefskyn svína er meðal þess besta sem finnst í náttúrunni, enda styðjast þau...
Moskítóflugur, Culicidae, eru tvívængjur, Diptera, sem lifa um allan heim. Fullorðin kvendýr sjúga blóð úr spendýrum, fuglum og í sumum tilfellum skriðdýrum til að afla næringar og próteina. Án blóðmáltíðar geta þær ekki þroskað egg.
Þær lifa ekki hér á landi, en eru algengar í nágrannalöndunum. Á Grænlandi er...
Leðurblökur tilheyra ættbálknum Chiroptera sem skiptist í tvo undirættbálka; annars vegar svokallaða flugrefi eða stórblökur (Megachiroptera) og hins vegar smáblökur (Microchiroptera). Í þessu svari verður einungis fjallað um smáblökurnar, æxlun og þroska ungviðis þeirra en sumir vilja meina að smáblökurnar séu hi...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!