Vöðvar eru af þremur gerðum; sléttir vöðvar, hjartavöðvinn og beinagrindarvöðvar sem nefnast einnig þverrákóttir vöðvar.
Legið og vöðvar í æðaveggjum og veggjum meltingarvegarins eru dæmi um slétta vöðva. Flestir sléttir vöðvar eru aðeins ein slétt vöðvafruma og fjöldi þeirra skiptir milljörðum. Þeir eru yfirl...
Hér er einnig svarað spurningunni:Hvernig varð Pétursey til?
Stóri-Dímon í Rangárvallasýslu stendur í mynni Markarfljótsdals og rís upp af aurum Markarfljóts.
Stóri-Dímon er móbergseyja sem hefur myndast við eldgos undir jökli eða í sjó.
Stóri-Dímon er rúst af móbergseyju sömu gerðar og til dæmis Pétursey,...
Barrakúðar eru fiskar af ættbálki borra (Perciformes) og tilheyra ættinni Sphyraenidae. Alls eru tegundir barrakúða um 18 og teljast þær allar til Sphyraena-ættkvíslarinnar. Kunnasta tegundin er líklega stóri barrakúði (Sphyraena barracuda), en aðrar tegundir eru til dæmis:miðjarðarhafs-barrakúðinn (Sphyraena sphy...
Hér er svarað eftirtöldum spurningum:Hvar lifir sleggjuháfur? Lifir sleggjuháfurinn við Ísland? Ef svo er ekki hefur hann flækst hingað? Hvað borðar sleggjuháfur?
Sleggjuháfar (e. hammerhead sharks) eru hákarlar af ættkvíslunum Sphyrna og Eusphyrna. Þeir eru auðþekkjanlegir vegna sérkennilegrar lögunar á haus sem...
Þrátt fyrir aragrúa stjarna á næturhimninum er fremur auðvelt að finna Pólstjörnuna. Einfaldasta leiðin til þess er að finna fyrst stjörnumerkið Stóra-björn eða Karlsvagninn. Því næst finnur maður stjörnurnar Dubhe og Merak (sjá mynd) og dregur beina línu upp frá þeim. Þá lendir maður á björtustu stjörnunni í ...
Í kjölfar eldgossins sem hófst í Fimmvörðuhálsi þann 20. mars 2010 hafa Hrunagil og Hvannárgil oft verið í fréttum þar sem tignarlegir hraunfossar hafa fallið ofan í bæði gilin.
Hrunagil
Innst (austast) á Goðalandi heita Hrunar. Talað er um tvenna Hruna sem ýmist eru kallaðir Stóri-Hruni og Litli-Hruni eða F...
Myndin hér að ofan sýnir stjörnuferil (e. astroid). Þessi ferill er innhjólferill (e. hypocycloid) því hann er teiknaður af punkti sem er fastur á hring sem rúllar innan í öðrum stærri hring. Hreyfimyndin sýnir hvernig ferillinn er teiknaður.
Það fer eftir afstæðum stærðum hringanna hvernig innhjólferillinn...
Egypski sfinxinn er forn goðsagnavera sem hefur líkama ljóns og mannshaus. Langþekktust er stóra sfinx-styttan sem enn stendur í Giza í Egyptalandi. Styttan er ein stærsta steinstytta í heimi; hún er 57 metra löng, 6 metra breið og 20 metra há. Hausinn er sagður vera gerður eftir mynd egypska faraósins Khaf-Ra. Pí...
Í íslenska lottóinu eru 40 kúlur með númerum frá 1 upp í 40 og dregnar eru 5 kúlur. Ekki skiptir máli í hvaða röð kúlurnar eru dregnar.
Ef við hugsum fyrst um fjölda möguleika á að draga 5 kúlur þannig að það skipti máli í hvaða röð kúlurnar eru dregnar þá eru 40 möguleikar á hvaða kúlu við drögum fyrst, 39 á n...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hver er tilgangurinn með yfirtökuskyldu, sbr. nýlega frétt um aukinn eignarhlut Samherja í Eimskip?
Kveðið er á um yfirtökuskyldu í X. kafla laga um verðbréfaviðskipti (nr. 108/2007) á Íslandi og sambærileg ákvæði eru í lögum nágrannalandanna. Þetta er hluti af þeirri vernd se...
Fyrsta plánetan sem fannst á braut um aðra stjörnu en sólina var 47 Ursa Majoris b. Hún uppgötvaðist árið 1996. Síðan þá hafa stjörnufræðingar fundið rúmlega 300 plánetur utan okkar sólkerfis og með betri aðferðum finnast fleiri og fleiri plánetur á hverju ári.
Teikning listamanns af sólkerfinu 55 Capri, sem er e...
Eitt helsta einkenni plánetunnar Satúrnusar er hinn stóri baugur sem umlykur hana. Þessi baugur er ekki einn stór samfelldur hringur heldur er hann samsettur úr fjölmörgum smærri hringjum. Nánar má lesa um hringi Satúrnusar hér.
Í eftirfarandi töflu eru taldir upp þeir hringir sem þekktir eru í dag ásamt stærð...
Smellið til að stækka myndina
Stjarnan Alkor er í stjörnumerkinu Karlsvagninum sem einnig er oft nefnt Stóri-björn. Alkor myndar tvístirnakerfi ásamt stjörnunni Mizar, en saman mynda þær með þriðju stjörnunni svokallað sýndarþrístirni. Það er kallað sýnarþrístirni því þriðja stjarnan er í raun töluvert fjarri M...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Hvað er klukkan þegar hún hallar í þrjú?
A) að ganga þrjú
B) rúmlega hálf þrjú
Við hjónin erum ekki sammála.
Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, fjallaði um klukkuna í Málfarsmolum sínum 13. janúar 2015 sem finna má á netinu. Þar nefnir hún margvíslegt orð...
Ritstjórn Vísindavefsins hefur rætt þessa erfiðu spurningu rækilega. Við byrjuðum að sjálfsögðu á að hugleiða hvort hún væri á verksviði okkar, en stundum fáum við spurningar sem eru það ekki. Síðan veltum við því fyrir okkur hvort þetta hefði verið mamma eða afi, stóri bróðir, Davíð eða Ingibjörg, Guð eða kannski...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!