Í íslenska stafrófinu eru taldir 33 bókstafir:
a, á, b, d, ð, e, é, f, g, h, i, í, j, k, l, m, n, o, ó p, r, s, t, u, ú, v, x, y, ý, z, þ, æ, ö
Auk þessara bókstafa eru c og w sem aðeins eru notaðir í mannanöfnum af erlendum uppruna.
Í dönsku og norsku eru bókstafirnir 29. Þar eru ekki notaðir broddstafi...
Til að fá fram svarthvíta spegilmynd þarf aðeins að minnka lýsingu á fyrirmyndina niður í rökkurstyrk. En litleysið hefur ekkert að gera með eiginleika spegilsins heldur ræðst af virkni augna okkar. Í þeim eru tvær gerðir ljósnema, sem kallaðir eru stafir og keilur.
Stafirnir gefa taugaörvun sem er vaxandi með ...
Náttblinda (e. nyctalopia) er vangeta til að sjá í lítilli birtu eða erfiðleikar við að aðlagast minnkaðri birtu. Náttblinda er í sjálfu sér ekki sjúkdómur heldur fremur einkenni annarra augnkvilla.
Náttblinda stafar af galla í sjónu (e. retina). Sjóna er sá hluti augans sem liggur innan á þremur fjórðu öftust...
Tveir þættir virðast aðallega hafa áhrif á hversu erfitt er að búa til krossgátu á tilteknu máli, annars vegar hversu mörg orð eru fyrir hendi í málinu til að setja í gátuna og hins vegar hversu auðvelt er að giska á orð út frá nokkrum stöfum og raða þeim saman í gátu. Fyrri þátturinn er reyndar ekki jafn takmarka...
Á áttunda áratugnum var sett á laggirnar nefnd sem fara átti yfir íslenskar stafsetningarreglur og gera tillögur til breytinga. Ein þeirra, sem nefndin varð sammála um, var að fella stafinn z niður og skrifa í hans stað s. Þá var einnig rætt um y, ý og hvort fella skyldi þá stafi niður og rita í staðinn i, í. Ekki...
Svo virðist sem stafróf hafi verið fundin upp á mörgum stöðum. Ian Watson segir í svari sínu við spurningunni Hver fann upp stafrófið?
Hugmyndin að láta ólíkar myndir eða tákn standa fyrir ólíka hluti, svo sem orð eða tölur, virðist hafa komið upp og þróast sjálfstætt á þremur mismunandi stöðum, í Mið-Ameríku (fy...
Akademísk hugsun er frjáls en öguð.
Starf fræði- og vísindamanna, innan háskóla og annars staðar, snýst um að leita þeirrar þekkingar eða skapa þá þekkingu sem ekki er til fyrir. Þetta líta þeir sjálfir og aðrir á sem skyldu fræðimanna.
Til að þekkingin sé raunveruleg en ekki staðlausir stafir hafa fræðimenn...
Spyrjandi benti ennfremur á að Danir nota ks í staðinn fyrir x.
Fyrsta tilraun til að gera Íslendingum stafróf var gerð um miðja 12. öld. Hún birtist í ritgerð sem nefnist Fyrsta málfræðiritgerðin, er eftir nafnlausan höfund og er varðveitt í einu handriti Snorra-Eddu. Höfundurinn setti sér það markmið að koma ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Hvernig og hvenær byrjuðu menn að rita á þann hátt að byrja setningar með stórum staf og enda þær á punkti?
Greinarmerkið punktur (.) er upprunnið hjá Grikkjum um 200 fyrir Krist. Letur var þá hástafaletur og því engir litlir stafir. Yfirleitt var ekki haft bil á mil...
Barn fætt á Íslandi fær sjálfvirkt úthlutað kennitölu frá Þjóðskrá Íslands um leið og það er skráð í tölvukerfi fæðingarstofnunar. Aðrir fá kennitölu úthlutað sjálfvirkt um leið og þeir eru skráðir. Kennitala er reiknuð út frá fæðingardegi.
Um þessar mundir er fjöldi fæðinga á Íslandi á bilinu 5-10 þúsund á ári...
Rauð augu á ljósmyndum stafa af því að leifturljós („flass“) myndavélarinnar endurspeglast frá augnbotninum.
Við sjáum hluti þegar ljósið frá þeim berst augnbotnum okkar þar sem sérhæfðar frumur nema það og senda viðeigandi taugaboð upp í heila. Þessar frumur, sem nefnast keilur og stafir, eru viðkvæmar og þess...
Hér er einnig að finna svar við spurningunni Hver var fyrsti málfræðingurinn, hvenær var hann uppi og hvert var aðalverkefni hans? frá Shlok Datye.
Svokölluð „Fyrsta málfræðiritgerð Snorra-Eddu” er talin skrifuð á síðari hluta 12. aldar. Nafn sitt dregur hún af því að vera fremst fjögurra ritgerða um íslenskt m...
Ákvarðanir í stafsetningarmálum eru alltaf samkomulagsatriði þeirra sem fengnir eru til að setja niður reglur eða endurskoða eldri reglur og síðan yfirvalda sem setja lög og reglugerðir. Fyrr á öldum, þegar stafsetning var ekki í jafn föstum skorðum og hún er nú í norðanverðri Evrópu, þeim löndum sem við miðum okk...
Menn sjá aðeins rafsegulbylgjur á tilteknu öldulengdarbili sem ljós, og líklegt er að svipað gildi um flest önnur dýr. Þessa takmörkun bilsins má trúlega rekja til þess að bylgjur á þessu bili berast vel í vatni og sjónin þróaðist fyrst hjá dýrum í hafinu. Litnemar augans, keilurnar, eru yfirleitt þrenns konar í ...
Rúnir eru elsta form skrifleturs meðal germanskra þjóða. Orðið rún getur merkt leyndarmál, einkamál eða vísdómur. Til eru tvær gerðir af rúnakerfum. Eldra kerfið hefur 24 rúnir og var notað frá 2. öld e. Kr. fram til þeirrar áttundu. Þá var tekið upp nýtt rúnakerfi með 16 rúnum. Yngri rúnirnar hafa aðeins fundist ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!