Það er ekki hægt að búa til norðurljós sem hægt er að sjá á himninum. Hins vegar hafa vísindamenn prófað sig áfram á rannsóknarstofum við að mynda eins konar norðurljós á lítilli kúlu. Fræg er tilraun Norðmannsins Kristian Birkelands sem beindi rafeindastraumi að segulmagnaðri kúlu í lofttæmdum klefa. Rafeindirnar...
Í venjulegum ljósaperum er fínn þráður úr málmi sem hitnar og fer að glóa þegar rafstraumur er leiddur um hann. Við notkun eyðist vírinn smám saman þannig að hann verður grennri á einhverjum stöðum. Þetta endar þannig að málmþráðurinn fer í sundur á slíkum stöðum.
Þegar vírinn fer í sundur getur hlaupið neisti ...
Skýringuna á því að við erum með hendur og þumalputta má finna í langri þróunarsögu okkar og forfeðra okkar. Með tilliti til þróunar getum við einfaldlega kallað hendur okkar framfætur en eftir að við fórum að standa upprétt þá gátum við notað framfæturna, það er hendurnar, til annarra verka, svo sem við að handfj...
Eitt af einkennum allra lífvera er að þær geta af sér afkvæmi og kallast það æxlun. Í lífríkinu eru tveir meginflokkar æxlunar, annars vegar kynæxlun og hins vegar kynlaus æxlun eins og fjallað er um í svari Jóns Más Halldórssonar við spurningunni Hver er munurinn á kynæxlun og kynlausri æxlun?
Þar kemur...
Alls hafa fundist um 80 píramídar í Egyptalandi. Þeir eru þó ekki allir heilir og margir eru rústir einar.
Egyptar voru líklega fyrstir allra þjóða til að reisa píramída. Elsti píramídinn var að öllum líkindum reistur kringum 2650-2575 f.Kr. og er nefndur þrepapíramídinn í Sakkara. Lesa má meira í svari Unnars ...
Flestir líta líklega svo á að Guð kristninnar sé karlkyns. Talað er um Guð en ekki Gyðju, og fólk biður Faðirvorið, en ekki Móðirvorið, svo dæmi séu tekin.
Arnfríður Guðmundsdóttir, lektor í guðfræði, bendir þó á að jafnvel þótt Guð sé yfirleitt karlgerður sé Guð hafinn yfir kynferði og því hvorki karl né kona...
Grasið er grænt vegna litarefnisins blaðgrænu (Chlorophyll) sem er staðsett í grænukornum í laufblöðum plöntunnar. Þetta efni sinnir einu mikilvægasta hlutverkinu í plöntunni sem er kallað ljóstillífun. Nánar má lesa um græna litinn og ljóstillífun í svari Kesara Anamthawat-Jónsson við spurningunni: Hvers vegna er...
Við vitum ekki nákvæmlega hvert er algengasta orðið í heiminum. Það gæti verið eitthvað orð á mandarínsku, en hana tala flestir í heiminum, um 850 milljónir manna.
Ensku tala um um 340 milljónir manna og á vefsíðu um tíðni enskra ritmálsorða fundum við þessa þulu um algengustu orðin:the of and a to in is you th...
Þegar þetta er skrifað í lok september 2006 eru tæp tvö ár liðin frá síðasta eldgosi á Íslandi. Það var eldgos í Grímsvötnum í Vatnajökli sem hófst 1. nóvember 2004.
Aðdragandi gossins var alllangur þar sem sívaxandi skjálftavirkni mældist á svæðinu allt frá miðju ári 2003. Jökulhlaup hófst svo 30. október 2...
Ég reikna með að spyrjandi eigi við Leif heppna Eiríksson sem sagður er hafa komið til Ameríku fyrstur evrópskra manna, eða kringum árið 1000.
Af hverju hann var svo nefndur þessu nafni en ekki einhverju öðru er erfitt að segja. Samkvæmt vefsetrinu Mannanöfn.com [skoðað 6.10.2006] er 'Leifur' dregið af nafnorði...
Rykagnir í andrúmslofti eiga sér ólíkan uppruna, til dæmis jarðvegsagnir sem vindurinn feykir upp, efni sem koma upp í eldgosum eða mengun frá iðnaði. Fleiri þættir leggja til ryk í andrúmsloftið og þar með það ryk sem við sjáum inni hjá okkur. Má þar nefna umhverfið í kringum hús, til dæmis hvort mikið er af san...
Turn Hallgrímskirkju er 74,5 metra hár. Eftir því sem næst verður komist er hann sjötta hæsta mannvirki á Íslandi. Hæst er mastur á Gufuskálum á Snæfellsnesi sem er 412 m hátt en það er notað fyrir langbylgjuútsendingar Ríkisútvarpsins. Þetta mastur er jafnframt hæsta útvarpsmastur í Vestur-Evrópu.
Hallgrímskir...
Það er erfitt að svara þessari spurningu nákvæmlega þar sem mjög breytilegt er hvað börn í aldurshópnum 11-14 ára eru þung. Ástæðan fyrir þessu er að sumir krakkar verða kynþroska snemma og aðrir seinna. Hæð barnanna og þyngd þeirra getur því verið mjög mismunandi og þar af leiðandi einnig þyngdin á húð þeirra.
...
Um þetta er meðal annars fjallað í ýtarlegu svari Jörgens Pind við spurningunni Hvernig fer heilinn í okkur að því að muna?
Mynd sem sýnir hvernig mismunandi svæði heilans virkjast eftir því hvort við notum sjón- eða heyrnarsvæði heilans.
Þar kemur fram að svokallaður dreki (e. hippocampus) gegnir mikilvægu hlut...
Við getum ekki vitað hvort fálka dreymir á nóttunni og þá hvað þá dreymir. Ástæðan fyrir því eru sú sama og fjallað er um í svari við spurningunni Dreymir ketti? - við höfum enga leið til þess að spyrja þá.
Segjum sem svo að hægt væri að gera rannsókn á fálkum sem mundi leiða í ljós að þá dreymdi þegar þeir so...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!