Í stuttu máli sagt sjá steinar í melónum til þess að nýjar melónuplöntur geti orðið til.
Steinar í melónum eru fræ.
Steinarnir í melónum eru fræ alveg eins og steinarnir í eplum, appelsínum og öðrum ávöxtum. Melónan sjálf er aldin eða ávöxtur plöntunnar sem hún vex á. Hlutverk aldina er að stuðla að dreifing...
Líklegast er að steinar sem berast til jarðar frá Mars hafi þeyst frá yfirborði reikistjörnunnar við árekstra stórra loftsteina. Við stærstu árekstra þeytist efni upp í loftið með nægum hraða til að losna frá þyngdarsviði Mars og fara á sporbaug um sólu. Mikið er um stóra loftsteinagíga á yfirborði Mars og því er ...
Glerhallur (draugasteinn, holtaþór) nefnist öðru nafni kalsedón (e. chalcedony). Hann er dulkornótt afbrigði af kvarsi (SiO2) og er þétt sambreyskja örsmárra kristalla. Raunar kom í ljós nýlega að kalsedón er samgróningur tveggja kísilsteinda, kvars (sem kristallast í þríhyrnda kerfinu) og móganíts (einhalla kerfi...
Það er rétt að langflestir steinar í umhverfi okkar eru gráir og skýrist það af þeirri berggerð sem algengust er hér á landi. Steinar finnast samt sem áður einnig í öðrum litum og er slíkt nokkuð algengt sums staðar erlendis.
Orðið steinn getur bæði átt við berg/bergtegund (grjót) og steindir (steintegundir). ...
Orðið steinn getur bæði átt við berg/bergtegund (grjót) og steindir (steintegundir) eins og fram kemur í svari við spurningunni Af hverju eru flestir steinar gráir? Þar segir meðal annars:
Steindir eru kristallað frumefni eða efnasamband sem finnst í náttúrunni. Þær eru í raun smæstu eindir bergtegunda; sumar b...
Á 9. öld þegar Ísland byggðist voru mjög fáir rúnasteinar reistir í Skandinavíu. Þegar yngra rúnaletrið var tekið í notkun um 800 virðist einnig siðurinn að reisa steina hafa að mestu horfið um sinn. Í Svíþjóð voru tveir þekktir steinar: Röksteinnin á Austur-Gautlandi og Sparlösasteinnin á Vestur-Gautlandi reistir...
Trú á mátt töfrasteina er ævagömul á Íslandi. Í Grágás, íslenskri lögbók frá því um miðja þrettándu öld, er lagt bann við því að „fara með steina eða magna þá til þess að binda á menn eða fénað“. Til dæmis varðar það fjörbaugsgarð „ef maður trúir á steina til heilindis sér eða fé sínu“ (19). Af þessu má ráða að st...
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:Til hvers er vísað með hugtakinu „landsteinar“? Sbr. út fyrir landsteinana. M.ö.o. Hvað eru/voru „landsteinar“?
Orðið landsteinar merkir ‘steinar í fjöruborði’ og er notað enn. Elsta dæmi í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er í þriðja árgangi Rita þess Islendska lærdóms-li...
Í stuttu máli eru ekki til neinir „sérstakir íslenskir steinar“ í þeim skilningi að þeir finnist hvergi nema hér. Hins vegar eru nokkrir steinar sem mætti kalla einkennandi fyrir Ísland. Með steinum er hér annars vegar átt við berg (grjót) og hins vegar steindir (steintegundir).
Steind er skilgreind sem krist...
Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er sagt frá ýmsum náttúrusteinum, en svo nefnast einu nafni þeir steinar sem búa yfir töframætti. Þar er meðal annars sagt frá lausnarsteininum. Helsti kostur lausnarsteinsins er að hann leysir konu „sem á gólfi liggur vel og skjótt frá fóstri sínu, og þarf þá ekki annað en annaðhvort l...
Grjót er ekki alltaf svart. Til eru mörg þúsund steintegundir og hver þeirra hefur ákveðna efnasamsetningu og atómuppbyggingu sem greinir hana frá öðrum steintegundum.
Litur steintegundarinnar ræðst af efnasamsetningunni og því hvernig atómin í henni raðast upp, einnig geta ýmis snefilefni breytt lit steinanna...
Steinar og margir aðrir hlutir virðast mun dekkri á litinn þegar þeir eru blautir en liturinn sjálfur er í raun sá sami.
Dæmigerður steinn er grár eða grá-svartur, ögn hrjúfur og með mattri áferð. Ef yfirborð steinsins er skoðað með stækkunargleri sést að það er alls ekki spegilslétt og einsleitt. Ef við skerum...
Spurning Veigars hljóðaði svona:
Voru víkingarnir með tölukerfi? Ef svo er hvernig var það?
Víkingaöld er tímabil í sögu Norður-Evrópu sem nær frá árinu 793 til 1066. Víkingaöldinni er oft skipt í þrjú tímaskeið. Miðskeiðið 850 – 1000 er kennt við landnám norrænna manna. Ísland var numið af víkingum á níund...
Sandur, möl og steinar eru bergmylsna sem myndast hefur við rof og veðrun á föstu bergi. Roföflin sem oftast eru að verki eru jöklar, straumvötn, vindur og frost/þýða. Bergmylsna er flokkuð eftir kornastærð, það er þvermáli kornanna sem koma við sögu. Venjan er að miða við stærstu kornin en yfirleitt finnast fínni...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Hvers vegna fær fólk nýrnasteina og hvers vegna leggjast þeir fekar á eldra fólk? Er einhver leið til að sporna við þeim?
Nýrnasteinar eru einn af þeim sjúkdómum sem valda hvað sárustum verkjum. Erfitt er að bera saman verki en margir telja nýrnasteinaverki vera þá verstu sem...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!