Eðlur hafa misheitt (e. exothermic) blóð, ólíkt til dæmis spendýrum og fuglum sem hafa jafnheitt (e. endothermic) blóð. Eðlurnar þurfa þess vegna að nýta varma úr umhverfinu til að halda líkamanum heitum en dýr með jafnheitt blóð geta stýrt líkamshitanum sjálf með efnaskiptum.
Þegar við sjáum eðlur í sólinni er...
Látrabjarg er svokallað standberg í Vestur-Barðastrandasýslu. Það skiptist í fjóra hluta: Látrabjarg, Bæjarbjarg, Breiðavíkurbjarg og Keflavíkurbjarg.
Skiptingin er tilkomin vegna þess að bæir nálægt bjarginu eignuðu sér tiltekna hluta bjargsins. Þetta voru bæirnir Hvallátrar, Saurbær á Rauðasandi, Breiðavík og...
Íslenski hesturinn er kominn frá Noregi og þaðan frá Mongólíu. Þetta kemur fram í ýtarlegu svari Stefáns Aðalsteinssonar við spurningunni Hvaðan er íslenski hesturinn upprunninn?
Íslenskur hestur í haga.
Sameindalíffræðilegar rannsóknir hafa sýnt fram á þennan skyldleika og hann kemur líklega ekki á óvart ef v...
Í svari Sævars Helga Bragasonar við spurningunni Hvað eru til margar stjörnur í alheiminum? kemur fram að talið er að sólstjörnurnar í Vetrarbrautinni séu á bilinu 100-400 milljarðar.
Hægt er að lesa meira um Vetrarbrautina í svari Sævars Helga við spurningunni Hvað er vetrarbrautin okkar stór? Það kemur meðal ...
Á vefsíðunni Garður.is er hægt að slá inn upplýsingar um látna einstaklinga og finna hvar þeir eru grafnir. Yfirleitt er bæði tiltekið í hvaða garði menn liggja og hvar í garðinum leiði þeirra er. Þeir sem vilja til dæmis finna leiði Jóns Sigurðssonar fá þær upplýsingar að hann sé grafinn í reit R-0418 í Hólavall...
Um fjölda tunglfara er hægt að lesa í svari á Vísindavefnum við spurningunni: Hvað hafa margir menn farið til tunglsins og hvernig líta þeir út? Þar kemur fram að alls hafa tólf menn komið til tunglsins og tíu til viðbótar komist á braut um það. Allir fóru þeir á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA.
F...
Ysti hluti jarðarinnar kallast jarðskorpa. Þykkt hennar er á bilinu 6-40 km, eftir stöðum á jörðinni. Meðalþykkt hennar er um 17 km sem er um það bil 0,2% af geisla (radíus) jarðar sem er 6370 km.
Mynd sem sýnir gerð jarðarinnar með tölum til hliðsjónar
Í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Hver er me...
Einfalt svar við þessari spurningu er að það var aldrei til neinn fyrsti maður!
Tegundir þróast mjög hægt og þess vegna hefði aldrei verið hægt að benda á einhvern tiltekinn mann og segja að hann hefði verið fyrsti maðurinn.
Hér má bera saman höfuðkúpur simpansa (lengst til vinstri), hins upprétta manns (Hom...
Orðið málsháttur er þannig skýrt: ‛orðskviður, spakmæli’. Oft er um fleyg orð að ræða sem lögð eru í munn einhverjum, sem ekki er endilega þekktur lengur, eða fengin eru úr einhverri sögu. Oftast er um heilar setningar að ræða. Dæmi um málshátt er „Oft eru flögð undir fögru skinni“, sem sóttur er til Eyrbygg...
Þegar kjarnar massamikilla stjarna falla saman á lokaskeiðum stjörnunnar getur þrennt gerst. Ef upprunalega stjarnan var meiri en 30 sólarmassar verður til svarthol. Ef upprunalegi massinn var hins vegar minni en 30 sólarmassar verður annað hvort til nifteindastjarna eða hvítur dvergur.
Teikning listamanns af n...
Við fáum marbletti ef högg sem lendir á líkamanum nær til mjúku vefjanna sem eru undir húðinni. Það sem gerist þá er að litlar bláæðar og háræðar undir húðinni rofna og blóð lekur úr þeim. Í kjölfarið safnast rauðkorn fyrir undir húðinni og við sjáum þau sem blá, fjólublá, rauð eða svört nálægt þeim stað sem höggi...
Á síðu Manntalsskrifstofu Bandaríkjanna er teljari sem sýnir áætlaðan mannfjölda í heiminum. Þar kemur fram að þegar þetta svar er endurskoðað (28. júní 2019) er áætlaður mannfjöldi í heiminum:7.581.592.200eða rétt rúmur sjö og hálfur milljarður.
Okkur er ekki kunnugt um síðu á vefnum þar sem konur og karlar ...
Jarðskorpan er ysta lag jarðarinnar. Margir flekar mynda hana og þeir hreyfast hver miðað við annan. Flekarnir geta nuddast saman á hliðunum, þeir geta ýst hvor frá öðrum og þeir geta líka farið hver undir annan.
Allar þessar hreyfingar flekanna byggja upp spennu sem síðan losnar og þá verða jarðskjálftar.
...
Ýmis svör koma til greina en öll eru þau stutt. Við látum hér fylgja nokkra möguleika:Af því að þig langar að leggja fram spurningu en þér dettur ekkert annað betra í hug.
Af því að þig langar til að leggja fram spurningu sem ómögulegt virðist að svara.
Af því að himinninn er blár.
Af því að þú heldur að okkur ...
Svarið við spurningunni er einfalt: nei. Setningin er ekki ósönn en þar með er ekki rétt að hún sé sönn. Setningin sem um ræðir er spurning og spurningar geta hvorki verið sannar né ósannar. Hugtökin “satt” og “ósatt” eiga aðeins við um staðhæfingar en alls ekki um allt sem sagt er eða skrifað.
Setningar geta ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!