Til að svara spurningu sem þessari verður maður að velta fyrir sér hugtaki í þróunarfræði sem nefnist aðlögun.
Lyktarskynið er eitt mikilvægasta skynfæri hunda. Villtir hundar og úlfar reiða sig á gott lyktarskyn bæði við veiðar og í félagslegum samskiptum. Hjá forverum hunda virðist því lyktarskynið hafa þróa...
Rafhleðsla er einn af grundvallareiginleikum efnisins. Rafmagn hefur verið til í náttúrunni frá upphafi og það er til dæmis vel sýnilegt í eldingum. Rafhleðsla finnst í öllu efni, til dæmis öllu því sem er á heimilinu okkar eða í skólastofunni, en yfirleitt eru hlutirnir óhlaðnir og við greinum þess vegna ekki raf...
Til þess að finna út úr því hversu lengi ljósið, eða maður á ljóshraða, væri að fara frá sólinni til Plútó þurfum við í fyrsta lagi að vita hversu hratt ljósið fer og í öðru lagi hversu langt er á milli sólarinnar og Plútó.
Ljósið fer reyndar mishratt eftir efninu sem það fer um eins og fjallað er um í svari vi...
Í stuttu máli, já. Íslenska sérsveitin heyrir undir ríkislögreglustjóra og er hún vopnuð sérsveit lögreglunnar, stundum kölluð Víkingasveitin. Hún var stofnuð 19. október árið 1982 en þá höfðu fyrstu sérsveitarmennirnir hlotið viðeigandi þjálfun hjá norsku sérsveitinni. Þá þótti orðið löngu tímabært að hafa vopnað...
Í svari Ara Ólafssonar við spurningunni: Hvernig myndast regnboginn? stendur:
Regnboga sjáum við þegar staðbundið skúraveður og sólskin fara saman og þá oftast þegar við erum sjálf á uppstyttusvæði. Ef skúraveðrið skilar sér ekki getum við gengið að regnboganum vísum í fossúða í sólskini. Þegar við horfum á regnb...
Lofthjúpurinn er þunnt gaslag sem umlykur jörðina. Hann er að mestu úr nitri og súrefni en einnig úr öðrum gastegundum. Lofthjúpurinn myndaðist líklega á löngum tíma úr gosgufum frá eldfjöllum. Það sama á reyndar við um hafið, eins og lesa má um í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Hvaðan kom hafið?
...
Adolf Hitler gékkst ekki undir geindarpróf svo vitað sé og því er ekki til áreiðanleg tala sem segir til um gáfnafar hans. Hins vegar hafa margir leitt hugann að þessu og reynt að meta gáfur hans.
Greindarvísitala (e. intelligence quotient, IQ) Hitlers er talin hafa verið á bilinu 138-145 og er oftast vísað í ...
Um rafmagnslínur eða háspennulínur flæðir mikill rafstraumur með hárri spennu. Spennumunur á milli rafmagnslínunnar og jarðar er þannig mjög mikill en vegna þess leitar rafstraumurinn niður í jörð.
Margir hafa eflaust lent í því að snerta rafmagnsgirðingu og fá straum. Þar sem manneskjan sem snerti rafmag...
Samkvæmt tölum frá GLOBOCAN er áætlað að árið 2008 hafi um 12,7 milljónir manna greinst með krabbamein og um 7,6 milljónir manna dáið af völdum krabbameins. Gert er ráð fyrir því að árið 2030 muni árlega greinast 21,4 milljónir manna með krabbamein og að dánartíðni af völdum krabbameina verði þá 13,2 milljónir man...
Á vef Hagstofu Íslands má finna ýmislegt talnaefni, svo sem um algengustu nöfnin. Nýjustu tölur eru frá 1. janúar árið 2010 en eftirfarandi nöfn kvenna eru algengust:
Guðrún
Anna
Sigríður
Kristín
Margrét/Margrjet/Margret
En algengustu tvínefni kvenna eru eftirfarandi:
Anna María
Anna Margrét
Anna Kristín
...
Hestar eru þau spendýr sem þurfa hvað minnstan svefn. Hestar sofa yfirleitt um 3 tíma á sólarhring. Svipað gildir um fíla og kindur en þau sofa um 3-4 tíma á sólarhring. Leðurblökur eru þau spendýr sem sofa einna lengst, tæplega 20 tíma á sólarhring. Algeng heimilisdýr, eins og hundar og kettir, sofa um 11-12 tíma...
Apar eins og við þekkjum þá í dag urðu til með þróun sem staðið hefur yfir í mjög langan tíma.
Talið er að fyrstu prímatarnir hafi komið fram á sjónarsviðið á miðju Paleósen-tímabilinu fyrir um 60 milljónum ára. Þessir forfeður apa nútímans líktust frekar íkornum en öpum því þeir voru mjög litlir og hegðuðu sér...
Á Vísindavefnum er til svar við spurningunni Hvað yrði fyrst til að drepa óvarinn mann úti í geimnum? Ef fugl væri óvarinn úti í geimnum má reikna með að áhrifin yrðu þau sömu og þar er lýst og hann mundi deyja á örfáum sekúndum. Fuglar geta sem sagt, ekki frekar en menn, lifað í geimnum án einhvers varnarbúnaðar....
Það er hægt að nota ýmis viðmið til þess að meta hvað dýrategundir eru í mikilli útrýmingarhættu og ekki víst að allir sem komi að þeim málum fari alveg sömu leið.
Alþjóðleg náttúruverndarsamtök sem kallast International Union for Conservation of Nature (IUCN) halda úti heimasíðu þar sem þau hafa flokkað dýra...
Vísindamenn vita því miður lítið um uppruna tungumálsins. Nú er talið að tungumál hafi orðið til fyrir um 30.000 árum en elstu heimildir um einhvers konar ritmál eru aðeins 10.000 ára gamlar. Þarna á milli eru þessu vegna 20.000 ár sem vísindamenn þurfa að geta sér til um, meðal annars með því að skoða líkamsleifa...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!