Segja má að svarið við þessu ráðist meðal annars af því hvort átt er við liti sem ljós úr ljósgjafa eða liti sem endurvarp ljóss, auk þess hvað átt er við með hugtakinu litur. Í svari Hauks Más Helgasonar og Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Hvers vegna eru grunnlitir listmálara gulur, rauður og blár en gr...
Hér er einnig svarað spurningunum:Hvað borða maríubjöllur?Hvar finn ég upplýsingar um maríubjöllu á netinu? Eru maríuhænur á Íslandi?
Maríubjöllur (Coccinellidae) er í raun sérstök ætt bjalla og innan ættarinnar eru um 4.500 tegundir sem finnast um allt þurrlendi jarðar. Þær eru kúlulaga og eru skjaldvængirnir í ...
Tegundamyndun er hægfara ferli sem tekur þúsundir kynslóða og því er nær ómögulegt að segja til um hvenær ein tegund hverfur og önnur tekur við.
Blendingar brúnbjarna (skógarbjarna, Ursus arctos) og hvítabjarna (Ursus maritimus) eru þekktir úr dýragörðum. Hins vegar eru þeir afar sjaldgæfir í náttúrunni og því...
Dobermann pinscher er ungt hundakyn sem kom fram seint á 19. öld. Maður að nafni Karl Friedrich Louis Dobermann gegndi starfi skattheimtumanns í bænum Apolda í þýska ríkinu Thüringen og var hann jafnframt hundafangari. Skattheimtumenn voru ekki vinsælustu embættismenn þessa tíma og sagan segir að Dobermann hafi ha...
Skaftafell er gömul bújörð og vinsæll áfangastaður ferðamanna í Öræfum í Austur-Skaftafellssýslu. Nafnið er dregið af fjallsrana sem gengur til suðurs úr Vatnajökli. Skriðjöklar falla fram beggja vegna Skaftafells og setja sterkan svip á umhverfið. Yfir þeim gnæfa tignarleg og brött fjöll þar sem Hvannadalshnúk í ...
Orðið hrossamakríll er í daglegu tali notað um nokkrar tegundir fiska af ættkvíslunum Trachurus og Caranx. Íslenskir fiskifræðingar nota ekki orðið hrossamakríll heldur nefna þessar tegundir brynstirtlur og bæta iðulega við öðru orði sem tilgreinir nánar búsvæði fiskanna.
Hrossamakríll er til dæmis haft um tvær...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið negri? Hvaðan kemur það í íslensku og hversu gamalt er það í málinu?
Fyrst verður litið á síðari hluta spurningarinnar, það er um uppruna og aldur orðsins negri í íslensku. Síðan verður fjallað um merkingu orðsins og varað við notkun þess.
Uppruni
Orðið ...
Birnir tilheyra bjarnarætt (Ursidae) sem skiptist í tvær undirættir; Ailurinae (pandabirnir) en til hennar heyrir aðeins ein tegund risapandan (Ailuropoda melanoleuca), og Ursinae (birnir) sem inniheldur sjö tegundir í þremur ættkvíslum. Einungis verður fjallað um tegundir af Ursinae-undirættinni hér þar sem lesa ...
Vísindavefurinn hefur margoft fengið spurningar um fæðingarbletti, hvernig og hvers vegna þeir myndist, hvort þeir hverfi, hvort þeir séu hættulegir og hvernig þeir tengist krabbameini, svo dæmi séu nefnd. Aðrir spyrjendur eru:
Ásta Björnsdóttir, Ásta Magnúsdóttir, Bryndís Halldórsdóttir, Halldóra Gunnardóttir, H...
Vörtur eru aðallega þrenns konar. Í fyrsta lagi frauðvörtur sem eru algengastar meðal barna. Í öðru lagi vörtur á höndum og fótum, líka algengastar meðal barna og í þriðja lagi kynfæravörtur, sem eru að verða æ algengari sérstaklega í aldurshópnum 15-18 ára.
Frauðvörtur
Frauðvörtur orsakast af veiru (Mollus...
Stutta svarið er einfaldlega já, en þó ekki í upphafi Þrælastríðsins.
Tildrög borgarastríðs Bandaríkjanna, eða Þrælastríðsins, voru meðal annars ósætti landbúnaðarríkja sunnanmegin í landinu við skattlagningu ríkisins á ýmsar vörur sem iðnvæddu ríkin norðar í landinu gátu framleitt sjálf en Suðurríkin ekki. Að ...
Hér er einnig að finna svar við spurningu Guðlaugar Björnsdóttur Hvers vegna lækkar líkamshiti hjá sumu fólki þegar það veikist?Uppruni varmaorkunnar í líkama okkar liggur í fæðunni. Líkaminn myndar varma við efnahvörf, það er þegar hann er að brjóta niður sykur, fitu og prótein sem fengin eru úr fæðunni sem við b...
Til þess að forðast misskilning er rétt að útskýra betur hugtökin álft og svanur. Í almennu tali eru þau samheiti enda erum við þá að hugsa um íslenska fugla sem lifa í íslenskri náttúru. Líffræðingar nota orðin hins vegar ekki endilega sem samheiti, heldur er orðið svanur notað um ættkvíslina Cygnus sem tegundin ...
Popptónlist eða einfaldlega popp er dregið af enska orðinu „popular“ og á við um þá tónlist sem alla jafna nýtur vinsælda fjöldans. Á íslensku er orðið dægurtónlist gjarnan notað í sömu merkingu og vísar það til dægurfluganna sem lifa bara daginn. Er það bein vísun í meint eðli tónlistarinnar, að hún skilji í raun...
Upphaflega spurningin var svona:Er rétt að allir kynþættir séu eins?Rannsóknir hafa sýnt að meðalmunur á erfðaefni manna er 0,075%. Ef tveir einstaklingar eru valdir af handahófi úr mannkyninu þýðir það að 99,925% af erfðaefni þeirra er að meðaltali eins. Samanborið við flestar aðrar spendýrategundir er maðurinn (...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!