Í sítrónum er sítrónusýru sem er glerungseyðandi og getur farið mjög illa með tennurnar. Það sama gildir því um neyslu sítrónunnar og annarra glerungseyðandi matvæla, að það á að gæta þess að neyta þeirra í hófi. Drykkir sem innihalda sítrónusýru eru allir glerungseyðandi en sítrónusýru er að finna í flestum svala...
Um þetta er fjallað í svari við spurningunni Hvers vegna eru plánetur hnöttóttar en ekki kassalaga? en þar kemur fram að kúlulögun sólstjarna, reikistjarna og tungla stafar af þyngdarkraftinum.
Þegar reikistjörnur myndast, safnast gas í geimnum saman í kekki sem dragast saman vegna aðdráttar agnanna í kekkjunum...
Í svari Tryggva Þorgeirssonar við spurningunni Hve lengi lifir risaskjaldbakan? kemur fram að risaskjaldbakan er langlífust allra hryggdýra. Þar segir:
Elsta skjaldbakan sem heimildir eru um varð að öllum líkindum 152 ára. Heimildum ber þó ekki fyllilega saman um þennan aldur, en risaskjaldbökur hafa ekki verið r...
Vísindamenn telja núna að alheimurinn hafi orðið til í svonefndum Miklahvelli. Kenningin um Miklahvell byggist á því að alheimurinn er sífellt að þenjast út og menn gera ráð fyrir því að útþenslan hafi staðið allt frá upphafi alheimsins. Ef það er rétt hefur efni alheimsins í upphafi verið óendanlega þétt.
Tal...
Svokallaður sólvindur er straumur hlaðinna agna frá sólinni. Þegar þessar agnir nálgast jörðina fara margar þeirra að hringsóla í segulsviði jarðarinnar og ferðast jafnframt milli segulskautanna tveggja. Þegar þær rekast á lofthjúpinn í grennd við segulskautin verða norðurljósin og suðurljósin til.
Um þetta má...
Sennilega geta kettir kafað þó þeir forðist vatn eins og heitan eldinn. Fáeinar tegundir katta eru þó lausar við vatnsfælni, svo sem indverski fiskikötturinn (Prionailurus viverrinus) og mun stærri frændi hans, tígrisdýrið (Panthera tigris). Þessar tvær tegundir geta vel haldið í sér andanum þegar þær stinga hausn...
Skammstöfunin DNA stendur fyrir 'deoxyribonucleic acid' sem hefur verið þýtt sem deoxyríbósakjarnsýra á íslensku. Yfirleitt er þó einfaldlega talað um DNA sem erfðaefni allra lífvera.
Skammstöfunin RNA stendur fyrir 'ribonucleic acid' eða ríbósakjarnsýru.
Bæði DNA og RNA eru þess vegna kjarnsýrur en meginmun...
Enginn veit ennþá hvort líf leynist einhvers staðar í geimnum utan jarðar, eins og Þorsteinn Vilhjálmsson bendir á í svari við spurningunni Er líf á einhverri annarri stjörnu en jörðinni?.
Við hvetjum lesendur til að skoða þessi svör við sambærilegum spurningum:
Eru geimverur til?Hvernig er hægt að sanna að ...
Eins og fram kemur í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni "Hvaðan kom hafið?" er talið að sjórinn hafi að langmestu leyti orðið til úr gosgufum eldgosa í gegnum 4500 milljón ára sögu jarðar.
Sumir vísindamenn telja jafnvel að hluti hafsins á jörðinni hafi líka komið með stórum halastjörnum, sem nóg va...
Í svari Tryggva Þorgeirssonar við spurningunni "Hvað eru hvíthol?" segir:
Hvíthol (e. white hole) eru algjörlega ímynduð fyrirbæri, það er reist á tilgátum, og líklegt er að þau séu ekki til í raun og veru. Samkvæmt kenningum eru hvíthol andstæður svarthola og senda frá sér agnir í stað þess að gleypa þær eins og...
Yotta er síðasta forskeytið í alþjóðlega einingakerfinu og ekkert kemur þess vegna á eftir því.
Yotta er dregið af gríska orðinu októ sem táknar átta, samanber mánuðinn október sem var einu sinni áttundi mánuður ársins eins og hægt er að lesa um í svari við spurningunni Af hverju lét Júlíus Sesar árið byrja á j...
Sniglar framleiða slím til að auðvelda þeim að skríða. Yst í húð snigilsins eru frumur sem seyta slímkenndu efni. Slímið gerir sniglinum auðveldara að smjúga eftir undirlaginu. Í slími snigla er sykurprótín sem getur drepið bakteríur.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Fæðast sniglar með skel? eftir Jón Má Halld...
Við getum ekki verið alveg viss um að það sem standi í sögubókum sé fullkomlega satt þar sem það getur verið umdeilanlegt hvað sé 'fullkomlega satt' og hvað ekki.
Við höfum áður svarað ýmsum spurningum lesenda um svipað efni og látum nú nægja að benda á þau:Hvað er sannleikur? eftir Jón ÓlafssonHvernig get ég v...
Eins og fram kemur í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni "Eru til staðfest dæmi þess að geimverur séu til?" hafa menn ekki enn fundið nein dæmi um líf annars staðar í geimnum en á jörðinni. Vísindamenn gera hins vegar fyllilega ráð fyrir því að það sé líf utan jarðar, en galdurinn er bara að finna það....
Orðabók Háskólans á engin dæmi enn sem komið er í seðlasöfnum sínum um sögnina að gúgla 'leita að e-u með leitarvélinni Google'. Ég hef spurst allnokkuð fyrir um þá notkun sem fyrirspyrjandi nefndi og fengið þau svör að flestir tali um "að gúgla honum/henni/því" þegar leitað er að einhverju á leitarvélinni Google....
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!