Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvað getið þið sagt mér um sverðfiska? Til hvers nota þeir skoltinn (sverðið)?
Sverðfiskur (Xiphias gladius) er all sérstakur fiskur og auðþekktur á langri trjónu, sem gengur fram úr hausnum. Trjóna þessi er efri skolturinn sem teygist svona langt fram.
Sverðfiskur er annars ...
Sjávardýr það sem á ensku kallast krill (Euphausia superba) og er mikilvæg fæða sumra mörgæsategunda hefur venjulega verið kallað kríli á íslensku eða suðurhafskríli en einnig hafa líffræðingar kallað tegundina suðurhafsljósátu. Undirritaður hefur vanist seinna nafninu og mun nota það í þessu svari.
Suðurhafsl...
Sebrahestar eða sebradýr eru hófdýr af hestaætt (Equidea) sem lifa villt í Afríku. Helsta einkenni þeirra eru svartar og hvítar rendur um allan skrokkinn. Það eru til 3 tegundir af sebrahestum, sléttusebrar (Equus quagga), greifasebrar (Equus grevyi) og fjallasebrar (Equus zebra).
Meðgöngutíminn hjá sebrahest...
Smokkfiskar eru ekki kolkrabbar heldur eru þetta sitt hvor ættbálkurinn innan sama undirflokks. Flokkunarfræðin er svona:
Ríki:Dýraríki (Animalia)Dýraríki (Animalia)
Fylking:Lindýr (Mollusca)Lindýr (Mollusca)
Flokkur:Höfuðfætlur (Cephalopoda)Höfuðfætlur (Cephalopoda)
Undirflokkur:ColeoidaColeoida
Ættbálkur:K...
Hnúðlaxar (Oncorhynchus gorbuscha) hafa lengi veiðst í íslenskum ám. Þeirra varð fyrst vart í evrópskum ám upp úr miðri 20. öld. Þann 12. ágúst 1960 veiddist einn slíkur í Hítará á Mýrum og var það fyrsti hnúðlaxinn sem kom á land úr íslenskri á. Hnúðlaxana í Evrópu má rekja til tilrauna Rússa til að koma á legg h...
Krían (Sterna paradisaea) er líklega sá fugl sem flýgur lengst á ævi sinni. Hún verpir á norðurslóðum en flýgur suður á bóginn á haustin í átt til Suðurskautslandsins þar sem hún heldur til við jaðar lagnaðaríssins, á suðurhafseyjum og jafnvel á Suðurskautslandinu sjálfu. Þegar vorar á norðurhveli flýgur hún aftur...
Það er einkum tvennt, sem franski steingervinga- og dýralíffærafræðingurinn Georges Cuvier er þekktur fyrir. Annað er framlag hans til samanburðarlíffærafræði dýra, en segja má að hann hafi lagt grunninn að nútímagerð fræðigreinarinnar. Hann benti á að ákveðin einkenni í líkamsgerð dýra fylgjast löngum að og tengj...
Í heild hljóðaði spurningin svona: Hversu lengi hafa laxfiskarnir bleikja, urriði og lax verið í íslensku ferskvatni og hvaðan komu þeir hingað, og í hvaða röð?
Laxfiskar lifðu ekki á Íslandi á ísöld þegar stór jökulskjöldur lá yfir öllu landinu. Laxfiskar á Íslandi eru því afkomendur fiska sem fluttu hingað f...
Til eru þrjár tegundir fíla í heiminum í dag og lifa tvær þeirra í Afríku en ein í Asíu. Afríkufíllinn eða afríski gresjufíllinn (Loxodonto africana) er stærsti núlifandi fíllinn og líka stærsta landspendýrið. Hann er 3-4 metrar upp á herðakamb og vegur 4-7 tonn, en þó er algengasta þyngdin 5,5 tonn. Í Afríku lifi...
Engar tegundir innan yfirættar skjaldbakna (Chelania) framleiða eitur, hvort heldur er til sjálfsvarnar eða veiða. Slíkt er þó vel þekkt innan nokkurra hópa hryggdýra, svo sem froska og slangna.
Skjaldbökur hafa hins vegar þróað með sér aðra vörn; stóran og sterkan skjöld sem þær draga nafn sitt af. Hann er s...
Til að dýrategund teljist ný í dýrafánu hvers lands þarf hún í fyrsta lagi að geta dregið fram lífið á landsins gæðum og í öðru lagi að geta tímgast á nýja staðnum. Fræðimenn sem fjalla um þessa grein líffræðinnar gera skýran greinarmun á svokölluðum flækingum sem berast inn á ákveðin svæði og þeim dýrum sem e...
Upphafleg spurning var sem hér segir:Fyrirspurnir um Þvengeðlu (Compsognathus). Hvar í fæðukeðjunni var hún, hvað er vitað um hegðun hennar og var hún hjarðdýr?
Þvengeðlan (Compsognathus) er með minnstu risaeðlum sem fundist hafa merki um. Hún var á stærð við lítinn heimiliskött eða um 30-50 cm á lengd og vó aðei...
Fjölmargar spendýrategundir hafa veiðihár, til dæmis velflestar tegundir af ættinni Carnivora (rándýr) eins og selir, hundar, kattardýr svo og öll smærri rándýr eins og þvottabirnir, minkar og víslur. Spendýr af ættinni Rodentia (nagdýr) eru einnig með veiðihár.
Segja má að veiðihár spendýranna gegni nokkurn ve...
Til eru margar tegundir af köngulóm og því er ekki þess að vænta að vefur þeirra sé allur eins. Sjálfsagt er það ein ástæðan til þess að heimildum ber ekki alveg saman um þessa hluti. En með þetta í huga verður hér aðeins gefin gróf hugmynd eða dæmi um massa köngulóarvefs. Slíkt er raunar oft gert í vísindum, ...
Kolmunni (Micromesistius poutassou, e. blue whiting) er af þorskfiskaætt (Gadidae) eins og nokkrir af þekktustu nytjafiskum Íslandsmiða, svo sem þorskur (Gadus morhua), ýsa (Melanogrammus aeglefinus), ufsi (Pollachius virens) keila (Brosme brosme) og langa (Molva molva).
Kolmunni getur orðið allt að 50 cm á le...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!