Tvö þúsund króna seðill hefur ekkert sérstakt verðmæti umfram það sem á honum segir. Hann er sem sé tvö þúsund króna virði. Það má því kaupa fyrir hann jafnmikið og fyrir til dæmis tvo þúsund krónu seðla eða fjóra fimm hundruð króna seðla.
Tvö þúsund krónu seðlar eru hins vegar frekar lítið notaðir og því alge...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Ég er nemandi og ég bý í Bandaríkjum. Ég hef mikinn áhuga á íslensku og ég vil tala málið án villna. Spurningin mín er um eignarfallið eftir tölum. Hvenær notum við eignarfall eftir tölum? Segjum við tvö þúsund manna eða tvö þúsund menn? Orðin sem ég hef sérstaklega áhuga á ...
Ekki er auðvelt að skilgreina hugtakið tungumál því munurinn á tungumáli og mállýsku er ekki skýr og oft tengist hann þjóðerni og stjórnmálum. Til dæmis geta Svíar og Norðmenn yfirleitt skilið hvora aðra þótt sænska og norska séu talin tvö tungumál. Á hinn bóginn geta þeir sem tala mandarínsku og kantónsku ekki sk...
Orðið þúsund er bæði notað í kvenkyni og hvorugkyni. Það er líka notað sem töluorð og þá óbeygt. Það beygist því á tvennan hátt:
Kvenkyn
Hvorugkyn
eintala
nf.
þúsund
þúsund
þf.
þúsund
þúsund
þgf.
þúsund
þúsundi
ef.
þúsundar
þúsunds
fleirtala
nf.
þúsundir
þúsund
þf.
þúsundir
þúsund...
Í hvalatalningum sem Hafrannsóknastofnun hefur tekið þátt í á hafsvæðunum umhverfis Ísland hefur tekist að skrá og fylgjast vel með þeim breytingum sem hafa orðið á stofnum hvala á þessum svæðum.
Hnúfubakar teljast ekki í útrýmingarhættu við Ísland.
Talning var fyrst framkvæmd árið 1987 og þá reyndust vera um...
Öll spurningin hljóðaði svona: Hversu miklum pening eyðir persóna á mánuði að meðaltali? Þá fyrir mat, reikninga, föt o.s.frv Breytist það með aldri?
Hagstofa Íslands heldur utan um ýmislegt talnaefni, meðal annars tölur um neysluútgjöld Íslendinga. Því miður er eitthvað síðan tölurnar undir þessum lið voru upp...
Spurningin í fullri lengd hljóðar svona:
Hvenær mynduðust jöklarnir sem nú eru á Íslandi? Eru þeir leifar af stóra jökulskildinum sem náði yfir allt landið?
Talið er að fyrir sex þúsund árum hafi nær allir jöklar frá síðasta kuldaskeiði verið horfnir af Íslandi. Í meira en þúsund ár hafði verið 2-3 °C hlýrr...
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:Raðtölur. Fyrir mörgum vefst - mér líka - hvernig raðtala er sögð þegar komið er yfir hundrað. Hundraðasti og fyrsti, hundraðasti og nítjándi. En þegar komið er í hundrað og tuttugu, á þá ekki að segja hundrað og tuttugasti; ekki hundraðasti og tuttugasti. Tek sérstaklega eftir ...
Íslenskir vísindamenn hafa gert nokkuð af því að aldursgreina minka. Meðal annars aldursgreindi Karl Skírnisson dýrafræðingur 972 minka á árunum fyrir 1990 og Róbert A. Stefánsson líffræðingur, ásamt starfsfólki á Náttúrustofu Vesturlands, aldursgreindi yfir þrjú þúsund minka til viðbótar.
Minkar í íslenskri n...
Rómverska borgin Pompei grófst undir margra metra þykku lagi af vikri og ösku þegar Vesúvíus á Ítalíu gaus hinn 24. ágúst árið 79 eftir Krist. Þegar gosið hófst bjuggu um 25 þúsund manns í Pompei en hingað til hafa aðeins um tvö þúsund þeirra fundist í rústunum. Í lok eldgossins var borgin horfin og týnd.
Uppgrö...
Fjögur þúsund og fimm hundruð árum fyrir upphaf tímatals okkar (fæðingu Krists) voru sprottin upp lítil þorp í suðurhluta Mesópótamíu þar sem nú heitir Írak. Á þeim tíma náði sjávarströndin miklu lengra inn í landið en nú. Stórfljótin Evrat og Tigris hafa á rúmlega sex þúsund árum borið fram fram óhemjumagn af...
Búrhvalir (Physeter macrocephalus) hafa verið mikið veiddir á síðastliðnum öldum, fyrst og fremst vegna lýsis. Hægt er að skipta veiðum á búrhvölum í tvö tímabil. Hið fyrra hófst snemma á 18. öld og náði hámarki um 1830. Seinna tímabilið hófst á 3. áratug síðustu aldar og náði hámarki á þeim 7. Var þá beitt nútíma...
Metaðsókn var að Vísindavef Háskóla Íslands árið 2018. Samkvæmt gögnum frá Modernus sem rekur samræmda vefmælingu á Íslandi, voru notendur Vísindavefsins 775 þúsund árið 2018 og flettu þeir síðum vefsins rúmlega þremur milljón sinnum. Svörin á Vísindavefnum eru orðin rúmlega 12.000 og flettingarnar samsvara því að...
Kívífuglinn er í raun fimm tegundir ófleygra fugla sem tilheyra ættkvíslinni Apteryx. Nafnið á fuglinum er upprunið úr máli maóra og hljómar líkt og kall karlfuglsins sem er mjög áberandi í skógum Nýja-Sjálands.
Kívífuglar eru grábrúnir á lit og á stærð við hænu. Þeir eru á ferli á nóttinni og róta þá í skógarb...
Tvíkímblöðungar tilheyra fylkingu dulfrævinga (Anthophyta) eða blómstrandi plantna. Í klassískri flokkunarfræði plantna er dulfrævingum skipt í þrjá undirflokka: magnólíta (Magnoliids), einkímblöðunga (Monocotyledones) og tvíkímblöðunga (Eudicotyledones). Aðeins 3% dulfrævinga tilheyra magnólítum, en þeir eru ta...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!