Fjöldi uppraðana í talnarunu í tugakerfinu er alltaf talan 10 í veldinu n, þar sem n táknar fjölda tölustafa í talnarununni.
Leyninúmer (PIN-númer) sem notuð eru í bankaviðskiptum hér á landi eru fjórir tölustafir sem hver getur verið frá 0-9. Fjöldi mismunandi leyninúmera er því:104 = 10 ∙ 10 ∙ 10...
Orðið grue er ensk sögn sem þýðir „að skjálfa“. Sögnin er nokkuð gömul, en hún barst inn í ensku úr skandinavískum málum á 13. öld. Í dag er sögnin lítið notuð, en orðið lifir meðal annars í lýsingarorðinu gruesome, sem þýðir „hryllilegur“ á íslensku. Sem nafnorð hefur grue gengið í endurnýjun lífdaga á síðustu ár...
Luca Aceto er prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og við Gran Sasso-rannsóknastofnunina á Ítalíu. Rannsóknir hans eru á sviði fræðilegrar tölvunarfræði, þar á meðal má telja athugunir á rökfræði tölvunarfræðinnar, merkingafræði forritunaraðgerða (e. structural operational semantics) og samtímavinns...
Alan Turing er einn þekktasti og áhrifamesti vísindamaðurinn á sviði tölvunarfræði. Til marks um það má nefna að bandarísku tölvusamtökin ACM kenna hin árlegu verðlaun sín við hann. Turing-verðlaunin eru gjarnan nefnd Nóbelsverðlaun tölvunarfræðinganna.
Turing fæddist í London 23. júní 1912. Hann lærði stærðfræ...
Spyrjandi bætir við:
Er til einhver skotheld aðferð til að finna kvaðratrót tölu án vélar?Til að finna kvaðratrót tölu er algengt að reiknivélar noti eftirfarandi aðferð. Hún byggir á ítrun Newtons sem hefur verið lýst hér á Vísindavefnum. Ef við viljum finna kvaðratrót tölunnar \(R\) þá viljum við finna \(x\) þa...
Augnlokin gegna ákaflega mikilvægu hlutverki og má segja að hér eigi við hið fornkveðna: "Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur". Þau verja augun fyrir umhverfi sínu, svo sem aðskotahlutum, ryki og ljósi, og halda auganu röku með því að dreifa táravökva yfir það með reglulegu millibili. Tárin verja a...
Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Komið þið sæl. Ég er á Facebook. Þegar ég geispa golunn, hvernig geta þá mínir nánustu lokað eða látið loka síðunni? (Ruslpóstvörn er áreiðanlega ágæt, en kallar eins og ég eru fljótir að gleyma).
Nútímatækni leysir ýmis vandamál en getur einnig búið til önnur. ...
Jón Torfi Jónasson er prófessor emeritus í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hann hefur fengist við rannsóknir á lestri og fjölmörgum þáttum menntunar og skólastarfs.
Rannsóknarsvið Jóns Torfa var í upphafi skynjun og lestur en síðar sneri hann sér að skrifum um skólastarf og m...
POSIX (Portable Operating System Interface for UNIX) er staðall sem skilgreinir viðmót stýrikerfis gagnvart notendaforritum. Þessi staðall er um 15 ára gamall og var upphaflega ætlaður til þess að samræma viðmót þeirra mörgu stýrikerfa sem svipuðu til UNIX stýrikerfisins og voru í notkun á þeim tíma. Þetta voru st...
Svarið er miðað við að með „raddþekkingu“ eigi spyrjandi við það sem á ensku kallast „voice recognition“ eða „speaker identification“ fremur en „speech recognition“ („talgreining“).
Með raddþekkingu í tölvum er átt við það þegar reynt er að nota tölvu til að greina hver talar. Algengt er að slíkt sé notað við ...
Höfundur þessa svars er ekki sérfróður um tölvur en hefur hins vegar fjölbreytta reynslu sem almennur tölvunotandi í aldarfjórðung eða svo. Í samræmi við þetta er megináherslan í svarinu lögð á sjónarhorn hins almenna notanda, áhrif hans á feril tölvupóstsins og þær stillingar sem hann getur sett inn samkvæmt eigi...
Upprunalega spurningin var:
Eru einhver störf í dag sem talið er að muni ekki vera til staðar í framtíðinni?
Já, það er afar líklegt að einhver störf sem við þekkjum vel í dag verði ekki lengur til staðar í framtíðinni. Þá munu mörg störf breytast vegna þróunar bæði samfélags og tækni. Þannig getur tækni e...
Fjórða iðnbyltingin er hugtak sem vísar til tækniframfara undanfarinn ára og þeirra sem eru í vændum. Þar er aðallega átt við gervigreind, róbótatækni, sjálfkeyrandi bíla, Internet hlutanna (Internet of Things, IoT), sjálfvirknivæðingu og fleira sem mun líklega valda víðtækum samfélagsbreytingum á næstu árum og ár...
Stafrófið var ekki fundið upp í heilu lagi, heldur þróaðist það á mörgum öldum úr eldri gerðum skriftar. Eins og hellamálverk eru til vitnisburðar um, er hæfileiki manna til að teikna og mála myndir mörg þúsund ára gamall. Hugmyndin að láta ólíkar myndir eða tákn standa fyrir ólíka hluti, svo sem orð eða tölur, vi...
Hér verður eftirfarandi spurningum svarað:
Hvernig er hægt að verjast tölvuveirum og öðrum hættum á netinu?
Hvers vegna sleppa veirur stundum í gegnum veiruvarnir?
Hvers vegna eru til tölvuveirur, er ekki hægt að útrýma þeim?
Hvað er trójuhestur í tölvum og af hverju sleppur hann oft í gegnum e...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!