Minnisbækur ítalska lista- og vísindamannsins Leonardó da Vinci (1452-1519) eru illlæsilegar fyrir margra hluta sakir. Þar ber fyrst að nefna að listamaðurinn notaði spegilskrift og byrjaði hverja línu hægra megin á blaðinu og skrifaði til vinstri. Þeir sem eru vanir að lesa óspeglaða skrift frá vinstri til hægri ...
Forsenda þessarar spurningar er ekki alveg rétt því kjötát er mun útbreiddara meðal fremdardýra (prímata) en margir gera sér grein fyrir. Áður fyrr var almennt talið að einu fremdardýrin sem stunduðu reglubundið kjötát væru menn og simpansar (Pan troglodytes). Fræðimenn hafa þó lengi vitað af meira og útbreiddara ...
Hér er einnig svarað spurningunni:Þroskast bananar fyrr í kulda? Ef ég set banana í frystinn og tek þá út stuttu síðar þá eru komnir brúnir blettir í þá.
Eflaust hafa margir tekið eftir því að þegar bananar eru geymdir í nokkra daga breytist litur hýðisins úr gulum yfir í brúnan eða svartan. Það sama á sér stað...
Hugtakið ólígarkí er komið úr grísku og merkir 'fámennisstjórn'. Það er myndað úr grísku orðunum oligos (ὀλίγος) sem merkir fár eða fáir og arkhein (ἄρχειν) sem þýðir að hafa forystu eða stjórna.
Með orðinu ólígarkí er átt við stjórn hinna fáu, andst...
Hvaða þættir valda því að plastumbúðir halda ekki súrefni?
Öll plastefni eru í raun flóki af risalöngum fjölliðukeðjum sem er líkastur hrúgu af soðnu spaghettíi. Hver fjölliðukeðja er mynduð úr raðtengdum atómum, oft 10-100 þúsundum þeirra, líkt og perlur í perlufesti. Langoftast eru það kolefnisatóm sem er...
Mataræði er mikilvægur þáttur í því að byggja upp sterk bein. Bein er lifandi vefur og þarf eins og allir vefir líkamans á ýmsum næringarefnum að halda til þess að þroskast og vaxa eðlilega og til þess að viðhalda sér eftir að fullum vexti er náð. Styrkur beinagrindar byggist aðallega á kalksamböndum en í beinum e...
Spurningin í heild sinni var:Hvaða tegundir gæsa heimsækja Ísland frá því snemma á vorin þar til seint á haustin?
Á vorin koma nokkrar tegundir gæsa hingað til lands, bæði tegundir sem verpa á Íslandi og tegundir sem koma hingað í æti á ferðalagi til eða frá varpstöðvum sínum.
Til varpfugla teljast grágæs (...
Árið 1343 var á margan hátt dæmigert fyrir íslenskan veruleika á 14. öld, ef marka má hinar knöppu frásagnir annálarita en í þeim er getið um helstu atburði hvers ár. Nafnkunnugt fólk dó drottni sínum og fjöldi manns fórst í sjóslysum úti fyrir ströndum landsins. Annað sem bar til tíðinda voru afbrot og refsingar ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Af hverju er ál í sumum svitalyktareyðum? Hvaða tilgangi þjónar álið?
Á yfirborði húðarinnar eru fjölmargir svitakirtlar sem gegna mikilvægu hlutverki við stjórnun líkamshitans. Það gera þeir með því að seyta vatni sem svo gufar upp af húðinni og kælir við það líkamann. Vatnið...
Völd forseta Bandaríkjanna eru mikil, eins og nærri má láta. Bandaríkin eru á alla mælikvarða leiðandi afl í heiminum. Vegna hernaðar- og efnahagsstyrks hafa þau mikil áhrif innan alþjóðastofnana og því skiptir miklu máli hver situr í embætti forseta. Að sama skapi fer embætti Bandaríkjaforseta með mikil völd heim...
Orðasambandið merkir að ‘draga fram lífið í mikilli fátækt, lifa við sult og seyru’. Sögnin lepja merkir að ‘ausa upp í sig vökva eða þunnri fæðu með tungunni’ eins og til dæmis hundar og kettir gera. Kunnugt er að fátækt fólk notaði áður fyrr skeljar í stað spóna eða skeiða og lítill sopi var þá í hverri skel.
...
Oft er fólk í vafa um beygingu erlendra nafna og íslenskra ættarnafna í eignarfalli. Mælt er með eftirfarandi reglum (sjá nánar um þetta efni rit Ingólfs Pálmasonar, Um ættarnöfn og erlend mannanöfn í íslensku, 1987):
Ættarnöfn kvenna, innlend sem erlend, eru að jafnaði ekki beygð: að sögn Sigríðar Snævarr, þáttu...
Aðrir spyrjendur eru:
Þorsteinn Briem, Róbert Már, Dagur Halldórsson, Guðmundur Jóhannsson, Hafdís Þorgilsdóttir, Magnús Torfi, Sverrir Þorvaldsson, Eva Thoroddsen, Dagur Halldórsson og Guðrún Guðmundsdóttir.
Í reglum Háskóla Íslands segir að kennarar háskólans séu „prófessorar, dósentar, lektorar, þar á meðal...
Líkaminn notar prótín, ásamt kolvetnum og fitu, sem eldsneyti. Öll þessi efni gegna þó einnig öðrum og mikilvægum hlutverkum í líkamanum.
Líkaminn notar þau prótín sem hann fær til að búa til sín eigin prótín, til dæmis eru prótín aðalbyggingarefni líkamans og nauðsynleg til uppbyggingar, vaxtar og viðhalds ve...
Tíska og margt sem henni tengist er sannkallað stórveldi í viðskiptaheiminum og hluti af öflugu markaðs- og neyslukerfi nútímans. Tískuframleiðsla og allt umhverfi tískunnar hefur um árabil þróast í þá átt að verða að einni mikilvægasta tekjulind öflugustu ríkja heims. Fastmótuð menning sem er inngreypt í hagkerfi...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!