Í stuttu máli er skýrsla stundum ýtarlegri heimild heldur en skjal. Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008 er til að mynda um 2.000 síður og var gefin út í níu bindum. Fáum hefði dottið í hug að nefna slíkan doðrant skjal. Annar munur er sá að skýrslur geta veri...
Vísindavefurinn svarar ekki oft sértækum spurningum af þessu tagi - en segja má að þessi spurning bjóði upp á fræðslu um lög félagasamtaka almennt og ýmislegt í þeim efnum sem gott er að hafa í huga.
Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu og áhugafólks um málefni þess (FEBRANG) eru félagasamtök. Lög félagsins o...
Flest landspendýr hafa litasjón þótt hún sé í fæstum tilfellum eins og hjá okkur mönnunum. Öðru máli gegnir hins vegar um sjávarspendýr eins og hvali.
Í stuttu máli þá eru tvenns konar ljósnemar (e. photoreceptors) í sjónhimnu augans, annars vegar stafir og hins vegar keilur. Stafirnir eru sérhæfðir til að nem...
Eins og staðan er í dag eru um það bil 15 þúsund tonn af koltvíoxíði (CO2 – einnig nefnt koltvíildi á íslensku) árlega fönguð úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar og dælt djúpt niður í jarðlögin. Þar umbreytist koltvíoxíðið í stein og þannig er komið í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Þetta er gert undir merkjum C...
Tæplega 20 tegundir maura hafa fundist hér á landi. Vísbendingar eru um að fjórar þeirra hafi náð hér fótfestu; húsamaur, blökkumaur, faraómaur og draugamaur. Um þessar tegundir er fjallað í svari við spurningunni Hvaða maurar hafa náð fótfestu á Íslandi? Í þessu svari er sagt frá nokkrum tegundum sem hafa fundist...
Upprunalega spurningin var:
Er hægt að segja aðeins frá því þegar það voru notaðar alvöru dúfur á Ólympíuleikunum í skotkeppninni?
Margt af því sem einhvern tíma hefur átt sér stað í sögu Ólympíuleikanna kann að koma spánskt fyrir sjónir í dag. Meðal þess er notkun á lifandi dúfum í keppni í skotfimi.
Þe...
Stutta svarið er að það verða til kökur ef piparkökusöngnum er fylgt. Þær verða hins hins vegar ekki eins og þær piparkökur sem flestir eiga að venjast.
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Í flestum piparkökuuppskriftum er enginn pipar, nema kannski á hnífsoddi. Af hverju kallast kökurnar þá piparkökur...
Orðið jólagrautur þýðir í munni Íslendinga á 20. öld þykkur hrísgrjónamjólkurgrautur með rúsínum. Grautur af því tagi verður reyndar ekki algengur hér fyrr en upp úr aldamótum 1900 en áður hafði jólagrauturinn oftast verið úr bygggrjónum, mjólk og rúsínum. Hrísgrjónagrauturinn er borinn fram með kanelsykri og rjóm...
Vetnisperoxíð (H2O2) er myndað úr einni peroxíðsameind (O22-) og tveimur vetnisatómum (sjá mynd).
Mynd 1. Vetnisperoxíð er myndað úr einni peroxíðsameind og tveimur vetnisatómum.
Vetnisperoxíð er þykkur litlaus vökvi sem leysist vel upp í vatni vegna þess hversu skautuð sameindin er. Það flokkast sem veik sý...
Til þess að líkaminn geti starfað eðlilega þurfum við að fá 13 mismunandi vítamín út fæðunni sem við neytum. Þessi vítamín gegna margvíslegum hlutverkum í líkamanum og skorti eitthvert þeirra er hætta á hörgulsjúkdómi.
Vítamín skiptast í vatnsleysanleg vítamín annars vegar og fituleysanleg hins vegar. Til vat...
Heimakoma (Erysipelas) er bráð húðsýking sem er venjulega vel afmörkuð, gljáandi, rauð, upphleypt, heit og viðkvæm fyrir snertingu. Heimakoma byrjar sem rauður blettur á húðinni, oftast þar sem er sprunga eða sár, og breiðist síðan út og stækkar dag frá degi. Stundum myndast blöðrur og jafnvel rauð strik út frá sý...
Hér er einnig að finna svar við spurningunum:
Hver er munurinn á málmunum kopar og eir, ég sé að annar er gylltur en hinn bronslitaður?
Hver fann upp koparinn og hvernig er nafnið kopar tilkomið?
Hvað er efnið eir, í hvað er það notað og hver er munurinn á því og kopar?
Kopar er frumefni númer 29 í lotukerfi...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Má heita 4 nöfnum? Má ég bæta við einu? Hef bætt einu sinni áður.
Fullt nafn einstaklings er samsett úr eiginnafni/nöfnum, millinafni[1] ef við á og kenninafni/nöfnum. Samkvæmt núgildandi lögum um mannanöfn (nr. 45/1996) mega eiginnöfn og millinafn aldrei vera fleiri en þrjú sa...
Upphaf núverandi stríðs í Úkraínu má rekja til atvika í nóvember 2013. Úkraínsk stjórnvöld höfðu þá gengið frá viðskiptasamningi við Evrópusambandið sem beið undirritunar Viktors Janúkovitsj, forseta Úkraínu. En hann skipti skyndilega um skoðun, ákvað að falla frá samningnum en þiggja í hans stað stór lán frá Rúss...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað er vélrænt nám (e. machine learning) og er það rétt hjá syni mínum að það muni leysa lækna af hólmi?
Á öðrum áratugi þessarar aldar var þróuð aðferðafræði, svokallað djúptauganet (e. deep neural network) sem hentar vel til sjálfvirkrar greiningar og flokkunar á fl...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!